Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1983, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1983, Side 13
DV. FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER1983 13 Eiga sauðfjárbændur að st jóma eggja- framleiðslu? Kjallarinn Aö undanfömu hefur fariö fram talsverö umræöa um málefni land- búnaðar á opinberum vettvangi. Eitt nýjasta innleggið í því máli er frá Framleiðsluráöi landbúnaöarins og birtist í Búnaöarblaðinu Frey nr. 22 1983 undir fyrirsögninni „Hugmynd aö stjómun eggja-, kjúklinga- og svínakjötsframleiöslu...” Sýnist mér aö þarna séu aö fæðast hugmyndir um aö færa kjúklinga- og svínakjötsframleiðslu undir fram- leiösluráö — og auðvitaö eiga neytenur aö borga brúsann. Það er sagt, strax í upphafi, að hugmyndir þessar séu unnar í „sam- ráöi” viö stjórnir viökomandi sérbú- greinafélaga. Bærilega er nú af staö farið. Undirrituöum er kunnugt um aö hugmyndir þessar eru a.m.k. ekki unnar í samráöi viö Félag kjúklinga- bænda, enda hefur stjórn þess ekki verið faliö aö vinna aö þessu máli. Þaðmun hinsvegar mála sannast aö hugmyndir þessar eru upprunnar al- farið hjá Framleiösluráöi og ef til vill aö einhverju leyti frá vissum aöilum í hænsnarækt, sem hafa notiö sér- staks velvilja Framleiösluráösins á undanförnum árum í sambandi viö úthlutanir úr Kjarnfóöursjóði. Þaö er staðreynd aö útdeiling á fjármun- um úr sjóöi þessum hefur veriö meö þeim endemum, að meira aö segja Pálmi Jónsson, fyrrverandi land- búnaöarráðherra og stofnandi sjóðsins, sá sig tilneyddan aö fara fram á upplýsingar um eftir hverju væri f ariö viö val á sty rkþegum. Peningar og völd Þaö hefur veriö sagt aö peningar jafngildi völdum og má líklega til sanns vegar færa. Svo mikið er víst að sá, sem hefur fé handa á milli getur notaö þaö hvort heldur er til góös eöa ills. Ötrúlegt er að land- búnaðarráöherra sá sem kom kjarn- fóðursjóöi á laggirnar, hafi ekki gert sér grein fyrir því og trúlega hefur þaö eftir allt ekki verið vanhugsaö af honum aö fela Framleiösluráöi að ráöstafa fjármunum þeim sem sjóö þennan mynduöu. Sauöfjárbóndinn á Akri hefur vafalaust gert sér grein fyrir hvernig hagsmunum hans væri best borgið. Og nú er sem sagt komið aö því aö hagsmunasamtök sauöfjárbænda ætla aö fara aö stjórna framleiðslu þeirra, sem ekki eiga þá köllun helsta aö hlaupa á eftir rollum upp um fjöll og firnindi. En eins og flest- um er kunnugt hefur sauöfjárrækt verið stunduð sem trúarbrögð en ekki atvinnuvegur hér á Islandi í seinni tíö. Mættum viö hugsa til þess hvernig fór fyrir Spánverjum, er þeir töldu sig of fína til aö stunda annan búskap en sauöf járrækt. Ef viö snúum okkur aö „hug- myndunum” og byrjum þar sem merktur er liöur 1 í áöurnefndri grein í Frey, þá segir aö ,,Setja skuli Ingimundur Bergmann framleiöendum eggja, kjúklinga- kjöts og svínakjöts búmark” . . . sem taka skuii miö af framleiðslu áranna 1981 og 1982. Nú má náttúrlega endalaust deila um viö hvaö skuli miöa í svona löguöu. En skyldi þaö vera algjör tilviljun aö miöa á viö ár, sem henta sérlega vel fyrir þá sem framleiöa fugla fyrir á- kveöiö sláturhús, eigi langt frá Bændahöllinni, og sem er þeim sem þar sitja ákaflega kært, a.m.k., ef marka má fjárveitingar á undan- förnumárum? I lið 2 segir: , ,Gera skal áætlun um hæfilegt