Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1984, Qupperneq 5
DV. MÁNUDAGUR19. MARS1984.
5
Mosfellssveit:
Samkeppni um
skipulag miðbæjar
Mosfellshreppur býður ásamt skipu-
iagsstjóm ríkisins til hugmyndasam-
keppni um framtíðarskipulag mið-
bæjarsvæðisj Mosfellssveit. Tilgangur
samkeppninnar er að fá fram hug-
myndir um uppbyggingu miðbæjar
sem yrði sameiginlegur þjónustu-
kjami fyrir öll byggðarsvæðin í sveit-
inni.
1978 var efnt til samkeppni um aðal-
skipulag og deiliskipulag afmarkaðra
svæða 1978 til 1999. Samkeppnin nú er
framhald þeirra hugmynda sem fram
komu í þeim tillögum sem fram komu
um aðalskipulagið. Aðalskipulag byggt
á tillögu sem hlaut fyrstu verðlaun í
samkeppninni 1978 var staöfest af
félagsmálaráðherra 28.9. ’83.
I markmiðum samkeppninnar um
miðbæjarsvæöiö er lögð áhersla á að
gera ytra umhverfi miðbæjarsvæðis-
ins eins aölaðandi og efni og ástæður
leyfa. Lögð er áhersla á að vemda sér-
kennilegt klapparsvæði sem er í hinum
fyrirhugaða miöbæ og að gróöursetn-
ing tr jáa og runna verði stórefld.
Lega Vesturlandsvegar meðfram
væntanlegu miðbæjarsvæði kallar á
breytingar á legu hans og er gert ráð
fyrir í aðalskipulagi að vegurinn verði
færöur til austurs og innansveitarum-
ferð eigi greiða leið ýmist yfir eða und-
ir Vesturlandsveginn.
Fjölgun íbúa hefur verið mikil í Mos-
fellssveit undanfarin ár, sú mesta á
höfuðborgarsvæðinu í heild. I árslok
1983 voru íbúar sveitarinnar 3.453 að
tölu. Heldur er gert ráð fyrir því í for-
sendum aðalskipulagsins aö dragi úr
hinni öru fólksf jölgun í sveitinni og sé
miöað við þær forsendur þá er gert ráð
fyrir að íbúar sveitarinnar verði orðnir
4.500 um 1990 og um 6.500 árið 2003.
Skilafrestur í samkeppninni er til 16.
apríl. Stefnt er að því að úrskurður
dómnefndar liggi fyrir í byrjun maí og
þá verði haldin sýning á öllum þeim til-
lögum sem berast. .jr
Fiskvinnsluskólinn i Hafnarfirði hélt nýlega námskeið i ferskfiskmati fyrir
starfandi matsmenn. Þetta var i fyrsta skipti sem slíkt námskeið er haidið
og voru þátttakendum kynntar nýjar aðferðir i ferskfiskmati. Námskeiðið
gaf mjög góða raun og á myndinni hér að ofan má sjá nokkra nemendur
meðhöndla dýrmæta rækjuna, fiskinn, sem allir horfa til um þessar mund-
jr D V-mynd Ægir Þórðarson.
HEIMILISTÖLVAN
Minni: 18 K Ram — stækkanlegt í 64 K Ram. 24 K Ram.
Örtölva: Z80ACPU.
Basic: Innbyggt. Tíu forritanlegir lyklar.
Innbyggðar Basic-skipanir í lyklum.
Tengingarmöguleikar:
Joystick diskettustöð,
prentari, segul-
bandstæki, sjónvarp
eða Monitor og Modem.
FISLÉTTUR, FRÍSKUR BENSÍNSPARI
CCM I PYMIR á qfr
OE-IVI. LC T IMIim OCn«
MICRA ÖRYGGIÐ FELST í: gæðum og endingu sem Nissan verksmiðjurnar einar geta tryggt.
GULLTRYGGÐ ENDURSALA á verði sem er það langbesta sem nokkur keppinautanna getur boðið á bílum sem eiga að heita sambærilegir.
NISSAN MICRA DX NISSAN MICRA GL
Hl ==L INGVAR HELGASON HF. Sýningarsalurinn/Rauðagerði, sími 33560.
ÖRUGGASTA OG BESTA VALIÐ