Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1983, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1983, Síða 5
r* •Tr-r'V-T.-v <-» DV. FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER1983. Hrossabændur harðorðir: Fulltrúa Efnahagsbanda- lagsins haldið frá stórgripasláturhúsunum Hér sést hópurinn sem kemur tram á hljómleikunum í kvöld ásamt aðstand- endum. Linton Kwesi Johnson er lengst til vinstri í íremri röð. DV-mynd Einr Ölason. Harkaleg gagnrýni kom fram á út- flutning landbúnaðarafurða og það kerfi sem unniö er eftir á aðalfundi Hagsmunafélags hrossabænda sem haldinn var á Hótel Sögu í fyrradag. M.a. fullyrtiSkúli Kristjánsson, bóndi í Svignaskarði í Borgarfirði og stjórnar- maöur í Hagsmunafélaginu, að fulltrúa Efnahagsbandalagsins heföi veriö haldið frá aö skoða fullkomið stórgripasláturhús Kaupfélags Borg- firðinga tii þess aö útflutningur hrossa- kjöts til EBE-landanna kæmi ekki til greina. Sagði Skúli útflutningsaöila hér á landi hafa óttast aö slíkur út- flutningur myndi hafa einhver áhrif á 600 tonna kvóta okkar hjá EBE-lönd- unum fyrir dilkakjöt, sem Skúli áleit algjöra firru. Skúli var að svara þeim orðum Magnúsar Friðgeirssonar, aöstoðar- framkvæmdastjóra búvörudeildar Sambandsins, að hér á landi fyndist ekkert sláturhús á stórgripum sem hefði leyfi til þess að slátra fyrir EBE- markaðinn. Þess vegna myndi allur út- flutningur íslensks hrossakjöts setja markað okkar á dilkakjöti þar í stórhættu, en nú hafa fslendingar 600 tonna kvóta fyrir dilkakjöt til Efna- hagsbandalagslandanna. Efnahags- bandalagiö heföi það nefnilega fyrir reglu aö setja algjört innflutnings- bann á öll þau ríki sem reyndu aö flytja út kjöt til þess, í trássi við þær reglur sem það setur sem skilyrði fyrir kaup- um á kjöti. Hrossakjöt slátrað hér heima myndi falla undir þetta brot og dilkakjötsmarkaðurinn yrði því í hættu. Magnús Finnbogason, bóndi á Lága- felli í A-Landeyjum, sagði að hinn danski fulltrúi Efnahagsbandalagsins, sem hér ferðaðist um í fyrra til þess að skoða sláturhús, heföi látið á sér skiljast að ýmis stórgripasláturhús kæmu til greina með þetta leyfi m.a. sláturhús SS á Selfossi og Magnús lýsti furöu sinni á því að ekki skyldi gengið eftir skýrslu þessa trúnaöarmanns EBE, þannig að stórgripasláturhúsin fengju fullt leyfi til stórgripaslátrunar fyrir EBE-markaöinn. Gunnar Páll Ingólfsson hjá fyrir- tækinu Ismat í Njarðvíkum sagði sölukerfi okkar á kjöti gersamlega steinrunnið. Islendingar virtust engan skilning hafa á því að þeir væru með mat í höndunum þegar slátrað væri. Síöan væri varan geymd í ófullnægj- andi kæligeymslum allt upp í nokkur ár og þá væri reynt aö troöa þessu ofan í neytendur, hvort sem þaö væri hér heima eða til útflutnings. Gunnar sagði fyrirtæki sitt hafa gert tilraunir með aö vakum-pakka hrossakjöti fljótlega eftir slátrun og hefðu menntaöir kjötiðnaöarmenn annast verkið. Kjötið hefði verið til- reitt fyrir neytendur og heföi líkað af- bragðsvel. Á innanlandsmarkaði hefðu bestu bitarnir verið seldir á kr. 180,-kg í heildsölu, sem væri margfalt verð sem fengist fyrir hrossakjöt annars. Núna