framleiðslumagn af framleiöslu hverrar búgreinar, sem hér um ræöir, til eins árs í senn.” Hver gerir áætlanir? Það mun óhætt aö segja aö í tilefni af þessu vakni ýmsar spurningar. Hver á aö gera áætlun um hæfilegt framleiöslumagn? Framleiðsluráð? Á magniö aö fara eftir því hve mikiö af dilkakjöti fer á útsölu á kostnað ríkissjóðs og framleiöenda á eggjum, fuglakjöti, svínakjöti og mjólk? Munum útsöluná á gulgræna k jötinu síöasta haust. Samkvæmt liö 3 viröist sem þaö sé ætlunin aö koma upp einhvers konar miðstýrðum sölustöövum á umræddum vörum. I framhaldi af því mætti spyrja: Hafa fram- leiöendur samþykkt aö leggja niöur þá dreifingu, sem þeir hafa, ýmist hver fyrir sig eöa nokkrir saman? Hvernig á aö bæta mönnum þaö tap, sem þeir óhjákvæmilega veröa fyrir, ef þeir hætta dreifingu? Þaö veröur aö gera ráö fyrir aö sú starfsemi gefi eitthvað í aöra hönd. Er ætlunin að selja alla kjúklinga, svo aö dæmi sé tekið, undir einu vörumerki? Hvemig litist neytendum á þaö? Þegar stéttarsamband sauöfjár- bænda og Framleiösluráö þess eru komin meö þessar samkeppnis- greinar sínar undir sinn alræðishramm, hvaöa möguleika hafa þá þessar búgreinar til aö þróast? Þaö er margviðurkennt af for- manni Stéttarsambandsins, aö verö á afurðum þessara búgreina sé vegna kjarnfóöurgjaldsins 6—7% hærra út úr búö en þaö væri án þess. Þaö mun láta nærri aö sannleikanum sé hagrætt um svona helming og aö talan sé 10—12%, a.m.k. er þaö nær sanni. Formaöurinn hefur jafnan látið þaö fylgja meö aö þessi 6—7% séu svo sem ekki neitt til aö vera aö gera veöur út af, hreinn hégómi. Nú, ef 10% eru ekkert sem máli skiptir, því þá ekki aö lækka verö á sauðfjár- afuröum um 10% Varla getur þaö veriö meira mál en aö hækka verö á öörum vörum. Ráðstöfun kjarnfóðursjóðs Athugum nú hvernig fjármunum úr Kjarnfóðursjóði hefur veriö ráöstafaö: Stór hluti hefur farið í greiöslur til sauðfjárræktarinnar og líklega sá stærsti. Öllum má þó vera ljóst aö sú búgrein myndar ekki sjóöinn. Þá hefur fariö væn fúlga í að greiða niöur verö á áburði, sem m.a. er notaður af garöyrkjubændum sem ekkert greiöa í sjóöinn. Loks hefur ýmsum hænsnabænd- um veriö hyglaö meö fé úr sjóönum undir því yfirskini aö um styrki til kynbótastarfsemi væri aö ræöa. (Kaupa stuöning?) I lokin má leiöa hugann aö því aö kjamfóöurgjaldiö hækkar heildar- verömæti landbúnaöarafuröa. Þaö leiöir svo aftur til þess aö út- flutningsbótaréttur og sjóöagjöld hækka. Af öllu þessu má vera ljóst aö Framleiösluráö og handbendi þess eru síst fallin til aö stjórna málum íslensks landbúnaöar, a.m.k. öörum en þeim, sem snýr aö sauðfjárrækt, og væri óskandi aö þessir aöilar fyndu sér önnur og veröugri verkefni íframtíöinni. Ingimundur Bergmann bóndi, Vatnsenda Vfllingaholtshreppi. Æk „En eins og flestum er kunnugt hefur ^ sauðfjárrækt verið stunduð sem trúar- brögð, en ekki atvinnuvegur hér á íslandi í seinni tíð.” Hálendisleiðir IV: DYNGJUFJALLALEIÐIR I síöustu grein enduöum við á Gæsavatnaleið og fleiri möguleikum frá Sprengisandi. Rætt var uin hugsanlega nýja leið norðan Trölla- dyngju, sem kæmi á eldri slóöir sunnan Dyngjufjalla, en nú skulum við líta á þessar leiöir aö noröan. Aðalleiðin til Henubreiöarlinda og Dyngjuf jalla liggur af þjóðvegi 1 við Hrossaborg og er nú orðin sæmilega