Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1983, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1983, Side 5
DV. LAUGARDAGUR1. OKTOBER1983. Vetrardagskrá Ríkisútvarpsins á Akureyri: Aukin þátttaka í „magasínum” — „Kvöldgestir” halda áfram „Aöalbreytingin er þátttaka okkar í magasinum sem stjórnaö er að sunnan og þama á milli veröur mikil og góð samvinna. Viö erum mjög ánægö með aö geta komið á framfæri þvi sem er aö gerast hér norðanlands,” sagði Jónas Jónasson, forstöðumaöur Ríkisút- varpsins á Akureyri, í samtali um vetrardagskrána. Hrafnhildur Jónsdóttir veröur aöal- röddin að norðan í morgunútvarpinu. 1 síðdegisþætti Páls Heiöars sem er tvisvar — þrisvar í viku veröur Olafur Torfason norðanfulltrúi og öm Ingi í lista- og menningarþætti Sigmars B. Haukssonar á laugardögum. Á sunnudagskvöldum klukkan 22.35 er í deiglunni þáttur Signýjar Pálsdótt- ur leikhússtjóra sem hún byggir á Spá- manninum og prjónar út frá því sem þar er, meö frásögn og viðtölum. „Við PoDinn” fer aftur af staö á þriðjudags- morgnum. Umsjónarmenn verða til skiptis Gestur Einar Jónasson og Ingi- mar Eydal. Hálfsmánaöarlega verður líka á þriðjudögum þáttur um gamlan fróðleik í umsjá Málmfríðar Sigurðar- dóttur. Hann kemur í staöinn fyrir „Áður fyrr á ámnum”, þátt Ágústu Björnsdóttur. Á miðvikudögum klukk- an 11.00 verður endurtekinn þáttur Signýjar frá sunnudagskvöldi. „Frí- vaktin” verður áfram hálfsmánaðar- lega að norðan í umsjá Sigrúnar Sig- uröardóttur. Einnig stendur til að norðanútvarpið komi mánaðarlega á fimmtudagskvöldum með þátt í léttum dúr. Á föstudögum verður Einar Kristjánsson með þátt sinn, „Mér era fornu minnin kær”, hálfsmánaðarlega fyrir hádegi. Sérhæf efni verða tekin fyrir á föstu- dagskvöldum. Byrjað verður með 8 þætti sem Oðinn Jónsson hefur gert. Nefnast þeir „Norðanfari — þættir úr sögu Akureyrar”. Þegar þeim lýkur koma aðrir sem Hrafnhildur Jónsdótt- ir er að vinna að með manni sínum, Jóhanni Pálssyni. Þættir þeirra munu fjalla um brautryðjendur í sambandi við garðrækt. I fyrstu fjórum þáttun- um fjalla þau um Stefán Stefánsson skólameistara. A föstudögum verður Jónas Jónasson áfram með þætti í lík- ingu við .dCvöldgesti” og með sama nafni. Hilda Torfadóttir hringir enn „A sveitalínunni” en form þáttarins breytist hugsanlega. „Ungir pennar” Dómhildar Sigurðardóttur verða á laugardagskvöldum og unga fólkið fær sinn skammt hálfsmánaðarlega á sunnudagskvöldum. Annað sem til stendur hjá Ríkisút- varpinu á Akureyri er. fræðslu- og fróðleiksþættir sem Jóhanna Stein- grimsdóttir, Ámesi í Reykjadal, er að vinna um fólk og bæi á bökkum Laxár. Einnig ætla þau Soffía Guðmundsdótt- ir tónlistarkennari og Rafn Sveinsson afgreiðslumaður að efna í nokkra plötuþætti. JBH/Akureyri. Fjögurra stunda mjólkurverkfall Deilu mjólkurfræðinga og Mjólkur- samsölunnar var vísað til félagsdóms í gær. Fulltrúar deiluaðila