Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1983, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1983, Blaðsíða 9
DV. LAUGARDAGUR X. OKTOBER1983. Laugardags- plstill Vinátta við þetta f át æklega kvikindi , ,Þaö er upphaf þessa máls, aö við undirrituö eldri hjón, til heimilis að Fossvogsbletti 45 viö Sléttuveg í Reykjavík, höfum undanfarin 2 ár haldiö hundtík eina, mórauöa og gamla nokkuð.” Þannig hefst frægt bréf Steins Steinars og Asthildar konu hans til borgarstjórans í Reykja vík 1957. I ljósi síðustu atburöa er hollt aö h'ta ögn nánar á þetta bréf. Þau hjón segja í bréfinu að vel sé þeim ljóst aö „slflct uppátæki” og að halda hund stríði á móti lögum og rétti bæjar- félagsins. „En allt um þaö höfum viö, svo sem oft vifl verða, bundið inoldcum kunningsskap og jafnvel vin- áttu viö þetta fátæklega kvikindi, svo og þaö viö okkur, eftir því sem næst verður komizt.” Steinn Steinarr og hundahaldið Bréfið heldur áfram orörétt: „Nú höfum viö síðustu daga orðið þess greinilega vör, aö æðri máttar- völd hyggjast láta til skarar skríöa gegn hundtík þessari, og sjáum viö ekki betur en að í nokkurt óefni sé komiö. Þess vegna spyrjum viðyöur, herra borgarstjóri, hvort þér getiö í krafti embættis yðar og þó einkum af yðar snotra hjartalagi veitt okkur nokkra slflca undanþágu frá laganna bókstaf, að viö megum herbergja skepnu þessa, svo lengi henni endist aldur og heflsa. Viö viljum taka þaö skýrt fram, aö tíkin er hógvær og heimakær, svo einstakt má kalla nú á tímum. Hún er sérlega meinlaus af sér, og köllum viö það helzt ljóö á hennar ráöi, hvílík vinahót hún auð- sýnir öllum, kunnugum sem ókunn- ugum. En kannski veit hún betur en viö, hvaö viö á í slíkum efnum, og skal ekki um það sakazt.” Komi sór upp skoðun fíjótiega Hundahald er ekki nýtt vandamál í Reykjavík. Bréf skáldsins ber meö sér aö „æöri máttarvöld” hafi haft af því áhyggjur 1957 og sjálfsagt eru til eldri heimildir. Allir borgarfulltrú- arnir í Reykjavík voru spurðir að því hér í blaöinu fyrir helgina, hver af- staöa þeirra væri til hundahalds í höfuðborginni. I ljós kom, aö þeir skiptast mjög í tvo hópa í máli þessu. Engin flokkslína viröist þar ráö- andi nema helzt hjá Alþýðubanda- lagi. Borgarstjóri vill ekki láta í ljósi skoðun sína, eflaust til að hafa ekki áhrif á nefnd sem vinnur að úttekt þessara mála á vegum borgarinnar. Tveir pólitíkusar svara spumingu DV þannig að ekki verður ráöið hvort þeir eru með eöa á mótí. Væri ekki úr vegi fyrir þá aö fara aö koma sér upp skoðun fljótlega. Atburðurinn á Framnesveginum um síðustu helgi mun draga dilk á eftir sér. Borgar- fulltrúar þurfa aö taka af skarið fljótlega. Umönnun sem ungabörn Lögreglan stóö í öllum aðalatriö- um rétt að verki við Framnesveginn. Ur því sem komiö var, kom vart annaö til greina en aö aflifa hundinn sem uslanum haföi valdiö. Hur.da- vinir hafa bent á, að eigendur hunda veröi aö átta sig á því, aö hundur sé einn f jölskyldumeölimur til viðbótar. Þeir þurfi sérstaka umönnum oft a tíöum sem ungaböm væm. Þegar hundar hagi sér eins og var í því til- viki sem hér er gert aö umf jöllunar- efni, sé það ekki sízt eigendunum að kenna. En hvemig á aö tryggja að hundaeigendur fari sómasamlega með sín dýr, þjálfi þau og ali eins og nauðsynlegt er taliö? Á Félagsmála- stofnun að fylgjast með því? Fá menn hundasálfræöing inn á gafl hjá sér vikulega? Á aö banna hundaeig- endumaödrekka? Dálagleg og hávaðasöm Málið varöar marga. Hundfróðir menn hafa slegið því fram að fjögur til fimm þúsund hundar séu í Reykja- af nauðsynlegri kostgæfni en þorri manna heldur að hundurinn sé leik- fang. Láðst hefur aö minnast á þá ónáttúm að kenna hundum allskonar kúnstir mannanna. Víst þurfa dýrin að lúta aga. (Agi verður aö vera í hemum, sagöi Svejk.) Hitt er svo út í hött aö láta hunda standa á aftur- löppunum, rétta fram framfót (hönd?) ogsegja „næstúsí jú”. Steinn Steinarr