Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1983, Blaðsíða 6
6
DV. ÞRIÐJUDAGUR1. NOVEMBER1983.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
TILRAUNAELDHUS DV:
Ódýr kindakæfa
Forsmekk aö matargerð í tilrauna-
eldhúsi DV fengu lesendur föstudaginn
14. okt. er við birtum uppskriftir og
vinnuaðferðir við sláturgerð. Þá voru
við stjómvölinn Gunnþórunn Jónsdótt-
ir og Bergljót Andrésdóttir, sem báðar
eru heimilisfræðikennarar í grunnskól-
um. Viðbrögð lesenda við sláturgerð-
inni voru sérstaklega góð og margir
hafa komið með uppástungur eða
beiðnir um sérstaka rétti til matreiðslu
i tilraunaeldhúsinu. Ailar slíkar
beiðnir eru vel þegnar.
Við höfum nú komið okkur vel fyrir í
tilraunaeldhúsinu og munum birta
vikulega aö jafnaöi uppskriftir og
segja frá hvaö baukað verður í þeim
eldhúskróki.
Sem framhald af sláturgeröinni
völdum við að koma nú með uppskrift
aö kindakæfu.
Eflaust eiga margir í frystikistun-
um slög, hálsæsar, þindar og feita
kjötbita en allt er þetta nothæft í
kæfuna.
Þeir sem vil ja síður haf a mikla fitu í
kæfunni geta valið magra kjötbita í
sína uppskrift.
Við völdum að hafa slög i okkar kæfu
en fitunni var mikið til fleytt af kjöt-
soöinu og ekki notuð.
Þá byr jum við á því að finna allt til
sem þarf í kindakæf una:
Uppskrift
1 kg kindakjöt
300gr.laukur
1/2 ltr. vatn
10 plparkom
2 lárviðarlauf
Kindakæfan komin
3 tsk. salt
3/4 tsk. pipar
3/4 tsk.englfer
1tsk. kjötkraftur
1/2 tsk. hvítlauksduft
11/2—2dlkjötsoð
Aætlaður vinnutími er 25 mínútur
fyrir utan tveggja klukkustunda suðu-
tíma kjötsins. En við berum okkur að á
eftirfarandi hátt:
1. Þvoum kjötið úr köldu vatni.
Skerum laukinn í tvennt. Ef
laukamir eru stórir, skerum við þá í
fjórahluta.
2. Kjötiö soðiö (ca 2 klst.) ásamtlauk,
piparkomum og lárviðarlaufum við
vægan hita. Þegar kjötið er laust frá
beinunum er potturinn tekinn af
r
tií samanburðar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak-
andi í upplýsinRamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar
fjölskvldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki éigið þér vpn um að fá nytsamt heimilis-
I tæki.
1 Nafn áskrifanda ____________________________
'i'
l!í
I1'
Heimili
l
I
i
i
i Sími
)
I
l Fjöldi heimilisfólks---
I
| Kostnaður í október 1983.
! Matur og hreinlætisvörur kr.
!| Annað kr.
Alls kr.
; I
S1
u
i ■,
Bargijót og Gunnþórunn sotjast
niður að verki ioknu, skrifa og
reikna út hráefniskostnað.
OV-myndir: GVA.
3. Kjötiö hreinsum við af beinunum og
fleytum fituna af kjötsoðinu.
4. Siðan hökkum við kjötið og laukinn i
hakkavél, „blender” eða þessum
stórkostlegu eldhúsvélum sem eru
„allt í einni” þ.e. kvöm, hrærivél og
allt það.
5. Allt hrært vel með kryddi og soði og
kryddi bætt í. Þó að gefnar séu upp
kryddtegundir hér og magn getur
hver og einn bragðbætt sína kæfu
eftir smekk.
6. Þá erum við komin aö lokastiginu og
það er pökkunin. Við getum pakkað
kæfunni i álform, álpappir, dósir
eða önnur handhæg ílát.
Kæfan fryst.
Cr þessari uppskrift fengum við í til-
raunaeldhúsinu rúmlega eitt kíló af
kindakæfu.
Hráefniskostnaður var um 60
krónur.
Vert er að geta þess að í 100 grömm-
um af kindakæfu eru um 338 hita-
einingar, 17 grömm prótein og 30
grömm fita. Þó er fitan breytileg eftir
þvi hvers konar kjöt við notum í
kæfuna.
Vonandi gengur ykkur vel og getið’
notið þess að verki loknu að eiga ljúf-
fenga heimalagaða kindakæfu á brauð-
ið.
Vefjist eitthvert atriði fyrir verðandi
„kæfumeisturum” þá er bara að leita
upplýsinga hjá tilraunaeldhúsi DV.
