Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1983, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1983, Blaðsíða 34
34 TO sölu einbýlishús á Raufarhöfn og Ólafsvík Tilboö óskast í eftirfarandi húseignir: Ásgötu 10, Raufarhöfn. Stærö hússins er 367,8 m\ Húsið verður til sýnis í samráði við sr. Guðm. Örn Ragnarsson, Raufarhöfn. Ennisbraut 14, Ólafsvík. Stærð hússins er 571 m*. Brunabóta- mat er kr. 1.731 þús. Húsið verður til sýnis í samráði við sr. Guðm. Karl Ágústsson, Olafsvík. Tilboðseyðublöð liggja frammi í ofangreindum húseignum og á skrifstofu vorri. Kauptilboð þurfa að hafa borist skrifstofu vorri fyrir kl. 11.00 f.h. miðvikudaginn 12. október nk. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 Úrval LESEFNI VIÐ ALLRA HÆFI ÁSKRIFTARSÍMINN ER 27022 Nauðungaruppboð sem auglýst var í 66., 68. og 70. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á eigninni Norðurvangi 5, Hafnarfirði, þingl. eign Kareis Karelssonar, fer fram eftir kröfu Ásgeirs Thoroddsen hdl., Tómasar Gunnarssonar lögm. og Einars S. Ingólfssonar hdl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 5. október 1983 kl. 14.30. Bæjarfógetinn í Hafnarf irði. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 102., 108. og 112. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á eigninni Lyngási 11, Garðakaupstað, þingl. eign Elliða N. Guðjóns- sonar og Erlu Þorsteinsdóttur, fer fram eftir kröfu Iðnþróunarsjóðs og innheimtu ríkissjóðs á eigninni sjálfri miðvikudaginn 5. október 1983 kl. 15.00. Bæjarfógetinn í Garðakaupstað. ' / Nauðungaruppboð sem auglýst var i 102., 108. og 112. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á eigninni Esjugrund 25, Kjalarneshreppi, tal. eign Sigurgeirs Bjarna- sonar, fer fram eftir kröfu innheimtu rikissjóðs á eigninni sjálfri miðvikudaginn 5. október 1983 kl. 16.15. Sýslumaðurinn i Kjósarsýsiu. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 54., 59. og 62. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á eigninni Kjarrmóum 38, Garðakaupstað, þingl. eign Byggung sf., fer fram eftir kröfu Gísla Baldurs Garðarssonar hdl. á eigninni sjálfri þriðjudaginn 4. október 1983 kl. 13.30. Bæjarfógetinn í Garðakaupstað. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 54., 59. og 62. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á eigninni Bjargartanga 17, neðri hæð, Mosfellshreppi, þingl. eign Stefáns Fjeldsted, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri þriðjudaginn 4. október 1983 kl. 15.45. Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 54., 59. og 62. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á eigninni Norðurtúni 6, Bessastaðahreppi, þingl. eign Andreasar Berg- mann, fer fram eftir kröfu Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, Guðjóns Steingrímssonar hrl., Péturs Guðmundarsonar hdl., Jónasar A. Aðal- steinssonar hrl. og Jóns Magnússonar hdl. á eigninni sjálfri þriðjudag- inn 4. október 1983 kl. 16.45. Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu. DV. LAUGARDAGUR1. OKTOBER1983. Drauma- borgin Feneyjar (eda hltt þó heldur) FeNEYJAR hafa sennilega lengi haft yfir sér einhvem ævintýraljóma. Ljóma sem öðru fremur tengist bygg- ingar- og málaralist og ógleymdum Feneyj a kristalnuin. Kristalnurn segi ég og djúpt í huga mér blundar bemskuminning um brot- hljóö og síðan örvæntingarfullt óp í miðaldra komu: „O, guö, Feneyja- kristallinn minn”. A eftir fylgdi löng og harmþrungin skammarræða svo að mér skildist að hér hefði ég gerst sekur um ófyrirgefanlegan glæp. Og enn þann dag i dag hefur eigandi þessa fyrrverandi kristalsvasa ekki fyrirgef- iö mér til fulls. Siðan þá hefur alltaf bú- ið í mér geigur við Feneyjakristal. Um leið hef ég ætíð hugsaö með ótta- blandinni virðingu um þennan stað þar sem framleiddir eru svona verðmætir skrautmunir. Nu I SUMAR, 18 árum efUr óhappið hjá frænku minni, var ég skyndilega kominn aö þessum stað, Feneyjum. Eg fylltist því tilhlýðilegri eftirvæntingu þegar strætisvagninn bar mig eftir brúnni löngu sem tengir Feneyjarnar við f astalandið. Akveðinn í aö upplifa þessar undra- eyjar