Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1983, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1983, Blaðsíða 8
DV;FÖSTUÐAGUK7. OKTOBER1983. SENDILL ÖSKAST Sendill óskast nú þegar, hálfan eða allan daginn. BJÖRGVIN SCHRAM H/F TRYGGVAGÖTU 8. Innréttingar Tökum að okkur smíöi á eldhúsinnréttingum, klæðaskápum, baðinnréttingum, sólbekkjum o.fl. Erum með teikniþjónustu, sýnishorn á staðnum. TRÉSMÍÐAVERKSTÆÐI ÞORVALDAR BJÖRNSSONAR, Súöarvogi 7, sími 86940 — kvöldsími 71118. Tilkynning frá Fiskveiðasjóði íslands Umsóknir um lán á árinu 1984 og endurnýjun eldri umsókna. Um lánveitingar úr Fiskveiðasjóöi Islands á árinu 1984 hefur eftirfarandi verið ákveöið: Vegna framkvæmda í fiskiðnaði. Engin lán verða veitt til byggingarframkvæmda nema hugsanleg viðbótarlán vegna bygginga, sem áöur hafa verið veitt lánsloforö til, eða um sé að ræða sérstakar aðstæður að mati sjóðsstjórnar. Eftir því sem fjármagn sjóðsins þar meö talið hagræðingarfé hrekkur til verður lánað til véla, tækja og breytinga, sem hafa í för meö sér bætt gæði og aukna framleiðni. Framkvæmdir skulu ekki hafnar fyrr en lánsloforð Fiskveiða- sjóðs liggur fyrir. 2. Vegna fiskiskipa. Eftir því sem fjármagn sjóðsins hrekkur til verður lánað til skipta á aflvél og til tækjakaupa og endurbóta, ef talið er nauð- synlegt og hagkvæmt. Framkvæmdir skulu ekki hafnar fyrr en lánsloforð Fiskveiða- sjóðs liggur fyirir. 3. Endurnýjun umsókna. Allar umsóknir vegna óafgreiddra lána þarf að endumýja. Gera þarf nákvæma grein fyrir hvemig þær framkvæmdir standa sem lánsloforð hefur verið veitt til. 4. Umsóknarfrestur. Umsóknarfrestur er til 30. nóvember 1983. 5. Almennt. Umsóknum um lán skal skila á þar til gerðum eyðublöðum, ásamt þeim gögnum og upplýsingum, sem þar er getið, að öðr- um kosti verður umsókn ekki tekin til greina (Eyðublöðin fást á skrifstofu Fiskveiðasjóðs Islands, Austurstræti 19, Reykja- vík, svo og í ýmsum bönkum og sparisjóðum utan Reykjavík- ur). Umsóknir er berast eftir tilskilinn umsóknarfrest verða ekki teknar til greina við lánveitingar á árinu 1984, nema um sé að ræöa ófyrirséð óhöpp. Reykjavík, 5. október 1983 FISKVEIÐASJÓÐUR ÍSLANDS Neytendur Neytendur Neytendur Meðaltal matarkostnaOar einstaklinga varhæstá Blönduósi iágúst, 3.485krónur. Heimilisbókhald DV: Matarkostnaður ein- staklinga yfir þrjú þúsund krónur —á Akureyri og Blönduósi Samkvæmt niðurstöðum í heimilis- bókhaldi DV fyrir ágústmánuð var landsmeðaltal 2.306 krónur sem þeg- ar hefur veriö greint frá. En kostnaður einstaklinga vegna kaupa á mat- og hreinlætisvörum þennan ágústmánuð var á hinum ýmsu stöðum á lands- byggðinni ákaflega mismunandi sem fyrr. I okkar bókhaldsbókum er meðaltalið lægst í ágúst á Hvolsvelli, 1344 krónur, en hæst á Blönduósi, 3.485 krónur. Taflan yfir meðaltal matar- kostnaðar á nokkrum stöðum á landinu er samkvæmt uppgjöri okkar: Meðaltal matarkostnaðar í ágúst ’83 (á einstakling) Akranes kr. 1.768 Akureyri kr. 3.056 Blönduós kr. 3.485 Bolungarvík kr. 1.978 Egilsstaöir kr. 2.534 Eskifjöröur kr. 2.019 Hafnarfjörður kr. 2.225 Hella kr. 2.418 Hnífsdalur kr. 1.553 Húsavík kr. 2.109 Hvammstangi kr. 2.811 Hvolsvöllur kr. 1.344 Höfn/Hornafiröi kr. 1.775 Innri-Njarðvík kr. 1.702 Keflavík kr. 1.607 Kópavogur kr. 1.968 Mosfellssveit kr. 2.752 Neskaupstaður kr. 1.685 Raufarhöfn kr. 2.577 Reykjahlíð v/Mývatn kr. 2.913 Reykjavík Sandgerði Selfoss Stykkishólmur Tálknafjörður Vestmannaeyjar Vogar Vopnafjörður Þorlákshöfn kr. 2.478 kr. 1.593 kr. 2.089 kr. 2.699 kr. 1.875 kr. 2.180 kr. 2.280 kr. 2.816 kr. 2.436 Staöimir sem hér eru nefndir eru alls29. A ellefu stöðum er meöaltal matar- kostnaður innan við tvö þúsund krónur, á fimmtán stöðum er meöaltalið á milli tvö og þrjú þúsund krónur og á tveim stööum fer meðaltaliö yfir þrjú þúsund. Meðaltal fyrstu átta mánuði ársins Við höf um reiknað út meöaltal matar - kostnaðar á nokkrum stöðum fyrstu átta mánuði ársins (jan.