Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1983, Page 24
DV. LAUGARDAGUR1. OKTOBER1983.
Gulldrenguriim Cli
Hvað segja þeir nm
Charlie Mcholas?
Hér á eftir fara umsagnir nokkurra
frægra leikmanna um hvort Charlie
Nicholas muni standa sig í hinni hörðu
deildarkeppni ensku knatt-
spyrnunnar:
Steve Archibald
(Tottenham)
„Fyrir aðeins þremur árum fór ég
þessa sömu spennandi ferð til London
þegar ég fór frá Aberdeen. Að koma
suður getur verið spennandi fyrir ung-
an Skota, en það getur líka verið hætt-
um stráð fyrir „sviðsljóssjúka” ieik-
menn sem ekki geta séð við hinum
björtu ijósum London og skjótfengnum
frama. Þegar ég kom hingað fyrst var
ég skyndilega umkringdur alls kyns
„vinum”, oft auðugum, sem buðu mér
hingað og þangað og gerðu mér alls
kyns tiiboð. Með öll þessi mörk verður
pressan á Charlie gifurleg. Ég efast
um að hann skori nokkuð, eins og á síð-
asta tímabili, en fyrsta deildin á eftlr
að hjáipa honum að verða heims-
klassaieikmaður.”
Steve Archfbald.
Eamonn Bannon
(Dundee United)
„Hann mun leika gegn betri leik-
mönnum viku eftir viku, en hann hefur
sannað að hann getur skorað mörk á
hvaða styrkleika sem er. Mér þykir
leitt að sjá hann fara en maður verður
að styrkja sig fjárhagslega þegar
maður er ungur.”
Glenn Hoddle
(Tottenham)
„Með kaupum á Nicholas gæti Ar-
senal vel náö þeim hersiumun sem
vantar, en ég held að hann þurfi tima
til að koma sér fyrir og sýna ástæðuna
fyrir því að Terry Neil borgaði £750.000
fyrir hann.”
Frank McGarvey
(Celtic):
„Það verður mikil pressa á Charlie
og hann verður að sýna sitt rétta andiit
fyrir nýja félagið, en það er þannig
sem hann vili hafa það. Ég er von-
svikinn yfir þvi að hann skull vera
farinn frá Celtic, því við höfum mjög
gott lið þar. En þetta var rétt hjá
honum. Hann verður að huga að sjálf-
um sér og f járhagslegu öryggi. Ekkert
lið hefur efni á að missa mann með
hans getu, en við unnum úrvalsdeiid-
ina án hans síðast og getum það
aftur.”
David Moss.
David Moss
(Luton)
„Arsenal átti slæmt timabil síðast,
miðað við getu leikmannanna. Én nú
hafa þeir keypt Carlie Nicholas, sem
mun auka markaskorun þeirra. Ef
þeir sieppa við meiðsli ættu þeir að
vera nálægt toppnum aftur.”
Craig Paterson
(Rangers)
„Charlie getur skapað vandræði
hvar sem hann er. Hann er svo óút-
reiknanlegur. Hann á það alltaf til að
koma með eitthvað sérstakt og það eru
ekki margir sem geta það. Enskir
varnarleikmenn eru ekkert betri en
skoskir, svo ég sé ekki af hverju hann
ætti ekki að halda áfram að skora. Eini
munurinn er sá að hann mun kljást við
kunnugleg nöfn í hverri viku, sem er
ekki alltaf tilfeilið í Skotlandi.”
Craig Paterson.
Graham Rix
(Arsenal)
„Það getur verið að það þurfi meira
en einn stórleikmann í viðbót til aö við
verðum meðal verðlaunailðanna aftur,
en kaupin á Charlie eru stórt skref í
rétta átt. Hann er eftirsóttasti leik-
maður sem hefur komið frá Skotlandi
síðan Kenny Dalglish kom þaðan.”
Sá leikmaður sem hefur verið eftirsóttastur í ensku
knattspyrnunni undanfarin ár er Charlie Nicholas — 21
árs Skoti sem leikur nú með Arsenal. Lundúnafélagið
keypti hann á 750 þús. pund frá Celtic í sumar og vakti
þá mikla athygli að Nicholas hafnaði tilboðum frá
Liverpool og Manchester United.
