Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1983, Qupperneq 20
20
DV. LAUGARDAGUR1. OKTOBER1983.
Útför dr. Gunnars Thoroddsens, fyrrverandi forsætisráð-
herra, var gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík í gær. Athöfnin
var virðuleg en jafnframt látlaus og hlýleg. Kirkjan var þétt-
setin fólki, auk þess sem nokkur mannfjöldi var saman kom-
inn fyrir utan hana. Athöfninni var og útvarpað beint um allt
land.
Auk fjölskyldu og ættingja dr. Gunnars voru viðstaddir
athöfnina, meðal annarra, forseti íslands, ríkisstjórn fslands,
alþingismenn, embættismenn og fræðimenn, svo og aðrir nán-
ir samstarfsmenn Gunnars og vinir.
Séra Þórir Stephensen dómprófastur jarðsöng. I minningar-
ræðu sinni lagði hann meðal annars út af áhrifamiklu kvæði
Eggerts Ölafssonar, Islands minni:
ísland ögrum skorið, fyrir skikkan skaparans;
eg vil nefna þig, vertu blessað, blessi þig
sem á brjóstum borið blessað nafnið hans.
og blessað hefur mig