Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1983, Síða 40
hverri
viku
Enski
boltinn í
beinni út-
sendingu?
Nú er veriö aö vinna að því aö
mánaðarlega veröi hægt aö sýna beint
einn leik úr ensku knattspymunni og
yröi hann kl. 3 á laugardögum. Ef af
þessu veröur er um að ræöa „Tips
kampe” þætti en inn í þá er skotið
fréttum úr öðmm leikjum, sem fram
fara um leið, og í lokin kemur heildar-
staðan. Þessi innskot eru mjög vinsæl
hjá þeim sem taka þátt í getraununum.
Bjarni Felixson íþróttafréttamaður
sagði í viðtali við DV að byrjað hefði
verið að kanna þetta mál strax í fyrra
er ljóst varð að skam uiavísku sjón-
varpsstöðvamar hugóust hverfa frá
notkun jarðkerfis og snúa sér að gervi-
hnöttum vegna hagstæðra samninga
við bresku póst- og símamálastjórn-
ina.
Það hefur í för meö sér að viö þyrft-
um aðeins að greiða hluta af
sendingarkostnaði upp í gervihnöttinn.
Hins vegar þyrftum við einir að bera
kostnað af móttöku en því skipta
Skandínavar með sér af því að þeir
taka á móti í einni jarðstöð og dreifa
svoumjarðkerfi.
Þegar Skam ínavar reyndu gervi-
hnattakerfið í fyrravetur notuðu þeir
m.a. Primary Path hnöttinn, en hann
er einmitt annar hnattanna sem við
höfum aðgang að. Mun P;nrni m a.
ræða um hvort unnt sé aö Skam ínavar
noti hann eingöngu við þessar út-
sendingar.
Að lokum má geta þess aö Póstur og
sími hefur lýst sig reiðubúinn til aö
veita umtalsverðan afslátt á þjónustu
sinni við móttöku ef til stendur að sjón-
varpa mörgumleikjum.
-GS.
Hlaup í Skaftá
Hlaup er nú byrjað í Skaftá. Ain
flæðir yfir bakka sína við bæinn Skaft-
árdal. Vatnsmagn var í gærkvöldi
orðið tvöfalt á við þaö sem venjulega
er. Af ánni lagði mikla fýlu og var hún
kolmórauö að lit.
Frá og með 1. október veröur áskrift-
arverð DV kr. 250,00 á mánuði. Verð
blaðsins í lausasölu veröur kr. 22,00
eintakið, nema helgarblaös kr. 25,00
eintakið. Grunnverð auglýsinga
verður frá sama tíma kr. 150,00 hver
dálksentímetri.
27022
AUGLÝSINGAR
SÍÐUMÚLA33
SAAÁAUGLÝSINGAR—AFGREIÐSLA
SKRIFSTOFUR
ÞVERHOLTI 11_____________
JJ//1 1 RITSTJÓRN
ÖOO 1 I SÍÐUMÚLA lí
Frjálst, óháð dagblað
LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1983.
Kurr í hjartasjúkfingum og stofnun félags á næsta leiti:
Hvar á að skera niður,
hverja á að skera upp ?
— gjafafé til tækjakaupa brunnið upp á verðbólgubáli
Fyrirhuguð stofnun hjartaskurö-
lækningadeildar hérlendis og yfir-
lýsingar opinberra aðila um að tæp-
ast geti af því orðið vegna f járskorts
og jafnvel sé ekki víst að haldiö verði
áfram að senda hjartasjúklinga
ótakmarkað í hjartaaðgerðir erlend-
is hefur komiö róti á hugi margra
sjúklinga sem eiga allt sitt undir slík-
um ferðum. Þykir þeim ótryggt til
þess aö vita aö nú eigi að fara að
velja úr hópi hjartasjúklinga þá sem
fá að lifa og þá sem ekki fá það. Er
stofnun samtaka þeirra í bígerð og
verður tilkynning þar að lúta-.di
væntanlega birt i næstu viku.
Að sögn Páls Sigurðssonar, ráðu-
neytisstjóra í heilbrigðisráðuneyt-
inu, er ekki neinna úrslita að vænta
um hvort hjartaskurðlækningar
verði fluttar alfarið hingað til lands
fyrr en eftir að þing kemur saman og
ljóst verður hvaða undirtektir málið
færífjárveitinganefnd.