til fulls skellti ég mér stefnu- laust, bara eitthvaö í áttina burt frá Rómartorginu. Nú skyldi allt skrautið skoöað. Byggingamar, listaverkin í kirkjunum og síðast en ekki síst Fen- eyjakristaUinn. Meira að segja hugð- ist ég kaupa sUkan kristal handa minni heittelskuöu. Slík gersemi hlyti að sýna henni hvern hug ég bæri til hennar. Þar sem þetta á ekki að vera venju- leg ferðamannasaga ætla ég að sleppa öUum tölum um hvaö menn eigi aö skoöa og eigi aö gera. Um það efni hafa veriö skrifaðar langar bækur og hef ég engu við þá upptalningu að bæta. Fremur ætla ég að nefna hvaö menn eigaekkiaðgera. ^JeM FYRR sagði stefndum við, ég og mín heittelskaða, strax stefnu- laust út í það hverfi sem næst Uggur Rómartorginu. Þrátt fyrir þá fyrir- hyggju að fjárfesta í fagurbleíku túr- hestakorti kom það okkur að iitlu haldi. Annaðhvort er aö hafa almenni- legt kort eða bara sleppa því. Við stefndum bara beint út í óvissuna, ölv- uð af töfrum smásíkjanna, þröngra húsasunda og umferð smábáta um sik- in. Eftir tveggja tíma stefnulaust ráp í hádegissólinni um fáfamar íbúðar- götur og hlandlyktandi húsasund fór rómantíkin aö renna af okkur. Hún rann meö svitataumunum niður andlit okkar og gufaöi upp. Það má þvi segja að þama hafi ég aftur upplifaö gamla óttann viö Feneyjar. Hverja götuna, hvem ranghalann og hverja síkis- brúna á fætur annarri þrömmuðum við. Okkur virtist að lokum hlutimir vera farnir að renna saman i eina órofa heild. AUt virtist vera eins og engin kennileiti sjáanleg. Eg var því farinn að hugsa óæskilegar neikvæðar hugsanir í garð þessarar borgar þegar við fyrir nánast tilviljun römbuðum á ferðamannaslóðir og vorum hólpin, í bili. SJALFSOGÐU hefði mér ver- iö nær að hugsa um eigin glópsku i sambandi við kortið, en svoleiðis hugs- ar maður ekki um sjálfan sig. Við vorum semsé hólpin og fundum brátt hið merkilega Markúsartorg, þetta með dúfunum, höllunum, kirkjunni og öUum ferðamönnunum. Viö settumst niöur á útiveitingastað og þar vorum við rænd í fyrra skiptiö þennan dag. A.m.k. hef ég aldrei keypt verra hvít- vín á jafndýru verði. En þetta var lög- legt rán um hábjartan dag svo að ég sætti mig við þaö. Ráð númer eitt: Ekki setjast á fræga útiveitingastaði, a.m.k. ekki á vinsælustu stöðunum, nema fuUvissa sig um að maður eigi fyrirveigunum. Komin á Markúsartorgið ákváðum við að sjálfsögðu að skoða blessaða Markúsarkirkjuna og þá frægu altar- istöflu sem þar er. Við inngang kirkj- unnar stóð valdsmannslegur maður og fylgdist með þeim er inn fóru. Eg, fá- vís um kaþólska siði, hélt aö maöurinn væri að passa að menn færu ekki með myndavélar inn á heimiU drottins. Eg greip því tU töskunnar góðu sem kem- ur meira viö sögu seinna um kvöldið og kom myndavélinni vel fyrir niðri í henni. En sem við komum að inngang- inum stöðvar þessi brúnaþungi Itali okkur og hristir hausinn. Okkur var ekki heimUl aðgangur., JCannski maö- urinn sjái aö viö erum trúlaus eða í það minnsta ekki kaþólsk,” sagði ég en haföi auðvitað rangt fyrir mér. Hann sagði eitthvað ósldljanlegt og benti á berar axlir minnar heittelskuðu. „Hans heUagleiki þoUr ekki eggjandi naktar kvenmannsaxUr,” hefur hann sennilega sagt. En hvað um það, inn komumstviðekki. SeINNA KOMST ég aö því að þetta er siður meöal kaþólskra, a.m.k. ítalskra, að hleypa ekki axla- eða leggjaberu kvenfólki inn í kirkjumar. Það ku vera gert til að vernda þá hreinlyndu menn prestana sem af mUt- UU staðfestu hafa afneitað því sem við hinir lifum stundum Ufinu fyrir, kon- unni. Við vorum satt best að segja ekki svo óánægö með þessa frávísun. Það er nú einu sinni svo að mikið af þessum svo- köUuðu „merkilegu feröamanna- stöðum” skoðar maður aðeins af skyldurækni við feröamannahlutverk- ið, vini og vandamenn. Enda vorum við spurð margsinnis eftir heimkom- una hvort við hefðum ekki skoðað Markúsarkirkjuna og hvernig okkur hefði fundist hún. Eg veit orðið miklu meira um þetta margumrædda guðs- hús af samúðarfuUum frásögnum ann- arra heldur en ef ég hefði farið þar inn sjálfur. Svona getur maður grætt fróð- leik á ótrúlegasta hátt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.