Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1984, Side 23
r>V. MÁNUDAGUR19. MARS1984.
23
yf irvegun skóp
Valsmönnum sigur
— sigruðu KR-inga, 87:79, og mæta nú
Njarðvíkingum íúrslitum
„Þetta var skemmtilegur leikur, viö
börðumst vel og vorum blessunarlega
lausir við taugaveiklun,” sagði Torfi
Magnússon, fyrirliði Vaismanna, eftir
að þeir höfðu unnið sætan sigur yfir
KR-ingum í úrvalsdeildinni í körfu-
knattleik í Seljaskóla í gærkvöldi.
Lokatölur voru 87—79 eftir að staðan í
hálfleik hafði verið 43—45 KR í hag.
Strax í byrjun var augljóst að bæði
liðin voru staðráðin í aö selja sig dýrt.
Gífurleg barátta var á báða bóga og
liðin sýndu körfubolta eins og hann
gerist bestur hér á landi. Algjört jafn-
ræði var með liðunum í fyrri hálfleik.
Tómas Holton, Val, og Páll Kol-
beinsson, KR, fóru á kostum og sýndu
að þar eru mikil efni á ferðinni. Seinni
hálfleikur hófst með álíka látum og sá
fyrri, en eftir nokkrar mínútur duttu
KR-ingar út af laginu. Þeir klúðruðu
hverri sendingunni eftir aðra og not-
færðu Valsmenn sér það vel. Þeir náðu
8 stiga forskoti sem KR-ingum tókst
ekki að ná upp þrátt fyrir sterka bar-
áttu. Valsmenn spiluðu mjög
skynsamlega síöustu mínúturnar og
tryggðu sér sigur, 87—79.
Valsmenn voru með mjög góöa
liðsheild og þar kom maður í manns
stað. Tómas Holton var hreint stór-
kostlegur í fyrri hálfleik uns hann
Samhygð
í úrslit
Samhygð úr Gaulverjabæjarhreppi
verður fjórða liðið í úrslitakeppni 2.
deildar karla í blaki. Samhygð vann á
föstudag Uð Breiðabliks með þremur
hrinum gegn tveimur.
Fjórir leikir fóru fram í kvenna-
blakinu um helgina, allir fyrir norðan.
KA sigraði Víking 3—1 og Völsungur
vann Þrótt 3—0 á föstudagskvöld. A
laugardag vann Völsungur 3—0 sigur
yfir Víkingi í Ydölum meðan Þróttar-
stúlkur unnu KA á Akureyri 3—0.
meiddist illa og þurfti að fara á slysa-
varðstofuna. Þessi ungi leikmaöur
hefur sýnt það og sannað í vetur að þar
er mikið efni á ferðinni sem á fram-
tíðina fyrir sér. Kristján Agústsson
var mjög sterkur í sókninni og komst
vel frá leiknum. Torfi Magnússon og
Jón Steingrímsson áttu góðan seinni
hálfleik. Aðrir voru ágætir.
KR-ingar klikkuðu illilega í seinni
hálfleik eftir annars frábæran fyrri
hálfleik. Hinn stórskemmtilegi leik-
maöur Páll Kolbeinsson var bestur
KR-inga en Garðar Jóhannsson var
einnig mjög góður. Guðni Guðnason og
Jón Sigurðsson áttu góðan fyrri hálf-
leik.
Þeir sem skoruðu stigin, voru:
Valur: Kristján Ágústsson 22, Tómas
Holton 16, Torfi Magnússon 14, Jón
Stcingrimsson 12, Jóhannes Magnússon 7,
Leifur Gústafsson og Einar Olafsson 6 hvor.
Páll Arnar 4.
KR: Garðar Jóhannsson 24, Páll
Kolbeinsson 22, Jón Sigurðsson 13, Guðni
Guðnason 12, Birgir Guðbjömsson 6, Agúst
Líndal 2.
Dómarar: Davið Sveinsson og Kristbjöm
Albertsson dæmdu ekki vel. -Þ.S.
Magnús Bergs
á skotskónum
Magnús Bergs skoraði mjög fallegt
mark, þegar Santander vann sigur 3—
0 yfir Palencia í spönsku 2. deildar-
keppninni í gær. Magnús skoraði með
góðu skoti eftir að hann hafði komist
Iaglega á auðan sjó með knöttinn —
sendi hann fram hjá markverði og í
fjær hornið. Magnús átti einnig stóran
þátt í þriðja markinu — markvörður
Palencia hálfvarði þá skot frá honum.