-ÞG
Talið er að yfir 400dagmðmmur séu starfandl i Reykjavfk.
Dagvistun bama:
Þegar dagheimili anna ekki
eftirspurn, geta foreldrar reynt að
koma bömum sínum í pössun hjá
dagmömmum. Talið er að yfir 400
dagmömmur séu starfandi hér á
Reykjavíkursvæðinu. Þessi fjöldi er
reyndar nokkuð mismunandi eftir
árstíðum. Fæstar eru dagmömmurn-
ar á sumrin og flestar á vetuma.
En hvað kostar svo að hafa börn
hjá dagmömmu. Hjá Márgréti
Sigurðardóttur fengum við
upplýsingar um það, en hún starfar
hjá þeim stdnun hjá Reykjavíkurborg
sem hefur með höndum dagvistunar-
málbama.
Hvað kostar gæslan
Ef bam er í gæslu í 8 klst. fær dag-
mamman greitt ákveðið mánaðar-
kaup sem er 4742 kr. Innifalið í þessu
er morgunmatur, hádegismatur og
siðdegishressing. Reiknað er með að
morgunverður og síðdegishressing
kosti dagmömmuna 18 kr. og heitur
hádegisverður kosti 47 kr. Ef
viðkomandi dagmamma hefur
einhverja menntun eða námskeið í
uppeldismálum bætist við 7% á mán-
aðarlaunin.
Ef barn er í gæslu í 9 klukkustundir
eru mánaðarlaun 5110 kr. og sömu
skilyrði og við gæslu barna í 8 klst.
Fyrir 4 klukkustunda gæslu er
upphæðin 1863 kr. og bara ein máltíð
innifalin þ.e. morgunmatur eða
síðdegishressing.
Ef um óreglulega gæslu er að
ræða, sem er noldtuð algeng, er dag-
mömmunni greitt tímakaup. Fyrir
dagvinnu 24,45 kr. og eftirvinnu 59.50
kr. Við þessar upphæðir bætist 7% ef
dagmamman getur sýnt fram á
einhverja menntun í uppeldis-
málum.
Til að geta hafið störf sem dag-
mamma þarf að leggja fram heii-
brigðisvottorð og sakavottorð.
Einnig þarf húsnæðið að vera
viðurkennt af Reykjavfkurborg.
Einstæðir foreldrar
fá niðurgreitt
Einstæðir foreldrar fá niðurgreidd
dagvistunargjöldin frá Reykjavíkur-
borg. Þessi niðurgreiðsla miðast
einungis við 8 klukkustundir og
minna en fram yfir það er ekki um
neinar niðurgreiðslur að ræða.
Gjaldið sem einstæðir foreldrar
greiða eftir að niðurgreiðslan hefur
farið fram er það sama og greitt er
fyrir dagvistun á dagheimilum. Það
gjalder nú 1900 kr.
Námsmenn fá ekki neinar
niðurgreiðslur ef böm þeirra eru í
gæslu hjá dagmömmu en ef þau eru
á dagheimilum greiða þeir sama
gjald og einstæðir foreldrar.
Giftir foreldrar sem haf a börn sín í
gæslu á dagheimilum greiða fyrir
fullan dag 2830 kr. Böm giftra
foreldra eiga rétt ó 10% af dagvist-
unarplássunum á dagheimilum og
einstæðir og námsmenn, sem em
forgangshópar, það sem þá er eftir.
-APH.
Símaklefar vestan hafs:
HÆGT AÐNOTA
KRÍTARKORT
Það kom fram í grein, er birtist
hér á síðunni sl. mánudag um
hvernig símareikningar í
Bandaríkjunum væm úr garði
gerðir, að erfitt væri að hringja utan-
bæjarsímtöl í símklefum þar í landi.
Nú hafa okkur borist upplýsingar f rá
kunnugum. Það er síður en svo erfitt
að hring ja utanbæjarsamtöl frá sím-
klefa. Það þarf reyndar að hafa sam-
band við símstöðina sem gefur
upplýsingar um hversu mikið þarf að
greiða ef mynt er notuð. Mjög
greinargóöar upplýsingar era í
hverjum símklefa um það hvernig á
aö haga sér í þessum efnum.
Hægt að nota krítarkort
Það er einnig athyglisvert að
þegar hringt er frá símkiefa er hægt
að nota krítarkort. Sá sem hringir
hefur samband við símstöðina og
gefur upp númerið á kortinu. Síðan
skráir símstöðin niður samtalið og
sendir viðkomandi nákvæman
reikning yfir símtalið. Þessi
reikningur kemur beint inn á síma-
reikning notandans ef hann hefur
síma. - -APH.