Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1983, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1983, Blaðsíða 7
DV. LAUGARDAGUR1. OKTOBER1983. 7 Lionsmenn í Kópavogi eru tílbúnir i slaginn. Hér s jást þeir með perur fyrir fram- an h júkrunarheimilið í Kópavogi en til þess rennur ágóðinn að mestu. Perur til sölu í Kópavogi Á laugardag og sunnudag verður Lionsklúbburinn Muninn með hina ár- legu perusölu sína í Kópavogi. Allur ágóði rennur til líknarmála, meginhlutinn þó til hjúkrunarheimilis- ins í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa alltaf tekið perusölu þessari vel og verður svo vonandi einnig í þetta sinn. Messað í nýbyggingu Ásprestakalls: Menntaskólinn á Akureyri settur á sunnudaginn: Miklir erfiðleikar í húsnæðismálum MA —áfram brautskráð 17. júní, segir skólameistari Menntaskólinn á Akureyri verður settur á sunnudaginn. I vetur verða 615 nemendur í dagskóla og 120 í öld- ungadeild. Er það fleira en verið hefur áður, í fyrra voru 705 nem- endur. Nýnemar eru á þessu hausti 175 talsins, á öðru ári eru 190, 130 á þriðja og 120 á fjórða ári. Nær 60% nemendanna eru frá Akureyri. Nem- endum fækkar nú mjög úr öðrum landshlutum samhliða uppbyggingu f ramhaldsskóla þar sem nú eru orðn- ir eins konar héraðsskólar. Kennaralið skólans er lítið breytt frá síðasta ári. 1 orlofi eru 3 kennar- ar og hafa aðrir verið ráðnir í þeirra stað. Nýir fastráönir kennarar eru Margrét Baldvinsdóttir íþróttakenn- ari og dr. Stefán Jónsson sem kennir eðlisfræði og stærðfræði. Tryggvi Gíslason skólameistari var spurður hvort húsrúm væri nægj- anlegt. „Nei, nei. I vetur eru miklir erfið- leikar með húsnæði og kennt í skóla- stofum sem ekki þættu boölegir vinnustaðir í banka. Hér eru komnar þrjár kennslustofur í kjallara og auk þess er kennt á Sal og í bókasafni. Það er því hver smuga nýtt og notuð. Kennt er í skólanum frá því klukkan 8 á morgnana til 23 á kvöldin, nýting- in er því góð.” — Einhverjar nýjungar í skóla- starfinu í vetur? „Þetta er fyrsti veturinn sem allir nemendur skólans starfa eftir nýrri námsskrá þar sem um er að ræða bundið áfangakerfi. I þessu kerfi er reynt að láta námshópa halda sér. Þaö eru ekki bekkir eins og áður var en þó svipað fyrstu þrjú árin, nem- endur eru ekki saman alveg í öllum tímum. Þeir taka svo áfangapróf sem eru hluti af lokaprófum.” 1 — Verður farið að útskrifa tvisvar áári? „Nemendur geta nú lokið námi sínu tvisvar á ári en brautskráning verður ekki formleg nema einu sinni á ári, við skólaslit 17. júní.” — Hvemig lita skólayfirvöld á slíkt? „Það eru allir hér ennþá sammála um að brautskrá 17. júní. „Kerfið” hins vegar áttar sig ekki á því að enn er til skóli sem hefur störf sín 1. októ- ber. Skólinn ætlar áfram að gera það. Hér vorar oft seint en haustið er gott, september er sumarmánuður á Norðurlandi. Hér eru mikil haust- störf sem nemendur taka þátt í. Samkvæmt athugunum, sem gerðar hafa verið, hefur um þriðjungur nemenda upp undir helming tekna sinna í september einum,” sagði Tryggvi Gíslason og bætti við að haldiö yrði í 17. júní útskrift meðan hann f engi einhver ju að ráða. -JBH/Akureyri. Hafliðí kemur í heimsókn kirkjukaffi á eftir A morgun, sunnudag, kl. 14 verður guðsþjónusta í nýbyggingu Áspresta- kalls við Vesturbrún. Kirkjukór Ás- kirkju mun leiða söng undir stjórn Kristjáns Sigtryggssonar organista og sr. Ámi Bergur Sigurbjömsson flytur hugvekju. >'onaiir í hriðia skiDti sem söfn- uður Áskirkju kemur saman til helgi- halds í kirkjubyggingunni, sem enn er ekkifulllokið. Eftir guðsþjónustuna verður Safnað- arfélag Ásprestakalls meö kaffisölu í Norðurbrún 1. Þá mun Hafliði Jónsson garðyrkjustjóri lýsa fyrirhuguðu um- hverfikirkjunnar. Höfum fengið nýja línu í bólstruðum rúmum með útvarpi, síma og snyrti- borði. Opið lauqardaq kl. 10—16 oqsunnudaq kl. 14—17. Sími 77440. STERK OG STÍLHREIN Borð og stólar i öilum staarðum og geröum. AHs kyns litir og áterð, allt eftir eigin vali.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.