Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1983, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1983, Side 7
DV. ÞRIÐJUDAGUR1. NOVEMBER1983. 7 Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Jólapósturinn: Látið ekki ættingjana fara í ióiaköttinn Nú verður ekki aftur snúið, jólin nálgast óðum og timi til kominn að fara að senda jólagjafir til vina og ættingja í f jarlægum löndum. Þaö er bæði hægt að senda pakka meö flugi og skipi. Það er ódýrara að senda meö skipi. Ef sú leið er valin þarf jafnframt að senda pakkana fyrr. Það er einnig vert að minna á að nauðsynlegt er að pakka gjöfunum vel inn. Venjulegur umbúðapappír er ekki nægilegur. Best er að nota sterka pappakassa. A öllum pósthúsum er hægt aö kaupa sérhannaðar umbúðir fyrir póstsendingar. Þetta eru pappa- kassar í þremur stærðum og mjög handhægir. Krítarkort: Smákaupmenn ekkiánægðir Nokkuð skiptar skoöanir virðast vera meðal matvörukaupmanna um notkun krítarkorta. Virðist sem notkun þeirra komi fremur iUa út fyrir smærri matvöruverslanimar. Ölafur Bjömsson, formaður Félags matvörukaupmanna, sagði aö þessi mál hefðu verið rædd innan félagsins en nokkuð skiptar skoðanir væru meðal félagsmanna. „ Oánægjan beindist m.a. að því að kaupmenn þyrftu að lána fé vaxta- laust í allt að 50 daga. Greiðslufyrir- komulagið væri þannig að þeir fengju greidd innkaup krítarkorta handhafa, sem gerð væru fyrir 19. hvers mánaðar, 5. næsta mánaðar. Þetta þýddi það að þau innkaup sem gerð gerð væru eftir 19. þessa mánaðar yrðu ekki greidd fyrr en 5. desember. Mestu innkaupin færu fram eftir 19. hvers mánaðar og fram að mánaðamótum. Þegar þetta er haft í huga og aö kaupmenn greiða 4% til þeirra sem reka krítarkortin er ljóst að útkoman er ekki góð ef um litla álagningu er að ræða. Margar matvörur hafa mjög litla álagningu, allt frá 2%. Þetta kemur smákaupmönnum sérlega illa. Þeir fá yfirleitt litinn afslátt af vöruinnkaupum sínum vegna þess að þeir geta ekki keypt inn vörur í miklu magni. En stóimarkaðirnir fá hins vegar yfirleitt magnafslátt vegna þess að þeir eru í stakk búnir til að kaupa inn mikið magn af hverri vöru. Krítarkortin koma þvi ekki eins illa út fýrir þá eins og þau gera fyrir smærri verslanir. En margar smáverslanir bjóða hinsvegar viöskiptavinum sínum upp á mánaðarreikning sem stórmarkaðirnir gera ekki. I staö þess aö taka á móti krítarkortum kæmi betur út fyrir smákaupmenn að gefa 4% afslátt til þeirra sem staðgreiöa. Olafur sagði að væntanlega yrði haldinn fundur um þessi mál bráðlega. Hafnar væru óformlegar umræður við forráðamenn Visa korta. Og heföu kröfur um að greiðslur til kaupmanna færu fram fyrr og oftar verið settar fram. Einnig hefði verið reif uð sú hugmynd að kaupmenn gætu með einhverju móti ávaxtað það fé sem þeir lánuöu. -APH. Hór má sjá hvernig tóigin var útlitandi. Tortiyggileg hamsatólg Til okkar kom maður sem hafði keypt hamsatólg framleidda af Sláturfélagi Suðurlands. Hamsatólgin þótti honum heldur tortryggileg því hún var öll í einhverjum svörtum klessum, lítill trjágreinabútur kom einnig í ljós og hártægjur. Vigfús Tómasson hjá söludeild Sláturfélagsins sagði okkur að hugsan- legt væri að þessar svörtu klessur væru