Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1983, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1983, Blaðsíða 40
Varmi Bílasprautun hf. Auóbrekku 14 Kópavogi Sími 44250 Sigurjón Helgason: „Þetta gvcði er stórhœttulegt i vestanáttinni. Það ýfa sig upp hnútar sem menn verða ekid varir við fyrr en þeir skeQa skj-ndllega á.” DV-myndGVA. Sigurjón Helgason, eigandi Hafarnarins: „Égernidur- brotinn maður” „£g er nifturbrotinn maftur. Þetta er í fyrsta skipti í 33 ár sem ég verö fyrir áfalli. Aldrei neitt komiö fyrir, varia maöur hafi skrámast á höndum,” sagði Sigurjón Helgason, forstjóri og aðaleigandi Rækjuness, útgerðarfyrirtækis Hafamarins i gærkvöldi. „Þeir eru allir góðir skipstjóramir á bátunum hjá Hækjunesi en Gunnar er alveg sérstaklega góður, með þeim albestu við Breiðafjöröinn.” Sigurjón hefur verið til sjós í fjöru- tiu ár og t mörg ár sem skipstjóri við Breiðafjörðinn. „Ég þekki þetta svæði mjög vel þar sem báturinn fórst. Það er stór- hættulegt, sérstaklega í vestanátt- inni eins og var þama. Það ýfa sig upp bnútar sem menn verða ekki varir við fyrr en þeir skella skyndi- legaá.” -JGH. Leitað að nauðgara í gærkvöldi Ung stúlka kærði nauðgun til lög- reglunnar í Reykjavík i gærkvöldi. Hafði maður sem þekktur er hjá lög- reglunni fyrir árásir og fleiri afbrot komið í heimsókn til hennar og ráðist þaróhana. Dró hann hana inn í herbergi og reif af henni fótin og kom fram vilja sínum. Fór hann siðan á brott en stúlkan hringdi i vinkonu sina og þær höfðu siðan samband við lögregluna. Þær þekktu báðar manninn og var send út lýsing af honum í gæritvöldi en ekki var búið að handtaka hann þegarsiðastfréttist. -klp. LOKI Og ég sem hólt að höfðinginn værí grænn! 27022 AUGLYSINGAR SÍÐUMÚLA33 __ SAAÁAUGLÝSINGAR —AFGRESÐSLA SKRIFSTOFUR ÞVERHOLTI11 86611 RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA12- -14 i ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1983. Krístinn 6. Jónsson, skipst jóri á Þórsnesinu: „Það var ekkert hægt að gera,f „Við sáum ekki, þegar báturinn fór á hliðina, það var það slæmt i sjó- inn, vestan 7 til 8 vindstig,” sagði Kristinn Olafur Jónsson, skipstjóri á Þórsnesi SH 108, í samtali við DV á heimili sinu i Stykkishólmi í gær- kvöldL Þórsnesiö sem var á skelfisk- veiðum eins og Haföminn var sá bát- ur sem var næst Hafeminum þegar hann sökk. „Við höföum lagt af stað i land aöeins á eftir þeim og það var svona um ein míla á milli okkar.” Kristinn sagði að þegar þeir á Þórsnesinu hefðu beygt fyrir Lóns- skerið, vestasta skerið í Bjameyjum hefðu þeir séð neyðarblysið og gúm- bátinn, sem var kominn upp í brimið. „Við gátum ekki farið nærri sker- inu en fylgdumst með þvi þegar þeir Gunnar og Pétur komust upp á skerið og Ragnar siðan upp á Lónið, eyjunarétthjá. „Sjórinn gekk yfir þá á skerinu en það var ekkert hægt aðgera.” Kristinn sagðist strax hafa til- kynnt um slysið til hafnarvarðarins i Stykkishólmi og beðið um að þyrla yröisendástaöinn. „Við biðum síðan við skerið ásamt bátunum Emi og Gretti, sem einnig komu skjótt á vettvang. Er þyrlan var búin aö bjarga þeim lögðum viö