Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1983, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1983, Qupperneq 3
DV. LAUGARDAGUR1. OKTOBER1983. 3 Hundahald í Garðabæ Hundahald í Garöabæ er í raun leyft með ákveönum skilyröum. Þau skil- yröi eru sett aö hundamir séu skráðir og merktir meö númeraplötum gegn árlegu leyfisgjaldi. Leyfisgjald fyrir yfirstandandi ár var eitt þúsund krónur. Nú eru skráöir um 220 hundar í bænum. Hundamir eru ábyrgöartryggðir fyrir tjóni er þeir gætu valdiö. Sett eru skilyrði um aö hundamir séu hreinsað- ir árlega. Þeir mega ekki ganga lausir og ekki valda ónæöi. V iö ítrekuð brot er heimild sett fyrir aö hundarnir verði fjarlægðir. Fram til þessa hefur þó enginn hundur veriö fjarlægður af heimili. OEF Hilmar Ingólfsson bæjarfulltrúi: FRAMKVÆMDIR í ÓLAGIFRÁ HENDILÖGREGLU „Eg er á móti hundahaldi í bænum. En ég sætti mig viö reglumar þótt þær haldi engan veginn. Sérstaklega er framkvæmdin í ólagi frá hendi lögreglu og fógeta,” sagöi Hilmar Ing- ólfsson, bæjarfulltrúi Alþýðubanda- lagsins í Garöabæ. „I heild er ekki mikiö ónæöi af hundum en þegar ónæði veröur og því er ekki sinnt þá er þaö of mikiö. Hundaeftirlitsmaðurinn kvartar en ef eigandinn lætur þaö sem vind um eyru þjóta þá kemst hann upp meö þaö. Fógeti og lögregla hafa algjör- lega bmgöist í því aö fyigja þessum málum eftir. Hundar era aldrei sótt- ir inn á heimili þótt um ítrekuö brot sé aö ræða á reglugerðinni. Eftir að ráðinn var sérstakur eftir- litsmaöur hefur þaö minnkaö aö hundar gangi um lausir. En þegar þaö gerist þá þýðir lítið aö kvarta því eigendumir sinna ekki kvörtunun- um. Þessu fylgir líka sóöaskapur þar sem hundarnir gera þarfir sína í göröum nágrannanna þar sem smá- bömeruaðleik,” sagðiHilmar. Hilmar sagöi aö þess væra dæmi að fólk úr Reykjavík skráði hunda sína í Garðabæ til aö hafa þá löglega. Einnig væru dæmi um aö hundar í Garðabæ væra ekki skráöir vegna þess að eigandinn vildi ekki borga gjaldiö og ætti þar meöal annars lög- reglumaöur í hlut. OEF Jóna Bjarkan hundaeftirlitsmaður: TELMEIRIHLUTA A MÓTIHUNDAHALDI „Eg tel aö meirihluti Garöbæinga yröi á móti hundahaldi ef fram færi atkvæöagreiösla um þaö. En ég held aö fólk geri sér ekki grein fyrir aö fólk myndi áfram halda hunda þótt þaö væri bannað. Eins og viö sjáum er ástandið verst þar sem hundahald er bannað.” Þetta segir Jóna Bjarkan, hundeigandi og hunda- eftirlitsmaöur í Garðabæ. Aö sögn Jónu hefur tekist vel meö framkvæmd reglugerðarinnar um hundahald. Lítiö sé um aö íbúar kæri vegna ónæöis af hundum og á undan- fömum þremur árum hafi hún aðeins þurft að hafa afskipti af um 15 hundum af þeim 220 sem skráöir era í bænum. Jóna viöurkenndi aö þaö kæmi fyrir aö hundar gengju lausir í bæn- um og væru nokkrir hundaeigendur sem hún ætti í vandræðum meö af þeim sökum. Hins vcgar heföi þaö ekki leitt til neinna vandræöa og kær- ur af þeim sökum ekki veriö tíöar. „Ég hef hvatt fólk til aö bera fram kvartanir og láta vita ef reglugerðin er brotin, en í f lestum tilfellum koma kærur vegna brota á reglugeröinni frá mér en ekki frá íbúum,” sagöi Jóna. ÓEF Mörg fyrirtæki eiga í miklum rekstrarerfiðleikum: Gífurleg f jölgun f járnáma Fjölmörg fyrirtæki eiga í miklum rekstrarerfiðleikum um þessar mundir, samkvæmt upplýsingum sem DV hefur aflaö sér. 1 síðustu viku var t.d. tveim verslunum lokaö vegna van- skila, Airport og Z-húsgögnum. Mun hafa staðið til að loka fleiri fyrirtækj- um af sömu sökum en þau fengu frest til aö freista þess aö leysa úr sínum málum. Þá hefur aö undanfömu veriö gert fjárnám í fjölmörgum fyrirtækj- um vegna vanskila. Samkvæmt upplýsingum sem DV fékk í skiptarétti hefur verslunin Z- húsgögn verið lýst gjaldþrota. Hjá Airport var gert löghald í öllum vöru- lager verslunarinnar en áöur haföi verslunin Jónsval veriö lýst gjald- þrota. Aö sögn Jóns Skaptasonar yfir- borgarfógeta hefur beiðnum um fjár- nám fjölgað mjög, samanboriö viö fyrra ár. Frá áramótum til 23. september í ár hafa borist 2587 slíkar beiðnir en 1703 höföu borist á sama tíma í fyrra. Sagöi Jón aö óalgengt væri aö fjámámsbeiðnir væra aftur- kallaöar þegar þær heföu einu sinni borist til embættisins. Sem fyrr sagöi hefur veriö gert fjár- nám hjá fjölmörgum fyrirtækjum, mörgum oftar en einu sinni. Era þar á meöal tískufataverslanir, matvöru- verslanir, skóverslanir og hljómplötu- útgáfa svo eitthvað sé nefnt. Eru sum þessara fyrirtækja á fresti sem þau hafa fengið til aö leysa úr sínum mál- um til aö ekki veröi gengið frekar aö þeim. -JSS ráðherranna: Allir fengu afskriftir „Jú, viö sem áttum okkar eigin bíla og notuöum þá vegna starfsins fengum auk kostnaðar viö reksturinn greiddar afskriftir. Þetta var til þess aö jafna á milli okkar og þeirra sem notuðu ríkis- bíla eingöngu,” sagði Hjörieifur Guttormsson, fyrrverandi iönaöarráö- herra, í samtali viö DV. Afskriftirnar eru greiddar einu sinni á ári og reiknaöar 1/10 hluti af veröi nýs bíls af sömu tegund og hver ráö- herra á og notar. Afskriftirnar eru þvi rúmlega tvöfalt hærri árlega ef miöað er við fullt verö nýs bíls en ekki af- sláttarverð, án aðflutningsgjalda.HERB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.