hamsar því algengt væri að þeir væru dökkir. En að trjábútur og hár hefði verið í tólginni væri erfitt að segja til um af hverju stafaði. En að sjálfsögðu geta alltaf átt sér stað óhöpp því margar hendur fara um vöruna áður en hún endanlega kemur í Bréfpóstur Ekki mega vera fleiri en 5 handskrif- uð orð, auk undirskriftar á jólakorti ef þaö á að sendast sem prentað mál. Séu orðin fleiri verður að greiöa undir sendinguna sem bréf. Til að forðast biðraöir ráðleggur Póstur og sími fólki að kaupa frímerki í tíma. Einnig fást frímerki keypt víða í verslunum og söluturnum. Það er einnig mikilvægt að allar utanáskriftir séu vandaðar. Póstur til útlanda Til þess að sendingar berist til viðtakanda fyrir jól er ráölegt að senda gjafirnar með skipi eða flugi semhér segir: BÖGGLAPÓSTUR BRÉFAPÓSTUR skip flug skip flug Norðurlönd 23.11. 10.12. 1.12. 15.12. . Evrópa 16.11. 6.12. 25.11. 10.12. (USA (austurfylkin) 5.11. 3.12. 4.11. 10.12. USA (v. fylkin) og Kanada 1.11. 1.12. 1.11. 8.12. önnur lönd 1.11. 1.12. 1.11. 8.12. Þeir sem ætla að senda bögglapóst: með skipi í vesturátt þurfa að hafa hraðann á — síðasti dagur að senda böggul sem berast á til vesturfylkja Bandaríkjanna er í dag. -APH. Afsláttar- kort Afsláttartímabil hjá KRON er gengiö í garð og hafa allir tæplega fimmtán þúsund félagsmenn innan vébanda KRON fengið send sjö afsláttarkort. Kortin gilda ýmist til 30. nóvember eða 19. desember. Hvert afsláttarkort veitir 8% afslátt af vöruúttekt og eru þau stíluð á verslanir Kron þannig að 2 gilda í hinum almennu hverfa- búðum, 2 í Stórmarkaðnum (tekið fram að æskilegt að þau kort séu ekki notuð á föstudögum), 2 í Domus og eitt í verslun KRON að eiginvali. I fréttatilkynningu frá KRON segir að afsláttarform þetta hafi fyrst verið reynt fyrir 14 árum og eftirspumin eftir kortunum hafi aldrei verið meiri en nú. Engar vörur í verslunum eru undanþegnar afslætti en 5% af- sláttur er þó af stærri heimilis- tækjum gegn staðgreiðslu. -ÞG. verslanir. Þeir væru allir af vilja gerðir til að greiða götu þeirra neyt- enda sem verða fyrir einhverjum skakkaföllum. Starfrækt væri rannsóknarstofa á vegum Sláturfélagsins sem tæki að sér að kanna gallaðar vörur. Það væri öllum til góðs að komist væri til botns í slikum málum. Því meira sem þeim bærist af vitneskju um gallaðar vörur því auðveldara væri að leysa vandann. 1 þessu tilfelli hefði verið eölilegast fyrir kaupandann að snúa sér til viðkomandi kaupmanns og fá vöruna bætta. Kaupmaðurinn hefði síðan fengið vömna bætta af hálfu Sláturfélagsins. CLARKE - VON SCHRADER B/acksi Deckan MODEL 905 Exlraclor CLARKE teppahreinsivélar, tvær stærðir: Mod 905, handhæg fyrir smærri verk, 11,4 lítra tankur fyrir hreinsiefni og sog, 1 ha. sogmótor, þyngd 15 kg. Mod. 925. Vél fyrir fagmanninn, 30 lítra tankur fyrir hreinsiefni, 20 lítra sogtankur, 11/2 ha. sogmótor, þyngd 37 kg. CLARKE gólf- þvottavélar, afköst frá 555 m2-2650 m2 á klst.f rafdrifn- arf snúra eða raf- geymir. VON SCHRADER vegg- þvottatæki. Model TB 60-80 Black og Decker ryksuga fyrir þurrt og blautt, 1 ha. sogmótor. Útsölustaðir um allt land G. Þorsteinsson & Johnson Ármúla 1 — Sími 85533

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.