afstaðíland.” JGH. Kristinn Ölafur Jónssou, skipstjóri á Þórsnesinu: „Við sáum ekki þegar báturinn fór á hliðina, það var það slæmt i sjóinn.” DV-mynd: GVA. W a loðnunni Nú er veriö að ákveða verð fyrir þau 300 þúsund tonn og jafnvel meir, sem við megum veiða af loðnu fram í mars. Miðað við 8 dollara fyrir próteineiningu í mjöli og 440 dollara fyrir tonnið af lýsi getur afurðaverð af einu loðnutonni oröið allt aö 1.900 krónur. Þumalputtaregla segir að um helmingur þess renni til útgerðar og sjómanna sem hráefnisverö. Meö því að beita annarri þumalputta- reglu, sem segir að hver sjómaður á loðnuskipi fái um tvö prósent af hrá- efnisveröinu og meðalafli hvers loðnuskips verði á bilinu 5000 til 7000 tonn miðað við heildarkvóta, verður hásetahluturinn 200 til 300 þúsund krónur. Það munu teljast ágætislaun fyrir tveggja til þriggja mánaða vinnu. 4js, sH Þórsnesið var aOeins eina mílu á eftir Hafeminum þegar hann sökk. Binnig komu fíjótíega á vattvang Stykkishólmsbátarnir Grattir og örn sem eins og Þórsnesið og Haförninn voru á skeMskveiðum á Breiðafirði. Við sjáum hór 6 myndinni hvar Þórsnesið og Grettir liggja við bryggju i Stykkishóimi í gær- kvöldi. DV-mynd: GVA. Skákmétið í Bor: JónL efstur Jón L. Amason er efstur á al- þjóðlega skákmótinu i Bor í Júgóslavíu. I gær glímdi hann við rússneska stórmeistarann Tuk- makov og varö jafntefli eftir 40 ieikL Hafði Jón svart og tefldi Benoni- vörn. Var skákin lengi tvísýn ai síðan náöi Tukmakov frumkvæðinu. Hann tefldi þó ónákvæmt og náði Jón að jafna tafliö. Undir lokið voru þeir báðir í miklu timahraki og lék Jón þá af sér. Atti Tukmakov góöa vinnings- möguleika en urðu þau hrapallegu mistok á i óðagotinu að yfirsjást mátstef í borðinu. Varð honum svo mikið um aö hann lék af sér frelsingja og þar með hafði Jón tryggtjafnteflið. Jón heldur því forystunni á mótinu er með fjóra vinninga að loknum fimm skákum. Júgóslavneski stór- meistarinn Marjanovic er í öðru sæti með þrjá og hálfan vinning en i dag eiga þeir einmitt að tefla saman, Jón ogMarjanovic. -SþS. ............il Viðbúnaðurinn á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi: Nærföt, náttfót, sokkar, ullarteppi og rúm hituð upp „Það var búiö að hita upp nærföt, náttföt, sokka, ullarteppi og rúmin þegar þeir komu hingað,” sögöu þær systirTrees hjúkrunarkona ogElín Siguröardóttir ljósmóöir á sjúkra- húsinu í Stykkishólmi um viðbúnað sjúkrahússins vegna skipbrotsmann- anna þriggja sem björguðust. Þær systir Trees og Elín voru ásamt fjórum hjúkrunarkonum á vakt þegar þeir Gunnar, Ragnar og Pétur voru fluttir á sjúkrahúsið. „Sjúkrahúsið var fullt af sjúkling- um og þvi voru nokkrir færöir saman til að skipverjarnir kæmust fyrir. Við höfðum einnig gert ráðstafanir með hjálparlið úti i bæ ef þess hefði þurft.” Þær sögðu að ekki hefði verið vitað um ástand skipverjanna, en þeim hefði liðiö betur en þær bjuggust við. „En þeir voru þó mjög blautir og kaldir.” -JGH. Systir Trees hjúkrunarkona og BUn Sigurðardóttir Ijósmóðir á sjúkrahúsinu i Stykkishóimi i gœrkvöldi. DV-mynd: GVA.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.