greiöfær. Tvær óbrúaðar ár, Grafar- landaá og Lindaá, eru þó á þeirri leiö, en sæmilega háir bílar eiga samt aö komast í Heröubreiðarlindir og inn í Drekagil. Ef menn hinsveg- ar ætla að fara suður fyrir Dyngju- fjöll, veröur að krækja langt út á sandana fyrir taglið á Þorvalds- hrauni, og þessir sandar eru oft lausir í sér og þungir, og því aðeins fyrir jeppa og aöra drifbíla. Þaö þyrfti nauðsynlega aö bæta leiðina vestan Dyngjuvatns og ryöja veg yfir Þorvaldshraun, þar sem þaö er mjóst undir brekkunum. Slík aðgerð mundi bæta Gæsavatnaleiöina veru- lega og einnig gera hringakstur um Dyngjufjöllin auöveldari. Þessi hringakstursleiö liggur hjá Katt- bekingi og um Dyngjufjalladal, sem er hrikalegur og fallegur, þó aö hann séalgerauön. Ur norðurenda Dyngjufjalladals er gömul akstursleið norðvestur í Suðurárbotna og er ágæt jeppaleið þangaö, en þar fyrir noröan er sein- fariö og oft ekiö um gróðurlönd. I Suöurárbotnum skiptast leiðir og liggur önnur niöur í Svartárkot en hin til Grænavatns og Mývatns. Þessar leiöir munu lítið vera farnar núorðið en mega enganveginn falla út af kortinu. Heldur væri nær aö reyna aö lagfæra þær og forða frá, aö ekiö sé vítt og breitt um gróðurlönd. Sjálfur hef ég aldrei farið noröan Dyngjufjalla, en þaö hlýtur aö vera hægt að lagfæra leiðir þar, eins og alls staöar annars staðar um hraun ogsanda. Þaö vantar nýjar feröamannaleið- ir um Odáöahraun noröan Dyngju- fjalla og viö Mývatn, og mun ég nefna hér nokkrar æskilegar leiöir: 1. Betri leið vestur fyrir Heröubreiö aö uppgönguleiöinni. Ef menn ætla aö ganga á Heröubreið úr Lindun- um er það 4 tíma gangur aö uppgöngunni fram og aftur, þ.e.a.s.of langt. 2. Ökuleið aö Kollóttudyngju (Ólafur Jónsson sagði einhvers staðar, að hægt væri að aka alveg upp á Kollóttudyngju) og áfram noröur um Kerlingardyngju og Ketil- dyngju (Fremrinámur) í Heilags- dal og til Mývatns, og gera þá ferðamannaparadís enn vinsælli. 3. Leiöin að Dettifossi að vestan og niöur um Hólmatungur og Hljóöa- kletta til Ásbyrgis veröur að stór- batna og vera fær öllum bílum Og þá má enganveginn henda, aö þess- ar akstursleiöir veröi svo langt frá dásemdum náttúrunnar á þessu svæöi, aö aðeins þeir gönguglööu fái notiö þeirra. Brú yfir Jökulsá viö Vígabergsfoss yfir í Forvaðana er einnig mikilvægt framtíðar- verkefni. 4. Leiðin af Hólasandi til Þeista- reykja og áfram á gamla Reykja- heiðarveginn viö Sæluhúsmúla þarf einnig aö batna og veröa fær öllum bílum og er þá að sjálfsögöu gert ráð fyrir, að Reykjaheiðin haldist áf ram sem sumarvegur. Hér hef ég nefnt nokkra möguleika, en sjálfsagt eru margir aðrir til, og sumir þeirra kannski engu síðri en þeir, sem nefndir voru. Kverkfjallaleið Aöalleiöin til Kverkfjalla liggur til suðurs frá Möörudal og um Kreppu- brú og hrikalegt, vikurfyllt hraun í Krepputungu. Hvannalindir, yndis- legur gróöurreitur í miðri auðninni, eru heimsóknarinnar viröi, þótt ekki væri farið lengra, en Kverkfjöllin eru ævintýraheimur, hrikalegt háhita- svæöi meö óþrjótandi gönguleiðir, allt upp í 1920 metra hæö ef menn vilja. Fyrir nokkrum árum var þaö Einar Þ. Guð johnsen á dagskrá að byggja brú yfir Jökulsá við Upptyppinga en varð ekki af. Hvemig væri nú aö byggja þessa brú vegna ferðamanna? Mér finnst þaö sjálfsagður hlutur, þaö er