Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1983, Síða 11
DV. LAUGARDAGUR1. OKTOBER1983.
ii
heimilinu aö hún skaut skjólshúsi yfir
atvinnulausa unga leikara og þeir
fengu aöstööu hjá henni til aö sýna
grínleikrit um stjörnumar frægu á
Broadway. Þaö varö staönum raunar
til framdráttar, því aö stórleikararnir
vildu sjá gríniö um sjálfa sig og komu
hver af öörum í Palsson’s: Elísabet
Taylor, Raquel Welch, Liv Ullmann. ..
og stykkið þótti svo fyndiö aö nú er
veriö að setja þaö upp í Toronto og San
Francisco.
Nokkru eftir aö Sigþrúður veiktist
fór hún til systur sinnar í New York, í
og með til aö leita sér lækninga. Upp úr
því fór hún á elsta listaskóiann í New
York, Arts Students League.
„Eg held það hafi veriö fyrsti skól-
inn, þar sem þeir hleyptu inn konum á
sínum tíma... mjög frjálslegur ...
ódýr. .. fólk borgaði mánaðarlega og
gat verið í skólanum endalaust..
sumir voru haröfullorönir og voru bún-
ir að vera þar mestan hluta ævinnar. ”
VIÐTAL
Inga Huld
Hákonardóttir
, ,Þaö getur ekki veriö! ”
„Jú, og ein fyrirsætan haföi unniö
þar í næstum fimmtíu ár og sat enn
fyrir nakin. . . . hún þekkti alla gömlu
gauranaílistinni.”
Sigþrúöur gat ekki fengið námslán út
á þennan skóla svo að hún skipti yfir á
School of Visual Arts og lauk þaðan
B. A. prófi f jórum árum síðar.
I lyftu upp á
elleftu hæð
Mörgum finnst New York skelfileg
glæpastía. „Varekkierfittaðbúaþar
og vera bundin við hjólastól?”
„Nei, neL Lyftumar í stórhýsunum
eru góöar og mjög víöa kemst maður
beint af gangstéttinni inn í húsin. ..
ekki allir þessir þröskuldar og tröppur
eins og í Reykjavík. Fólkið er almenni-
legt.. . sérstaklega inni á Manhatt-
an. . . og í vor komu tvö hundruð stræt-
isvagnar með lyftum fyrir hjólastóla á
göturnar . .”
„En er ekki umferöin voðaleg? ”
„Nei, ég fór oftast eftir sjálfum göt-
unum. Þar komst ég hraöar áfram en á
gangstéttunum.”
Hún keypti liti og teikniefni í afslátt-
arverslun á elleftu hæð í skýjakljúf við
Park Avenue og kom þar oft.
Þar kynntist hún manninum, sem
átti eftir að veröa faðir Sunnu Guörún-
ar.
„Hann vann á tólftu hæö í þessu húsi.
.. einn dag ... þegar við vorum sam-
ferða i lyftunni spuröi hann mig hvort
ég væri fædd í bogmannsmerkinu. . .
sagðist svo oft hafa séö mig þjóta eins
og ör eftir götunum.. . það kom í ljós
aö hann átti heima í 25. stræti, en ég
bjó í 24. stræti. . . ég haföi samt ekki
tekið eftir honum fyrr. . .”
„Og ertu fædd í bogmannsmerk-
inu?”
„Nei. . . nokkrum klukkustundum
áður, seinast í sporðdrekanum. . held
ég sé mest sporödreki. . . er meö fimm
stjömur í því merki. . .”
Svartur sólargeisli
Það varö talsvert uppistand þegar
þaö fréttist heim í litlu Reykjavík aö
Sigþrúður ætti von á barni meö blökku-
manni.
„Kveiðstu fyrir því aö eignast barn-
iö?”
,,Eg var aldrei hrædd um aö ég gæti
ekki hugsaö um þaö sjálf. . . en ég var
hrædd viö þaö þjóöfélagslega.. . fólk
yröi hneykslað á því aö ég skyldi yfir-
leitt veröa ófrísk og svo aö bamið yröi
litaö...”
„Var það ekki frekar eldra fólkið
sem varö f elmtri slegið? ”
„Nei, líka yngra. . . minnsta kosti
sumir.. .”
„Hvaö sögöu læknarnir? ”
„Þeir voru fínir. . . vildu bara svo
mikla peninga.. . þess vegna kom ég
hingað heim háófrísk til aö fæða...
heföi eitthvað boriö út af, til dæmis
þurft keisaraskurö þá hefði þaö orðið
svo svimandi dýrt í New York. .. en
svo gekk allt eins og í sögu...”
