Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1984, Síða 18
18 M
REYKVÍKINGAR
Sjáífstæðisflokkurinn efnir til almenns stjórn-
málafundar í Valhöll, Háaleitisbraut 1,
þriðjudaginn 20. mars kl. 20.30.
Ræðumenn verða:
Þorsteinn Pálsson
alþingismaður,
formaður Sjálf-
stæðisflokksins.
Friðrik Sophusson
alþingismaður,
varaformaður Sjálf-
stæðisflokksins.
Salome Þorkelsdóttir
alþingismaður.
Almennar umræður
Allir velkomnir
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN.
Samvinnubankinn Suðurlandsbraut 18
mun frá og með þriðjudeginum 20. mars nk.
auka við þjónustusvið sitt og sjá um sölu
á ferða- og námsmannagjaldeyri.
Þar verður einnig hægt að stofna innlenda
gjaldeyrisreikninga auk þess sem útibúið veitir
alla þjónustu varðandi VISA-greiðslukort.
______________W'm
Flugleiöir:
FJÓRDUNGS AUKN-
ING í N-ATLANTS-
HAFSFLUGINU
— en samdráttur í innanlands- og Evrópuflugi
Þaö liggur nú fyrir að samdróttur í
Evrópuflugi Flugleiöa varö tæplega
sjö prósent í fyrra miðað viö árið áöur,
enda drógu Islendingar verulega úr
ferðalögum síðari hluta ársins. Það
kom einnig fram í innanlandsfluginu,
sem dróst saman um 8,5 prósent.
En aukningin í N-Atlantshafsfluginu
varð hinsvegar 24 prósent, sem er
langt yfir heildaraukningu allra flugfé-
laga á leiðinni. Hún er fimm prósent.
Talsverður hagnaður varð af rekstrin-
um í heild í fyrra og bíöa menn nú aðal-
fundartilaösjáhverhannvarö. -GS.
Láglaunakönnunin gefin út
Kjararannsóknarnefnd hefur nú
gefiö út á bók niöurstöður úr svo-
nefndri láglaunakönnun sem náði til 14
verkalýðsfélaga innan Alþýðusam-
bands Islands.
I bókinni er aö f inna skýrslu nefndar-
innar til forsætisráðherra frá 7.
febrúar síðastliðnum, lýsingu alls
úrtaksins, sem könnunin náði til ásamt
dreifingu dagvinnulauna, meðaltekna
og heimilistekna og skiptingu þessara
upplýsinga eftir kynjum. Þá er sundur-
liðun á þessum upplýsingum eftir
verkalýösfélögum og eftir kynjum
innan verkalýðsfélaga. Þá er einnig
sundurliðun eftir f jölskylduaðstæðum.
Bók þessi verður til sölu hjá Kjara-
rannsóknarnefnd og kostar 300 krónur
eintakið. Bókin er rúmar 400 blaösíöur
aðstærð.
Fiskeldi hefur verið kennt á Hólum í Hjaltadal í þrjú ár. A myndinni eru Heiða
Lára Eggertsdóttir nemandi og Pétur Bjarnason kennari.
DV-mynd: Bjarnleifur.
HólaríHjaltadal:
NÁMSKEIÐ í FISKELDI
FYRIR BYRJENDUR
Bændaskólinn á Hólum í Hjaltadal
hefur ákveðið að efna til þriggja daga
kynningamámskeiðs í fiskeldi fyrir
byrjendur. Námskeiöið verður haldiö á
Hólum dagana 14. til 16. apríl næst-
komandi.
Reynt verður að gera sem flestum
þáttum fiskeldis nokkur skil, bæði meö
bóklegri og verklegri fræðslu. Auk
starfskrafta skólans hefur skólinn
fengiö til liðs viö sig nokkra starfandi
sérfræöinga á hinum ýmsu sviðum
fiskeldis.
Þeim sem áhuga hafa á þátttöku er
bent á að tilkynna þaö fyrir 6. apríl.
Vegna plássleysis er aðgangur tak-
markaöur. Nánari upplýsingar veita
Jón Bjarnason skólastjóri og Pétur
Bjarnason kennari í síma 95-5962 og 95-
5961.
Bændaskólinn hefur um þriggja ára
skeið gefið nemendum sínum kost á
kennslu í fiskeldi í samvinnu við fyrir-
tækiö Hólalax sem á nýreista eldistöð í
Hjaltadal. Ríkiö á 40 prósent í Hólalaxi
en margir einstaklingar, einkum
bændur á Norðurlandi vestra, eiga 60
prósent. -KMU.
SUÐURNESJAMENN
VIÐ SKÁKBORÐK)
Þótt Suðumesjamenn hafi ekki átt
marga þátttakendur í hinum alþjóð-
legu skákmótum undanfarið þá hafa
þeir setiö allmikið að tafli seinustu
vikurnar. Nýlokið er tveimur skák-
mótum í héraðinu — skákmóti Voga-
manna og skákmeistaramóti Suður-
nesja sem haldið var í Garöinum.
Skákmeistari Vogamanna varð Olaf-
ur Sigtryggsson með 17 1/2 vinning.
Annar varö Orlygur Kvaran með
15 1/2 v. og þriðji Engilbert Pétursson
með 14 1/2 vinning.
Skákmeistari Suðumesja varð Helgi
Jónatansson, Skákfélagi Keflavíkur,
með 6 1/2 v. Annar varð Pálmar Breið-
fjörð með 6 v. og þriðji Sigurður H.
Jónsson meö 4 1/2 v. Tefldar voru 7
umferðir eftir Monrad-kerfi.
Að þessu móti loknu fór fram hrað-
skákkeppni. Pétur Sævarsson, Skákfé-
lagi Gerðahrepps, varð hraðskák-
meistari Suðumesja, Halldór Þor-
valdsson S.G. varö annar og Pálmar
Breiöf jörö SK varð þriðji.
Unglingaverðlaun voru veitt fyrir
bæði þessi mót. Siguringi Sigurjónsson
SK fékk þau fyrir frammistööu sína í
Skákmeistaramóti Suðurnesja en Karl
Finnbogason fyrir hraðskákmótið.
Þátttakendur voru jafnmargir í báðum
mótunum sem fram fór í Gerðaskóla,
eöa 22.
-emm