Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1983, Side 19
19
DV. ÞRIÐJUDAGUR1. NOVEMBER1983.
Gamlirbílar
Kristinn Snæland
Hér eru nokkrir
skemmtilegir bílar frá árun-
um 1923 til 1941 sem spanna
nærri tvo áratugi. Gaman er
að bera saman Fordinn frá
1923 og Vísis Fordinn frá
1940. Myndirnar eru úr
safni Bjarna Einarssonar
frá Túni á Egrarbakka sem á
,eitt besta bílamyndasafn á
íslandi auk margra annarra
heimilda um bíla og bíl-
stjóra. Jafnframt á Bjarni
heiðurinn af hinu vandaða
bílamyndasafni Fornbíla-
klúbbs íslands. Bjarni er
enn að safna myndum og
þiggur feginshendi nýjar
myndir í safnið, lœtur taka
eftir þeim og sendir þœr
síðan til baka. Bjarni
Einarsson býr nú að Klepps-
vegi 74 Reykjavík.
Pví má bœta við að svo
mikið og merkilegt starf
hefir Bjarni unnið við
heimildasöfnun um bifreiðir
á íslandi að hann er nú
' fróðastur allra íslendinga
um þessi mál.
Einn af LRhi bilastöðinni. Sú bíla-
stöA átti sína bíla og hér gefur aö
líta Studebaker árgerö 1935.
Krómaðar luktir og flautur gáfu
framhlutanum svip. Þessi bilastöð
rann síðar saman við bifreiöastöð-
ina Hreyfil.
Einn af BSR bilunum. Studebaker
árgerð 1931, eign Filippusar
Bjamasonar brunavarðar, sem ök
hjá BSR. Hvaða myndarlega fölk er
á myndinni?
Menning
Menning
Að svona haf i það
hljómað i upphafi
Claudio Montaverdi: L'Orfeo.
Flytjendur Lajos Kozma, Rotraud Hansmann,
Cathy Berberian, Nigel Rogers, Kurt Equiliuz,
Max van Egmond; CapeBa Antiqua;
Concentus Muslcus.
Stjórnandi: Nikolas Hamoncourt.
Útgefandi: Telefunken 6.35020
Þegar Claudio Monteverdi birti
lýöum sina músiköLsku frásögn, eöa
Favola in Musica, af för Orfeifs til
undirheima, var bann iangt á undan
sinni samtið. Hann varð fyrstur tíl að
semja meistaraverk eftir hinni nýju
linu í músíkinni, byggöri á niðurstöð-
um húmanistans mikla, Girolamo
Mei, sem réttilega áleit að Gríkkir
hinir fomu hefðu á sinni tíð brúkað
talsöng eða eins og þvi var þá lýst,
„sungið á annan hátt en venjulega”.
Þennan breytta söng þekkjum við
síðan sem „resitatif” og það átti svo
eftir að verða rauði þráður hinnar
nýju tegundar söngleiksins, „opera
in musica”, með innskotum af
kórum, sinfóníum og ritomelli. En
það eru ekki síður aðferðir Monte-
verdis við að nýta hljómsveitina sem
eru byitingakenndar á sínum tima. I
Orfeifi er hún með því stærsta sem
þá þekktist og víst þykir að mörg
streng japúltin hafi verið tvísetin eins
og tíðkast í hljómsveitum nútimans.
Og síðast en ekki sist, þá brýtur
Monteverdi ríkjandi hefðir tónfræði
samtíma sins í resitatifunum og
hljómsveitina notar hann einnig til
skrauts og til að undirstrika drama-
tiska atburði.
En bylting Monteverdis er okkur
býsna fjarlæg og ætlum við okkur að
skoða hana við aðstæður nútímans,
þ.e.a.s. flutt með nútimahljóðfærum
getur hún verkað hjákátleg. Að
minnsta kosti finnst manni svo eftir
að hafa heyrt hana flutta eins og
menn ætla að hún hafl veríð Ðutt i
upphafL Frá hendi hafundar liggur
fyrir nákvæmur listi yfir hljóðfærin,
samtals þrjátíu og sex, sem notuð
eru. Fæst þeirra eru kunn í hljóm-
sveitum nútimans nema þá mikið
breytt.
Það hefur kostað ómældar rann-
sóknir, leit og vinnu við að hafa upp á
gömlum bljóðfærum og gera eftir-
likingar þeirra sem ekki finnast
lengur. En menn eins og Nikolas
Harnoncourt setja slikt ekki fyrir
sig. Vitað er að hann hefur þrætt
mörg helstu fornu menntasetur, svo
sem klaustur og þefaö uppi furðuleg-
ustu hluti. Að hljóðfærum fengnum
og eftirlíkingum smiðuðum hefst svo
glíman við að leika á þessa fomgripL
Hvemig spiluðu menn á þessi
apparöt endur fyrir löngu? Og þegar
farið er að grúska kemur ýmislegt i
ljós, sem okkur nútimamönnum er
heldur framandL Ekki aðeins hljóm-
styrkur heldur einnig biærinn er oft á
tíðum a&t öðmvisi en nú þekkist og
við grúskið opnast músíkantinum
ævintýratónheimur. En það er mikill
vandi að spila á þessa gömlu gripi og
sjaldnast njóta menn þess
tónöryggis sem nútimahljóðfærin
bjóða upp á. Til eru þeir sem nota
það sem afsökun fyrir því aö spila
falskt að þeir spili á upprunaleg
hljóðfærí. Slíkt er vitaskuld regin-
firra því það er einfaldlega erfiðara
og meiri kúnst að leika á fomgr ipina.
Hljómplötur
EyjólfurMelsted
Plötur útgefnar í flokknum „Das
Alte Werk” hafa undantekningala ust
reynst frábærlega vel unnar á allan
máta, já í hverju smáatríði, og er
umrædd plata í raun dæmigerð fyrir
allt sem út hefur komið í þessum
flokki. Söngurinn er frábær, ekki
aðeins einsöngvaramir heldur hrífst
maður ekki siður af framlagi með-
lima Capella antiqua, sem Konrad
Ruhland leiðir. Leikur Concentus
Musicus er það besta sem upp á er
boðið í flutningi á gamalli músik meö
upprunalegum hljóðfærum. Það er
sérstaklega í sínfóniunum og rítom-
ellunum, sem þessi „stóra” bljóm-
sveit fær að njóta sin. Hlustandinn er
leiddur inn i töfraveröld og endir
Orfeifssagnarínnar verður auðvitað
að vera barrok. Orfeifur fær ekki að
njóta Evrídísar sinnar á lágkúruleg-
an mannlegan máta, heldur býður
ApoDo honum himnavist með sér og
allir syngja og dansa glaðir
„moresca”, sannkallaðan
Bacchusardans. Að plötunum þrem-
ur loknum stendur maður upp sann-
færður um að svona hafi þetta hljóm-
aö í upphafL
EM
Vándldtar vejd
N°7 snyrtivOrur
Fást í betri snyrtivöruverslunum
og apótekum.
Pantiö í síma 52866 og fáiö sendan
frítt nýja snyrtivörulistann.
Sendum snyrtivörur í póstkröfu úr
næstu verslun.
RM B. MAGNUSSON
wmmmww holshrauni 2 • sími 52866 - p h 410 - hafnarfirði
4
4
Á
HELGAR-
OG VIKUFERÐIR
BROTTFARIR
ALLA LAUGARDAGA
OG ÞRIÐJUDAGA
VERÐ FRÁ
KR. 8.202 PR. MANN
(TVEIR í HERBERGI)