væri meira aö segja sumt hrossakjöt boðiö á kr. 25,- í búðum og seldist ekki, enda hefði þaö aldrei verið meðhöndlaö sem mannamatur og síöan geymt lengi í ófullkomnum kæli- geymslum. íslenskir námsmenn: Mótmæli fyrir utan sendiráð Frá Dóru Stefánsdóttur, Kaupmanna- höfn: Nokkrir tugir íslenskra námsmanna söfnuðust í gær saman fyrir framan íslenska sendiráðið í Kaupmannahöfn. Voru þeir aö mótmæla skerðingu námslána og drætti á afhendingu þeirra. Flutt voru stutt ávörp, slagorð hrópuð og sungin ættjarðarlög. Að því loknu var sendiráðsritaranum afhent mótmælaskjal sem hann tók við í f jar- veru Einars Ágústssonar sendiherra semnúerstadduríStokkhólmi. -JSS. Einn þekktasti reggaetónlistar maður heims — heldur hljómleika í Sigtúni í kvöld Þá hefðu útlendingar fengið prufu- sendingar af svona hanteruðu kjöti og líkaö afbragðsvel. Gunnar bauðst til þess að taka 150 til 200 tonn af hrossa- kjöti til vinnslu og hann skyldi á- byrgjast sölu á því. Hún kæmi því miður þó ekki alveg strax. Svona út- flutning þyrfti því auðvitaö að fjár- magna eftir eðlilegum leiðum. Gunnar sagöi að þeir hjá Ismat hefðu meira að segja gert verðmæta vöru úr hrossafitu með því að skera fituna frá kjötinu, pönnufrysta hana og selja hana loðdýraræktendum, sem líkaði hún mjög vel til fóðurs. Hann taldi lágmark að Islendingar ættu einhvern lager að útflutningshæfu kjöti á hverjum tíma þegar kaupendur birtust. Miðaö við núverandi handar- baksvinnu á slátruninni ásamt stein- runnu leyfakerfi í útflutningnum væru allir kaupendur fyrir löngu horfnir eitthvert annað, loksins þegar afgreiöa ætti vörunatilþeirra. -G.T.K. Linton Kwesi Johnson, einn þckkt- asti reggaetónlistarmaöur heims, heldur hljómleika í Sigtúni í kvöld klukkan 22. Honum til aðstoöar verður hljómsveit Denis Bovell, en sú hljómsveit hefur löngum verið Linton Kwesi innan handar. Það eru samtökin „Viö krefjumst framtíöar” sem standa fyrir þessum hljómleik- um. mgh-Tech 260 (jX)LBY Ný hapróuð hljómtækjasamstæða fýnr kröfuharðan nútímann > 33 Z Já, hún er stórglæsileg nýja SONY samstæðan. Fyrir aðeins 32.750,- stgr. gefst y^ur tækífæri til að eignast þessa stórglæsílegu samstæðu, eða notfæra ykkur okkar hagstæðu greiðslukjör. 2x35 sinus watta magnari (2x65 musik wött) með fullkomnu tónstillíkerfi SOUND EXCHANGER, steríó útvarp með FM, MB og LB, tveir 60 watta hátalarar og rúsínan í pylsuendanum, kassettutækið, tekur að sjálfsögðu allar gerðír af kassettum, leítari fram og tíl baka og síðast en ekki síst Dolby B og C. Dolby B er gamla kerfið sem er á flestöllum tækjum, en í dag er það Dolby C sem gildir og að sjálfsögðu voru SONY fyrstír að ínnleiða það. £ ÖJAPIS hf BRAUTARHOLTI 2 Helstu útsölustaðír: Akranes: Stúdíóval. Akureyrí: Tónabúðín. Borgames: Kaupfélagið. Eskífjörður: Pöntunarfélagið. Hafnarfjörður: Kaupfélagið, Strandgötu. Hella: Mosfell. Homafjörður: Radíóþjónustan. ísafjörður: Eplið. Keflavík: Stúdíó. Neskaupstaður: Kaupfélagið. Reyðarfjörður: Kaupfélagið. Seyðisfjörður: Kaupfélagið. Tálknafjörður: Bjarnar- búð. Vestmannaeyjar: Músík og Myndir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.