-ág.) og er for- vitnilegt að líta á þær meöaltalstölur. Þreng jum við aöeins úrtakið og birtum tölurfrá tíustöðum. Meðaltal matarkostnaðar, jan.-ágúst 1983 Akranes Akureyri Húsavík Egilsstaðir Eskifjörður Selfoss (áeinstakling) kr. 1.652 kr. 1.907 kr. 1.689 kr. 1.968 kr. 1.680 kr. 1.735 Vestmeyjar I-Njarðvík Kópavogur Reykjavík kr. 1.890 kr. 1.550 kr. 1.871 kr. 1.992 Verðlagsstofnun kannaöi í síðasta mánuði ársútgjöld meðalfjölskyldu (um fjögurra manna) á mat-, drykkj- ar- og hreinlætisvöru. Niðurstöður birtum við hér á neytendasíðunni siðastliðinn mánudag. Það voru niður- stöður frá 45 verslunum víðs vegar á landinu. Einnig voru birtar tölur yfir meðalverð ársinnkaupa og kom þar fram að lægsta meðaltal meðalfjöl- skyldunnar var á Akranesi, 113,3 þúsund krónur, en hæsta meðaltalið var á Egilsstöðum, 124,5 þúsund krónur. Samkvæmt okkar meöaltali fyrstu átta mánuði ársins, sem er hér á list- anum fyrir ofan, er meöaltalið næst- lægst á Akranesi og næsthæst á Egils- stööum, svo ekki skeikar miklu. Það kom einnig fram í verðkönnun Verðlagsstofnunar að lægsta vöruverð í einstakri verslun var í Njarðvík en á okkar lista er meðaltaliö lægst þar. Við getum enn haldið áfram með lauslegan samanburö á milli könnunar Verðlagsstofnunar og heimilis- bókhalds DV. Meðaltal af heildinni í ársinn- innkaupum f jögurra manna fjölskyldu Verðlagsstofnunar var 117,3 þúsund kr. Reiknast okkur að meðaltal á einstakling á mánuöi muni því vera 2.444 kr. Landsmeðaltal okkar nú i ágústvarsemfyrr segir2306krónur. -ÞG. Hitaveitan á Egilsstöðum: Vatnið ekki nema 49' C DV hafa borist upplýsingar um hita- veitumál á Egilsstööum. Hitinn á vatninu, innkomnu í húsin, er ekki nema 49°C. Þetta nægir ekki til að hita upp húsin og veldur þetta einnig erfiðleikiun við uppþvottinn. Þarf oft að hita upp viðbótarvatn til aö fá leir- tauið vel hreint. Fyrir þetta vatn borga Egilsstaðabúar svo fullt verð. Hitunarkostnaður á mánuði fyrir 4 manna fjölskyldu er um 1800 kr. en hitunarkostnaður fer að sjálfsögðu eftirstæröhúsa. DV hafði samband við Baldur Einarsson, hitaveitustjóra Egils- staöahrepps. Hann sagði að þetta væri rétt, hitinn á vatninu væri einungis 49°C. Astæðan fyrir þessu væri sú að vatnið úr þeim þrem borholum er boraöar voru i upphafi hefði kólnað mjög mikið. Nú væri hiti vatnsins upp úr borholunum aðeins 52°C. Nú væri hins vegar hafin borun nýrrar holu og lyki þeirri framkvæmd líklega eftir rúmlega mánuð. Miklar vonir bæru bundnar við þessa holu og væru jarðfræðingarmjög bjartsýnir. hversu heitt vatnið á að vera. Þaö eru bara ekki allir eins vel í sveit settir hvað snertir möguleika á heitu vatni. Upphaflega var ráðist í þessar fram- kvæmdir þegar olíuverð var sem hæst. Hins vegar er hitaveitan útbúin sér- stökum kyndingartækjum sem sett eru í gang er kólna fer í veöri þannig að engum ætti að verða kalt. -APH.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.