Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1984, Qupperneq 1
DAGBLAÐIÐ — VISIR
67. TBL. — 74. og 10. ÁRG. —MÁNUDAGUR 19. MARS 1984.
Svört skýrsla um at-
vinnumál á Norðurlandi
—sjábaksíðu
Nýir kjarasamningar samþykktir með
yfirgnæfandi meirihiuta íEyjum:
„ÞETTA ER
ÞOKKALEGUR
SAMNINGUR”
—segir Jóhanna Friöriksdóttir,
f ormaður Snótar
Nýju kjarasamningarnir voru sam-
þykktir meö yfirgnæfandi meirihluta
atkvæöa á fundi Verkalýðsfélags Vest-
mannaeyja og Verkakvennafélagsins
Snótar í gær. 94 félagsmenn greiddu at-
kvæöi meö samningunum, 8 voru .á
móti og 2 seðlar voru auðir.
Samningar höföu tekist í kjara-
deilunni í Eyjum á föstudagskvöld.
Var yfirvinnubanninu sem hafist haföi
þann sama dag kl. 17 þá frestaö.
Jóhanna Friðriksdóttir, formaöur
Snótar, sagöi í samtali viö DV að sam-
kvæmt nýja samningnum fengju 16 og
17 ára unglingar sömu laun og aðrir.
Þá heföi náðst fram ákvæöi um fata-
peninga, en samkvæmt því eru
greiddar kr. 1,65 á klukkustund í dag-
vinnu. Kvað Jóhanna þaö samsvara
um 2,5% hækkun en teldist til þátttöku
vinnuveitenda í kostnaöi. Einnig er í
samningnum ákvæöi um 2ja flokka
launahækkun eftir samtals 15 ára starf
hjá sama vinnuveitanda. Sagði
Jóhanna þetta vega um 4% hækkun
launa viðkomandi. Loks var ákveðið
aö stofna fastanefnd sem mun afgreiöa
þau deilumál sem upp kunna aö koma.
„Viö erum ekkert yfir okkur ánægö
með þetta,” sagði Jóhanna, ,,en þetta
er þokkalegur samningur þegar á þaö
er litiö að okkur var ætlaö aö sam-
þykkja ASI-VSI samninginn.”
-JSS.
Jón Sólnes, fv. alþingismaður, Skúli Alexandersson alþingismaður og
Steingrímur Sigfússon alþingismaður á fundinum i gær.
Fundur sjómanna og útvegsmanna f gær:
771 andsk...með
kvótakerfíð
— sjá bls. 2
Þœr skemmtu sér vel mœdgurnar Vigdís Finnbogadóttir forseti og dóttir hennar, hún
Ástrídur, á fjölskglduskemmtun í Háskólabíói í gœr. Að vísu kom leikhússtjórinn
fyrrverandi ekki fram á sviði en það gerði Ástríður dóttir hennar aftur á móti þar
sem hún lék álfamey í leikritinu Nátttröllið sem barnaleikhúsið Tinna sýndi. Eftir
sýninguna settist Ástríður hjá móður sinni og þœr fylgdust í sameiningu með öðrum
atriðum sem boðið var upp á.
DV-mynd E.Ó.