og málfarið Bréf Steins Steinars og Ásthildar er um fleira merkilegt en efni sitt. Þaö er skrifað á auðskiljanlegu máli og má vera mörgum lærdómsríkt að þvi leyti. Bréf til yfirvalda þurfa ekki að vera á samansúrmöu stofnana- máli þótt yfirvöld svari gjarnan í þeim stíl. Efni bréfsins kemst ekki síður til skila þótt það sé skrifað á al- mennu máli. Leiftrandi húmor skemmir auövitað ekki fyrir þótt ekki sé hægt að gera þá kröfu til fólks almennt. Þvímiður. Annars er hér nokkur vandi á ferö. Við erum iöulega skikkuö til aö skrifa yfirvöldum bréf út af öllu mögulegu. Mál em kannski ekki tek- in fyrir nema áöur hafi verið skrifað bréf. Sumir eiga svo erfitt meö að manna sig upp í bréfaskriftir og eru illa til þess lagaöir aö eölisfari, aö þeir láta frekar dankast heldur en aö reyna bréflega leiöréttingu. Oft er þaö svo, aö yfirvöld mættu að ósekju taka viö beiðnum okkar án þess að á þeim sé mjög formlegur blær. Sá gullni Því er ekki aö neita að bréfaskrift- ir em oft nauösynlegar. Þannig þarf til dæmis að vera hægt aö sjá af bréf- um hvaöa meðferð hliðstætt mál hefur fengið áður. Annars væri hætta á að jafnræðis væri ekki gætt. Bréfa- skriftir geta sem sagt komið í veg fyrir handahófskenndar ákvarðanir. A móti kemur svo, aö kerfiö verður með þessum móti þyngra í vöfum — skilvirkni stjórnsýslunnar minni — eins og þaö mundi heita á hátíðlega málinu. Þarna verður gullni meðal- vegurinn að gilda. Á mannamáli Hin hliðin á þessu máli er orðalag á ýmsum skilaboöum yfirvalda til almennings. Kansellístíllinn er óþarfur þegar fólkið í landinu á i hlut. Það er raunar sjálfsagt og eðli- legt að aflar slíkar orðsendingar séu á mannamáli. Ef svo væri er víst, að ónæði í ráðuneytum og víðar mundi minnka verulega. Ekki yrði þá nauð- synlegt að fá frekari skýringar. Bréf sem opinberir starfsmenn senda hver öðrum er hins vegar allt í lagi að hafa á flóknu og erfiðu máli. Þá geta þeir innbyrðis skemmt sér við að ráða í raunverulegt efni bréfanna. Mun þaö gera lund þeirra léttari og skap betra þegar við komum með venjulegu bréfin okkar. Steinn Steinarr og Gunnar Thoroddsen Gunnar Thoroddsen var jarösung- inn í gær. Mikilhæfur stjómmála- maður um hálfrar aldar skeið er all- ur. Einhver síðustu opinberu afskipti Gunnars Thoroddsen af sviptingum í heimi stjórnmálanna voru nokkrum dögum fyrir andlát hans. Fjallað var um sparnaðartillögur ríkisstjómar- innar. Gunnar lagði þá áherzlu á, í samtali við DV, aö hið mannlega sjónarmið yrði ávallt að fá aö njóta sín. Og Gunnar Thoroddsen var ein- mitt borgarstjórinn sem fékk bréfið frá Steini Steinarr. Einhvem pata virðist skáldið hafa haft af hugmynd- um Gunnars um mannleg sjónarmið. Hann biður um undanþágu og vonast til að herra borgarstjóri geti veitt hana í krafti embættis síns en”... þó einkum af yðar snotra hjartalagi”. -óm vík þótt aðeins séu á skrám hunda- vinafélaga lítið brot af þeirri tölu. Ef gert er ráð fyrir að f jögurra til fimm manna fjölskylda sé um hvem hund kemur í ljós að 20 þúsund manns hafa hér hagsmuna að gæta fyrir hönd hunda sinna. Má sá fjöldi verða að dálaglegri göngu og hávaða- samri, ef hundarvæm með. Nú er það svo, að sá sem þetta ritar hélt um nokkurt skeið hund á Óskar Magniis»<son fréttastjórl heimili sínu. Sá var af labradorgerð, „hógvær og heimakær”. Auk hans voru undir sama þaki „herbergjað- ir” þrír kettir, dálítiö af silfurskott- um auk óbreyttra, uppréttra fjöl- skyldumeðlima. Og sannast sagna var ekki auðvelt að koma auga á kátínu hundsins á þessum heimavelli mannsins og erfitt að sinna honum í erli dagsins eins og nauðsynlegt var. Hann tilheyrir nú fjölskyldu sem getur sinnt honum almennilega. Varla er unnt aö kalla undirritaðan óvin dýranna þótt hann setji fram þá skoðun, í ljósi þess sem að framan er sagt, að hundar hafi lííið aö gera i þéttbýli. Einstaka menn sinna þeim

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.