undirrituðu samkomulag þess efnis skömmu fyrir klukkan 11 í gærmorgun. Mjólkurfræðingar hófu vinnu á ný fyrir hádegi. Verkfall þeirra stóð því ekki yfir nema fjórar klukkustundir og olli ekki teljandi erfiðleikum á markaðssvæði Mjólkursamsölunnar. Þar til úrskurður félagsdóms liggur fyrir munu mjólkurfræðingar starfa við óbreyttar aðstæður. Ágreiningsefnið er afleysingarstarf á rannsóknarstofu. Mjólkurfræðingar telja að maður úr þeirra stétt eigi að leysa af forstööumann rannsóknarstof- unnar sem er í sumarfríi um þessar mundir. -KMU. Úrvaí TÍMARIT FYRIR ALLA 5 Skálholtsskóli verður settur á morgun, sunnudag. Hefst athöfnin með guðsþjónustu kl. 14. Síðan veröur boðiö upp á veitingar. Loks verður skólinn formlega settur. Þetta er 12. starfsár Skálholts- skóla. Þar verða 20 nemendur í vetur en allmörgum varð að vísa frá þar sem heimavistin rúmar ekki fleiri. I vetur verður boðið upp á kjarna- nám í íslensku, sögu, samtímaviö- burðum, ásamt fleira. Auk þess geta nemendur valið um tvær brautir, þ.e. leiötogabraut og myndmennta- braut. Auk þess er boðið upp á ýmsar valgreinar. Má t.d. nefna að á síð- asta ári var nemendum boðið upp á ýmiss konar kynningu um Finnland. I vetur er fyrirhugað að hafa sams konar kynningu um Færeyjar. Þá má geta þess að sumarstarf í Skálholtsskóla var mikið og fjöl- breytt aö vanda. Voru haldin all- mörg námskeið og ráðstefnur. Á því fjölmennasta voru um 300 manns en það sóttu organistar og kirkjukórar víös vegar af landinu. Einnig var hótel- og veitingarekstur í skólanum ísumar. Rektor Skálholtsskóla er sr. Gylfi Jónsson. -JSS SKALHOLTSSKOU SETTUR Á MORGUN |HH OVENJUFALLEG OG ÍTÖLSK BORÐSTOFUSETT PÓLERAÐ MAHÓNÍ HUSGAGNAVERSLUNIN Síðumúla 4 sími 31900 - 86822. SÝNING laugardag kl. 10—12, sunnudag kl. 2—5 EINU EININGAHÚSIN Á ÍSLANDI SEM HAFA VIÐURKENNINGU RANNSÓKNASTOFNUNAR BYGGINGARIÐNAÐARINS. Þar með talin bæði íslensk og erlend einingahús. Bakkasíðu 1,600 Akureyri. Sími 96-22251. Smiðjuvegi 28, 200 Kópa- vogi. Sími 91-79277. Hosby hefur 25 ára reynslu i byggingu vandaðra einbýlishúsa. Þau eru byggð um mestalla Evrópu og uppfylla alls staðar ströngustu kröfur. Þau hafa ótviræða kosti, sem eru meðal annars: Einu einingahúsin hér ó landi sem hafa viður- kenningu Rannsóknarstofnunar byggingar- iðnaðarins. Byggingartiminn er aðeins 3—4 mónuðir fró pöntun þar til þú getur flutt inn í fullbúiö hús. 200 mm steinullareinangrun í loftum og gólfum, Þrefalt gler I öllum gluggum. • Huröir og gluggar úr mahóní. • Allar innréttingar og búnaður fylgir með — mikl- ir valmöguleikar. • Teiknistofa HOSBY-húsa, Smiðjuvegi, býður einnig almenna teikniþjónustu fyrir alla húsbyggj- endur. Það aru möguleikar á að skoða Hosby hús ■ Reykjavík, Akureyri og á ísafirði. Hafið samband við okkur og fáið allar nánari upplýsingar eða biðjið um ókeyp- is litmyndabækling.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.