Eins og f ram hefur komið í fréttum
DV hafa arðsemisútreikningar for-
stjóraRikisspítalanna sýnt fram á að
hjartaskurðlækningadeild viö Land-
spítalann muni skila 20 prósent aröi
á sjö árum og er þá gert ráð fyrir 70
skurðaðgerðum á ári og aö ferð
hvers sjúklings í aðgerð á erlenda
grund kosti íslenska ríkið frá 400—
900 þúsund krónur. Forstjóri Ríkis-
spitalanna vinnur nú aö nýjum
útreikningum þar sem gert er ráð
fyrir 120 uppskurðum árlega og að
sögn Þórðar Harðarsonar yfirlækn-
is munu þeir útreikningar sýna enn
meiri arðsemi.
I allri umræðu um þetta mál hefur
verið gengið að því sem vísu að
gjafafé það sem Ásbjöm Ölafsson og
Seðlabankinn gáfu væntanlegri
hjartaskurðlækningadeild fyrir 10
árum sé enn til staðar en þaö virðist
eftir öllum sólarmerkjum að dæma
hafa brunnið upp á verðbólgubálinu.
Asbjöm Olafsson gaf 11/2 milljón
gamlar krónur úr minningarsjóði
Vigdísar Ketilsdóttur og Olafs As-
bjarnarsonar. Þaö var stórfé í þá
daga en hefur legið óhreyft á banka-
bók og er í dag um 100 þúsund
krónur. Seðlabankinn gaf svipaða
upphæð en í gær reyndist erfitt að
finna hana í bókum bankans.
-EIR.
Útför dr. Gunnars Thoroddsens var gerð frá Dómkirkjunni i gær. Athöfnin þótti virðuleg en lát/aus. Sóra Þórir
Stephensen jarðsöng. Sjá einnig bls. 20og21. DV-mynd: GVA.
Birgir ísleifur Gunnarsson á ráðstef nu í Sviss
um horf ur í orkumálum og áliðnadi:
Mem eru mjög hikandi
að fjárfesta á íslandi
„Orkuverö til áliðnaðar er mjög
mismunandi i heiminum nú en það
var mól manna hér að undirboð, eins
og Kanadamenn standa nú aö, verði
úr sögunni og verðið muni jafnast
veralega á næsta áratug. Þó með
hliðsjón af fjarlægð frá hráefni og
sölumörkuðum,” sagöi Birgir Isleifur
Gunnarsson alþingismaður er DV
haföi tal af honum í Zúrich í Sviss í
gærkvöldi.
Þar var að ljúka nokkurs konar
spástefnu ráðgjafafyrirtækisins
Chase Econometrics sem er alþjóð-
legt og hefur m.a. unnið fyrir islensk
fyrirtæki svo sem Landsvirkjun.
Fundurinn fjallaði einkum um áliðn-
að, ástand og horfur í orkumálum í
Evrópu.
Birgir sagði aö menn væru hóflega
bjartsýnir og ekki væri líklegt að stór
stökk yrðu á áliðnaöi á borð við þau
sem menn voru að áforma á vel-
gengnisárunum 1979 til ’80. Búist er
við að svipuðu raunvirði fyrir ál og
þá fékkst verði ekki náð fyrr en á
næsta áratug. Þá era nú risamir sex
ekki lengur allsráðandi í álfram-
leiðslunni því að margir smáir aðilar
eru komnir til sögunnar. Þaö færist í
vöxt að áliönaður sé í eigu ríkisfyrir-
tækja.
Loks kom fram á fundinum að Is-
land er eina landið í Evrópu sem á
mikiö af ónýttri orku til orkufreks
iönaðar. Þrátt fyrir það sagöist Birg-
ir hafa fundið á viðmælendum sinum
aö þeir væra mjög hikandi við að
fjárfesta á tslandi. Annars vegar
þekktu þeir ótrúlega lítiö til landsins
og hins vegar væri hann ekki gran-
laus um að samskipti ISAL og fyrr-
verandi iönaðarráðherra renndu sín-
umstoðumundirþennanótta. -GS.