Knötturinn hrökk til samherja
Magnúsar, sem átti ekki í erfiðleikum
með að senda hann í mannlaust
markið. Santander nálgast nú 1.
deildina óðfluga. -SOS.
Rangers fékk
skell á Ibrox
Glasgow Rangers fékk skell á Ibrox í
8-liða úrsiitum skosku bikarkeppninn-
ar — tapaði þar 2—3 fyrir Dundee.
Ian Ferguson tryggði Dundee sigur —
skoraði tvö mörk en þriðja markið
skoraði Jim Smith. Þeir John
McClelland og Dave McPherson skor-
uðu mörk Tangers.
Celtic vann stórsigur, 6—0, yfir
Motherwell. Murdo McLeod, Mark
Reid, Tommy Bums, Brian McClair
(2) og Frank McGarvey skoruðu mörk
Celtic.
Aberdeen og Dundee United gerðu
jafntefli, 0—0. Dundee, Celtic og St.
Mirren leika í undanúrslitum og svo
Aberdeen eða Dundee Utd.
-SOS
URSLITINILEEDS
Arangur landsliftsinannanna í knattborftsleik í læeds varft þessi:
cC R. Williams U Jtt < DÍ 4) ra i « u cC S. Coeker T. Corina c 3 | á oJ 1 S
Gunnar J. 0 1/2 0 i 1 1/2 1/2 1/2
Agúst 0 1/2 1/2 0 1/2 1/2 1/2 0
Kjartan Kári 1/2 0 1/2 0 1 0 .1/2 1/2
Sigurftur 0 0 1/2 1/2 0 1/2 1 0
Asgeir 0 1/2 1/2 0 1/2 1/2 0 0
Guftni 0 0 0 1 1 1/2 1 0
Jón Orn 1/2 1 0 0 1/2 1/2 1 0
Bjarni 0 1/2 1/2 1/2 0 1/2 1 0
Teg. 84287 - leður. st. 22-38 - kr. 495,-
Teg. 86046 - klossar, st. 35-41 - kr. 199,-
Teg. 85823 - rúskinn. st. 25-45 - kr. 498,-
Teg. 85358 - leður. st. 40-45 - kr. 799,-
Teg. 0258 - leður. st. 35-46 frá kr. 785,-
Teg. 84294 - leður. st. 36-40 - kr. 874,-
Teg. 0232 - leður, 4 litir. st. 36-41 - kr. 649,
Teg. 0328 - leður. st. 36-41 - kr. 653,-
Teg. 0233 - leður. st. 36-41 - kr. 649,-
TOPP
21212 æ
SKÖRINN
VELTUSUNDI 1
ÍUP87
Auglýsing um innlausn
happdrættisskuldabréfa
ríkissjóös
D flokkur 1974
Hinn 20. mars hefst innlausn happdrættisskuldabréfa ríkissjóðs
í D flokki 1974, (litur: grænn).
Hvert skuldabréf, sem upphaflega var að nafnverði gkr. 2.000, nú kr. 20,00,
verður innleyst með verðbótum samkvæmt breytingum, sem orðið hafa
á vísitölu framfærslukostnaðar frá útgáfudegi á árinu 1974 til gjalddaga í ár.
Innlausnarverð hvers skuldabréfs er kr. 1.063,90
Til leiðbeiningar fyrir handhafa happdrættisskuldabréfanna viljum vér benda
á, að bréfin eru eingöngu innleyst í afgreiðslu Seðlabanka íslands.
Hafnarstræti 10, Reykjavík.
Þeir handhafar skuldabréfa, sem ekki geta sjálfir komið í afgreiðslu Seðla-
bankans, geta snúið sér til banka, bankaútibúa eða sparisjóða hvar sem er á
landinu, sem sjá um innheimtu þeirra úr hendi Seðlabankans.
Eftir gjalddaga greiðast engar verðbætur vegna hækkunar vísitölu
framfærslukostnaðar.
Skuldabréfin fyrnast á 10 árum, talið frá gjalddaga hinn 20. mars 1984.
Reykjavík, mars 1984.
RIKISSJOÐUR ÍSLANDS