Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1983, Blaðsíða 3
3
DV. ÞRIÐJUDAGUR1. NOVEMBER1983.
„Hafrót-
ið eins
ogf
sjóðandi
grautar-
pottr
— sagði Ragnar
Gíslason, stýrimaður
á Haferninum
„Mér tókst ekki að komast upp á
skerið eins og þeim Gunnari og Pétri
og rak frá þvi í gúmbátnum. Hafrótið
var eins og í sjóðandi grautarpotti,
brim alls staðar. Og skammt frá
hvolfdi gúmbátnum en það var mér
til happs að ég var fastur i honum og
tókst síðan aö komast upp á hann,”
sagði Ragnar Gislason stýrimaður á
Haferninum.
Ragnar er 29 ára gamall og lenti
uppi á eyjunni Lóni, nokkur hundruð
metrum frá Lónsskerinu, þar sem
þeir Gunnar og Pétur komust á land.
,,Eg lenti síðan uppi á eyjunni og
dró gúmbátinn upp í fjöruna. Eg
veifaði til þeirra á Erni en það var
ekkert hægt að gera, þeir gátu ekkert
gert.
Mér létti mikið er ég sá þá Gunnar
og Pétur á skerinu. Eg vissi þá að við
værum hólpnir og að þyrla kæmi aö
náíokkur.
Við biðum síöan í um tvo tíma í
leiðindaveöri eftir að þyrlan kæmi.
Um tíma gekk hrið og haglél yfir en
ég var betur settur en þeir og gat
komist inn í gúmbátinn og skýlt
mér.” -JGH
Ragnar Gislason. „Eg veifaði til
þeirra á Erni en það var ekkert hægt
að gera.” DV-mynd: GVA
Skipverjarnirsem
saknað er:
VORU
ALLIR
í LÚK-
ARNUM
Skipverjarnir þrír sem saknað er
voru allir frammi i lúkar þegar bátur-
inn fór á hliöina. Þeim tókst öllum aö
komast upp úr lúkamum.
, J5inn þeirra komst aftur á til
okkar að stýrishúsinu með því að
hlaupa eftir siðunni en hann náöi ekki
að gúmbátnum.
Hinir tveir komust upp á hlið bátsins
fram á og þeim tókst heldur ekki að ná
til gúmbátsins,” sögðu þeir Gunnar,
Pétur og Ragnar. -JGH
TEKINN FYRIR
SÖLU Á SMYGLUÐUM
TÖLVUSPILUM
Tollverðir í Reykjavík gerðu um
helgina upptæk um 100 tölvuspil, sem
smyglað hafði verið nýlega til lands-
ins. Hafði sjómaður á millilanda-
skipi smyglað þessum tölvuspilum
inn. Var þama um að ræða boröspil,
svo og einföld og tvöföld spil, en þau
njóta mikilla vinsælda hér.
Einn aðili hafði tekið að sér að
dreifa þessum spilum og hafði hann
m.a. selt þau i eina verslun. Voru
þau gerð upptæk þar og á
kaupmaöurinn nú yfir höfði sér dóm
svo og aðrir sem tengdir em smygl-
máliþessu.
Verðmæti vamingsins sem þarna
var mikið. Einföldu spilin
vom seld á 1670 krónur, þau tvöföldu
á 2000 krónur. Borðspilin voru enn
dýrari en þama var um að ræða 100
tölvuspil eins og fyrr segir. -klp-
Okknrmenn
íReykjovík
Síminn er
91-21160
Þjónustudeildir Hafskips í Reykjavík
hafa á að skipa góðum hópi
starfsmanna sem eru sérfræðingar
hver á sínu sviði skipaflutninga.
Þannig sér Markaðsdeild um sölu-
og markaðsmál varðandi inn- og
útflutning og er í nánum tengslum við
viðskiptavini hverju sinni.
Flutningadeild skipuleggur
flutningana og tryggir að vörur séu
fluttar á hagkvæman og fljótvirkan hátt
til og frá landinu.
Farmskrárdeild sér um að réttir
pappírar séu á réttum stað á réttum
tíma og Tjónadeild grípur inn í,
komi babb í bátinn.
Samhæfing og góð samvinna allra
þessara aðila er þó skilyrði þess að
góður árangur náist.
Þjónustudeildir Hafskips hf.
eru okkar menn.
Okkar menn.- þínir menn
SS HAFSKIP HF.