Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1983, Blaðsíða 21
DV. LAUGARDAGUR1. OKTOBER1983.
21
Séra Þórir sagöi í ræöu sinni aö líf, starf og hugsjónir dr.
Gunnars hefðu verið í anda þessa kvæðis. Persóna hans hefði
öðru fremur einkennst af viljastyrk, kjarki og staðfestu.
i Dómkórinn söng við útförina undir stjórn organistans,
Marteins H. Friðrikssonar. Þá lék Gunnar Kvaran sellóleikari
einleik, lag Gunnars Thoroddsens, Melancholie. Fleiri lög
Gunnars voru einnig flutt við athöfnina.
DV-mynd: Gunnar V. Andrósson
Kistuberar við jarðarför dr. Gunnars Thoroddsens voru
nokkrir samráðherra hans úr síðustu ríkisstjórn, þeir Stein-
grímur Hermannsson, Svavar Gestsson, Pálmi Jónsson og
Friðjón Þórðarson. Auk þeirra Gunnar G. Schram alþingis-
maður, Davíð Oddsson borgarstjóri, Gylfi Þ. Gíslason, fyrr-
verandi ráðherra, og Friðrik Sophusson alþingismaður.
Dr. Gunnar Thoroddsen var grafinn í nýja kirkjugarðinum í
Gufunesi. -SER.