Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1983, Blaðsíða 14
14
DV. LAUGARDAGUR1. OKTOBER1983.
ROKKSPILDAIM________ROKKSPILDAIM ROKKSPILDAN
Pax Vobis:
í fararbroddi
breytinga í tón-
llst arheiminnm
Hljómsveitirnai' Japan, Simple
Minds og Joy Division hafa að
undanfömu mótað nýja línu í rokk-
tónlist. Hún gæti kallast þung ný-
rómantík, eða alvarlega hliðin á ný-
rómantíkinni. Afgangurinn af ný-
rómantíkinni er mestan part msl
eins og Spandau Ballet eða
Kajagoogoo. Ásamt þýskum tölvu-
hljómsveitum hafa þrjár
fyrstnefndu hljómsveitirnar verið
fremstar í nýsköpun rokktónlistar
eftir 1980.
Islenskir hljómlistarmenn þeir
sem borið hafa nýbylgjuna uppi,
hafa hingað til aöallega pælt í
pönkinu, hljómsveitum eins og Sex
Pistols, Clash, Crass og Siouxsie &
the Banshees. Nú virðist nokkur
stefnubreyting vera á leiðinni,
ýmsar hljómsveitir, þ.á m. Pax
Vobis, hafa tekið hina nýju hljóma
upp á arma sína. Bara-flokkurinn
hefur lengi pælt í þessarri tegund
tónlistar og náð miklum árangri, en
hann hefur verið fyrir norðan og lítt
áberandi hér fyrir sunnan.
Pax Vobis virðist vera dæmigerö-
asta hljómsveitin fyrir þá breytingu
sem smám saman hefur þróast í
músíkinni og er nú að koma upp á
yfirborðið. Hljómsveitir eins og
Sonus Futurae, Frakkamir, Kukl,
Með nöktum og Mogo Homo blanda
þessum stíl inn á mismunandi hátt
og flytja einnig mjög áhugaverða og
áheyrilega tónlist. Sem sagt, það er
mikið líf í tónlistinni, auk þess sem
hljómsveitir eru nú aftur orönar
eftirsóttar á skemmtistaði, og bætir
það aðstööu þeirra til muna.
Við birtum hér einn af textum Pax
Vobis ásamt mynd af þeim.
Irefill
I refill my heart with flesh and blood
Something’s bursting out in my
imagination
check me inside
I’velost my pride
Something I build
For a day and night
Just a snapshot of my fantasy
Think I’m losing my will to live in
nation
Bring out the light
It’s always night
I can’t get clear
Of my thinking fight
To live my live it’s just a mess an slot
But I go on in this blind sensation
Aðspurðir að því hví þeir semdu
textana á ensku svöruöu meölimir
Pax Vobis því til að þeir heföu reynt
að semja á íslensku, reyndar gengið
ansi langt í því, en það hefði bara
ekki gengið. Þeir mundu þó reyna
með öllum ráðum að koma því til
skila sem þeir hefðu að seg ja.
Fréttir af
V oiibrigðum
og Ikarusi
Þótt nýrómantíkin sé að koma
upp á yfirborðið núna er ekkert
lát á pönkinu.
Það er bráðferskt.
Tvær helstu pönkhljómsveitirn-
ar, Ikarus og Vonbrigði, eru
báðar á fullu, Ikarus að bræða
með sér gerð nýrrar plötu og
Vonbrigði að koma undir sig fót-
unum erlendis.
Vonbrigði munu á næstunni
spila á norrænni rokkhátíð i
Stokkhólmi, svipuðu fyrirbæri
og Tappi tíkarrass spilaði á fyrir
ári. Hljómsveitin hefur einnig
náð samningi við hljómplötu-
fyrirtækið Shout í Lundúnum um
útgáfu á Kakófóníunni í Bret-
landi.
Eins og áður segir er Ikarus að
bræða með sér gerð nýrrar
plötu, en ekkert er víst um það
ennþá. Tolli Morthens er á för-
um tU Þýskalands, en hljóm-
sveitin mun líklega starfa áfram
þrátt fyrir það.
Med nöktum spila á Borginni:
Sefnt spila sumir
en spila þó
Hljómsveitin Meö nöktum er skip-
uð þeim Magnúsi Guömundssyni
söngvara, Birgi Mogensen bassaleik-
ara, Halldóri Lárussyni trommuleik-
ara, Ágústi Péturssyni gítarleikara
og Helga á hljómborö.
Þessi hljómsveit hélt hljómleika á
Hótel Borg sl. fimmtudagskvöld.
Meiripartur kvöldsins fór í biðina.
Eg kom í húsiö um kl. 22 og var þá
hljóðprufa enn í gangi. Eg var svo
heppinn að hitta ýmsa kunningja
mína og leiddist því ekkert tiltakan-
lega, en þegar klukkan var orðin tólf
heyrði ég á ýmsum að biðin var orðin
nokkuð löng.
Tuttugu mínútur yfir tólf kom
hljómsveitin loks upp á svið. Meðlimir
hennar voru klæddir dökkum buxum
og hvítum skyrtum, buxurnar náðu
frá tám og upp á axlir. Á veggnum á
bak við snerist marglitur hringur.
Alls ekkert óþægilegt.
Hljómburöur var góður, flest
heyrðist vel nema synthesizerinn hjá
Helga. Einkennilegt vandamál, yfir-
leitt heyrist ekkert í hljómborðum
íslenskra hljómsveita. Eg veit ekki
til hvers er verið að hafa þau með.
Músíkin var góð, gott rokk af Þeys-
ættinni, og hljómsveitin hafði meira
að segja tvö mjög grípandi !ög á pró-
gramminu, þau voru spiluö síöast.
Áhorfendur, sem voru töluvert
margir, klöppuðu hljómsveitina upp.
Ekki er hægt að segja annað en að
Með nöktum hafi farið vel af stað.
Söngur Magnúsar gefur henni
augljósan Þeysblæ, en það er bara
gaman. Þetta sánd er mjög þróað, ég
vil kannski segja séríslenskt,
trommuleikarinn Halldór spilar
kannski svolítið svipað og Sigtryggur
og er það gott. Það sem mér fannst
vanta var fjörið, spontanítetið og
mistökin. Hljómsveitin er mjög vel
æfð, svo vel að maöur hefur á tilfinn-
ingunni að þetta sé einum of gott.
Kannski hefur taugaóstyrkur gert
það aö verkum að hljómsveitin var
stíf, ég er viss um að það lagast næst.
I heild var þetta mjög góður
konsert.
Vonbrigði, spá í útlönd.