Snemma beygist krókurínn Frægð og fótbrot
Charles Nicholas er fæddur í
Glasgow í Skotlandi þann 30. desem-
ber 1961. Þeir voru margir sem
spáðu honum miklum frama í knatt-
spyrnunni strax á unga aldri og
ekki að ástæðulausu. Þegar hann var
tiu ára spilaði hann fyrsta leik sinn
fyrir skólalið St. Colombia Iona skól-
ans. Hann gerði sex mörk í þeim leik.
1 þeim næsta var hann færður aftur í
stööu bakvarðar. Það stoppaði hann
ekki því hann gerði þrjú mörk í þeim
Charlie byrjaði meö varaliðinu og
skoraði nokkur mörk. Sjálfstraustið
óx ásamt með getunni en hann eyddi
samt sínu fyrsta keppnistímabili
með varaliði Celtic. Fyrsti leikurinn
með aöalliðinu kom svo í keppnis-
ferðalagi um Evrópu sumarið 1980.
Charlie sýndi góða frammistöðu og
hélt sæti sínu í aöalliðinu. Hann geröi
svo 28 mörk á næsta keppnistímabili
r ' *
Erhann
750 þits.
pnnda
virði?
Er einhver
knatt-
spvriiu-
maður
það?
að nú væri keppnistimabilinu lokið
fyrir mig. Og þegar vikumar liðu fór
ég að finna fyrir þeirri hræðilegu til-
finningu sem sá skilur aðeins sem
hefur íþróttir að lifibrauði og er í
gifsi.
Brian Scott,læknir liösins, hannaði
leik. Brátt voru þjálfarar
skólaliða í borginni famir aö biðja
um að Charlie yrði ekki hafður með í
leikjunum gegn þeim svo leikurinn
jafnaðist og liö þeirra ætti mögu-
leika. Næsta ár þegar Charlie var
orðinn 11 ára gerði hann 72 mörk á
keppnistímabilinu — sem vamar-
leikmaður.
Ceftic
Það fór ekki hjá því aö eftir honum
yrði tekið og brátt var hann farinn að
leika meö Celtic Boys Club sem er
þrátt fyrir nafnið algerlega óháð
Celtic FC. Það var frændi hans,
Thomas Nicholas, sem kom Chariie
að hjá Celtic Boys Club og þaöan
varð ekki aftur snúið. Árið 1979 upp-
götvaði Jock Stein, þáverandi
frkvstj. Celtic FC, hann og fékk hann
til reynslu til félagsins. Það var svo í
mars 1979 sem Charlie Nicholas
skrifaði undir fyrsta samning sinn
sem atvinnuknattspyrnumaður. „Ég
var Celtic aðdáandi sem strákur og
ég horfði á hetjuna mína Kenny
Dalglish frá pöllunum. Hann var sá
leikmaður sem ég vildi likjast sem
mest, en samt er ég ósammála þeim
samanburði sem er gerður á okkur
núna. Hann er ennþá bestur í mínum
augum og ég á langa leið fyrir hönd-
um ef ég á að ná honum.”
Fieiri sýna áhuga
En Celtic var ekki eina liðið sem
sýndi áhuga á Charlie Nicholas. Þeg-
ar hann var 15 ára, árið 1978, var
hann til reynslu hjá Ipswich og líkaði
svo vel að hann var staöráðinn í að
koma aftur árið eftir. Honum var
einnig boðinn samningur hjá öðru
ensku liði, en það var Wolverhampt-
on Wanderes, en hann hafnaði því
boði. .JCannski var það vegna þess
að ég og Mark Trenor (nú hjá Clyde-
bank) vorum eltir um götur Wolver-
hampton og okkur hótað af óláta-
gengi í borginni.” Patrick Thistle
sýndi einnig áhuga en þá kom Celtic
meö sitt tilboð og allt annað gleymd-
ist.
eins og áður sagði. Næsta leiktímabil
(’81—’82) byrjaði ekki sem verst og
Nicholas hafði skorað 16 mörk fyrir
Celtic þegar hann fótbrotnaði í leik
með varaliðinu gegn Morton í janúar
’82.
„Ég man eftir sársaukanum og
man eftir þeirri ægilegu tiifinningu
meðan hann var í gifsi og smám
saman fór hann að styrkjast.
„Ég er ennþá að finna fyrir hagn-
aðinum frá þessu timabili. Hvert ein-
asta andartak var þess virði vegna
þess að ég harönaði mikið og er
kannski örlitið hugrakkari í víta-
teignum.”