fleira en rafmagn, sem gefur gull. Slík brú mundi tengja saman Kverkfjöllin og Dyngjufjöllin í feröatilhögun og gera dagsferöir mögulegar frá Mývatni, eða allavega miklu auðveldari. Ur Arnardal er hægt aö aka um Álftadal suður undir Brúarjökul og áfram til austurs og niður í Laugar- valladal og til Jökuldals. Þessi leiö gefur marga möguleika og þarf að batna og verða höfuðleið fyrir feröa- menn. Vestan Kárahnjúka rennur Jökuisá á Brú 1 ferlegu gljúfri, sem allt of fáir fá aö skoöa og þar rétt hjá í Laugarvalladal gæti orðið þægileg baöaöstaöa og áningarstaður fyrir feröamenn. Snæfellsleiðir voru erfiöar áöur fyrr úr Hrafnkelsdal, en meö 'drkiunaráformum viö Bessastaöa- vötn eru komnir nýir vegir inn á þessi öræfi og mun betri. Vonandi veröur ekki tekiö upp á því, aö ferða- mönnum verði bönnuö umferð um þá. Snæfell er hæsta fjall landsins utan Vatnajökuls, 1833 metrar, auðvelt uppgöngu að sunnan og stór- kostlegt útsýnisfjall. Einnig má alltaf sjá eitthvað af hreindýrum í nágrenni fjallsins. Þaö er því mjög mikilvægt, að ferðamannaleiðir til Snæfells batni og veröi öllum feröa- mönnum opnar. Fleiri nýjar leiðir eru æskilegar á þessu svæði, en trúlega er bezt aö hafa ekki fleiri orö um þær að sinni, og flytja sig á annaö svæöi. IMorðan Langjökuls Eins og nú er liggur slóö úr Vatnsdal og suöur í Fljótsdrög noröan Langjökuls. Önnur slóð ligg- ur úr Víðidal suöur aö Amarvatni og áfram til Kalmanstungu, og norðan Strúts liggur slóö austur í Hvítár- drög undir Eiríksjökli og einnig aö Reykjavatni. Þar með er þaö upptal- iö, sem merkt er á kort, en á jeppum er oftast hægt aö komast frá Amar- vatni austur um Stórasand og á Kjalveg ekki langt frá Sandkúlufelli. Stórir bílar eiga í erfiðleikum meö aö komast flest af þessu, svo að segja má aö öll þessi heiðalönd og sandar mega heita lokaö land fyrir aðra feröamenn en þá, sem vilja ganga eða f eröast á jeppum. Á leiðinni frá Kalmanstungu inn aö Arnarvatni er víöa ekið á gróöri, og einkum hefur Þorvaldsháls orðiö illa úti og gróöurskemmdir oröiö vegna aksturs. Eitthvað hefur verið lagað af þessari leiö undanfariö en það ætti að stefna aö því, aö þessi leið öll og áfram niður í Víðidal og Vatnsdal og einnig austur á Kjalveg veröi fær stórum bílum og jeppum, án þess aö aka þurfi á gróöri og meiri skemmd- ir veröi. Meö þeim aögeröum opnast víðáttumikil svæöi noröan Lang- jökuls fyrir ferðamenn, og meira að segja mjög eftirsóknarverð svæöi. Hliöarleiöirnar frá aðalslóöinni koma svo að gagni áfram, t.d. suður í Fljótsdrög, þar sem ganga á Jökul- stallana og aö upptökum Hall- mundarhrauns hlýtur að verða eftirsóknarverð. Þessi svæði öll hafa verið útundan í skipulagningu ferða um hálendiö, enda hafa þau veriö nánast lokuö vegna akstursöröug- leika. Slóöin austur með Strútnum og inn undir Eiríksjökul þarf aö batna veru- lega og færast af gróöri og út á Hall- mundarhraun meö smálagfæring- um. Eiríkisjökull, 1675 metra hár, er einn af okkar auöveldustu jöklum aö ganga á og þaöan er mikið víðsýni. IMorðan Hofsjökuls Ýmsar aksturleiðir hafa veriö um það svæði, en meö virkjun Blöndu breytist margt, og veröa því hugleiöingar um frekari akstursleið- ir og tengingar aö bíða. Einar Þ. Guðjohnsen framkvæmdastjóri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.