„Var þér nokkum tíma ráölagt aö
láta stööva meögönguna ? ”
„Þaö kom fyrir.. andstaöan var
mikil. .. eldur og brennisteinn. . en
þegar barnið var fætt þá elskuöu þaö
allir.. . fólk sá aö hún var eins yndis-
leg og öll önnur lítil börn. . .”
Lesandanum hefur þegar hér er
komiö eflaust oröiö hugsaö til leikrits-
ins Svartur sólargeisli eftir Ásu Sól-
veigu sem sýnt var í sjónvarpinu fyrir
þó nokkram áram. Sigþrúður sá þaö
ekki en hefur heyrt talað um þaö:
„Var þaö i því sem konan sagöi:
„Hvaö eigum viö aö gera ? Barnið kem-
ur til meö að tala útlensku. ”
Sunna Guörún sefur ennþá. Hún er
viö bestu heilsu, borðar vel og sefur
vel.
„Þaö geröist dálítiö sniöugt um dag-
inn. . . frændi minn eignaðist barn. . .
svo var sonur hans spurður: Hvernig
finnst þér litla systir? ...Hinn sagöi,
meö vonbrigðahreim: Æ, hún er
hvít. . .”
Mínar myndir eru
ekki smáfríðar
„Hvemig veröur f ramtíöin? ”
„Eg veit það ekki. . . en mér finnst
skemmtilegt aö það sé ekki allt í föst-
um skorðum fyrirfram. . . ég hef ekki
enn látið senda mér dótið mitt heim frá
New York. . .”
Hún heldur aö svo kunni aö fara aö
Sunna Guðrún alist upp á Islandi.
,,En hún þarf líka aö geta verið hjá
fööur sínum og kynnst hans fólki, hans
veröld.”
Faöir Sunnu hefur staðið í ströngu í
baráttu á sínum vígstöövum. Hann
stofnaöi fyrsta alþjóðatímaritið um list
blökkumanna, Black Creation, er s jálf-
ur ljósmyndari. En voldugir aöilar í
hópi hvítra manna vora óhressir meö
þetta framtak hans og tókst aö stööva
útgáfuna. Meöal annars var brotist inn
hjá honum og allar filmur hirtar, lífi
hans var ógnað og öðran hótunum
beitt.
Og meðan Sigþrúður bíöur þess aö
sjá hvort örlögin ætla henni aö snúa
aftur til New York þá unir hún sér best
viö málverkin í bílskúmum.
„Þá líður mér best. . . þá skiptir lík-
aminn engu máli.. . þá er ég á réttu
bylgjulengdinni. . .”
Henni finnst mest gaman aö gera
stór olíumálverk. „Ýmsir karlmenn
sem ég þekki segja viö mig: Hvemig
getur staöið á því aö þú málar svona
sterkt og djarft . . . þú sem ert bæði
kona og lömuð? Einn þeirra bætti viö:
Yfirleitt föndra konur, eru í grafík og
fíngerðari myndum.. . en mínar
myndir eru ekki smáfríðar.. . og mér
finnst frelsið meira í olíumálverk-
inu.. . þegar mynd er komin upp á
vegg undir gleri f innst mér eins og búiö
sé aö loka hana inni í pakka. .. missir
alltlíf einhvem veginn.. .” -ihh.
aagurinn
Sunnudagurinn 2. október næstkomandi er
árlegur merkja- og blaðsöludagur SÍBS.
Merki dagsins kostar 40 krónur og blaðið Reykjalundur 60 krónur.
Merkin eru númeruð og gilda sem happdrættismiðar. Vinningur er
vöruúttekt að eigin vali fyrir 50.000 krónur.
Sölubörn, komið kl. 10 árdegis. Nú fáið þið 8 krónur fyrir að selja hvert
merki og 12 krónur fyrir blaðið.
Foreldrar, hvetjið börn ykkartil að leggja góðu málefni lið.
AFGREIÐSLUSTAÐIR MERKJAOG BLAÐA í REYKJAVÍK OG NÁGRENNI:
SIBS, Suðurgötu 10, sími 22150 Mýrarhúsaskóli Melaskóli Austurbæjarskóli Hlíðaskóli Álftamýrarskóli Hvassaleitisskóli Breiðagerðisskóli Vogaskóli Árbæjarskóli Fellaskóli Breiðholtsskóli Hólabrekkuskóli Ölduselsskóli Seljaskóli Laugateigur 26, s. 85023
KÓPAVOGUR: GARÐABÆR: H AFNARFJÖRÐUR:
Kársnesskóli Flataskóli Breiðvangur 19
Kópavogsskóli Lækjarkinn 14
Digranesskóli Reykjavíkurvegur 34 Þúfubarð 11