Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1984, Síða 27
27
* v?i s.j1 .* m ,oi.Vj:>aWiAV .va
DV. MANUDAGUR19. MARS1984.
íþróttir
íþrótt
Karl-Heinz Rummenigge — dró í land.
Offenbach
rak stjórann
— eftir stórtapiö
íMtinchen
Kickers Oífenbach, sem er í mikilli
fallhættu í Bundeslígunni vestur-þýsku
í knattspyrnunni, rak stjóra sinn,
Lothar Buchmann, 48 klukkustundum
eftir aö liöið tapaði 9—0 fyrir Bayern í
Miinchen. Versta tap Offenbach í sögu
félagsins í 1. deild. Eftir ieikinn urðu
miklar deilur milli Buchmann og leik-
manna félagsins og formaðurinn, Sieg-
fried Leonhardi, greip þá í taumana.
Rak stjórann og tiikynnti að Hermann
Nuber, fyrrum aðalstjarna Offenbach,
myndi taka að sér stjórnina til bráða-
birgða.
hsim.
Leik áf ram
í landsliðinu
— þó Derwall svipti migfyrirliðastöðunni
Frá Hilmari Oddssyni, fréttamanni
DV í Þýskalandi.
„Ef Jupp Derwali sviptir mig fyrir-
liðastöðunni hætti ég í landsliðinu,”
sagði Karl-Heinz Rummenigge í viðtali
í þýska biaðinu Welt am Sonntag. Eftir
að salan á Karl-Heinz til Inter Milano
var ákveðin hafði Derwall látið þau orð
falla að fyrirliði þýska landsliðsins
yrði að leika með þýsku liði. Karl-
Heins tók þessu illa en hann hefur
verið fyrirliði þýskalandsliðsins þrjú
síðustu árin. Hann sagði að þetta kæmi
úr hörðustu átt því hann hefði varið
Derwall þegar hann var gagnrýndur
sem mest.
A sunnudag dró Karl-Heinz hins
vegar í land. Sagði þá við þýsku frétta-
stofuna SID að hann mundi ekki gera
neitt veður úr því þó Derwall svipti
hann fyrirliðastöðunni. „Eg mun
áfram leika með landsliðinu,” sagði
hann. Rummenigge, sem er 28 ára,
hefur leikið 73 landsleiki fyrir Vestur-
Þýskaland og hann mun ræða málið
nánar við Derwall þegar landsliðið
kemur saman í Hannover fyrir
vináttulandsleik við Sovétríkin þar 28.
mars.
HO/hsím.
Erika Hess
nálgast titilinn
— íheimsbikarkeppni kvenna
Erika Hess, Sviss, hefur alla mögu-
leika á að sigra í heimsbikarkeppni
kvenna í alpagreinum eftir að hún
sigraði í stórsvigi á laugardag í Jasna í
Tékkóslóvakíu. Hún er nú þrjátiu stig-
um á undan Hanni Wenzel, Lichten-
stein.
Erika hafði verulega yfirburði í stór-
sviginu. Hún sigraði á 2:17,08 min.
Michela Figini, ólympíumeistarinn
ungi frá S viss, varð í öðru sæti á 2:17,89
mín. Christin Cooper, USA, þriðja á
2:17,96 mín. Síðan komu Maria Epple,
V-Þýskalandi, á 2:19,42 mín. og hand-
hafi heimsbikarsins, Tamara
McKinney, USA, á 2:19,43 mín. Hanni
Wenzel varð aðeins í 12. sæti.
I sviginu í gær á sama staö sigraði
Riswitha Steiner, Austurríki, á 1:35,53
mín. Perrine Pelen, Frakklandi, varð
önnur á 1:35,82 mín. og í þriðja sæti
varð Paoletta Magoni, Italíu, á 1:36,34
mín. Mogoni varð ólympíumeistari í
svigi í Sarajevo. Erika Hess keyrði út
úr brautinni í fyrri umferðinni og
fylgdist því mjög spennt meö Hanni
Wenzel. Hanni varð í fimmta sæti og
tókst því aöeins að minnka stigamun-
inn á Hess en það var ekki mikiö. Að-
einsfjögurstig.
I stigakeppni hefur Erika Hess 247
stig. Hanni kemur næst með 221 stig.,
Síðan er langt bil í þriöju stúlkuna. Það
er Irene Epple, Vestur-Þýskalandi,
með 178 stig og í fjórða sæti er Tamara
McKinney með 168 stig. Henni tekst
ekki að verja titil sinn. Michela Figini
er svo í fimmta sæti með 164 stig. hsím.
Bikarkeppnin íFrakklandi:
Cannes aftur með þrumugóðan leik
— og Laval hefur einnig möguleika að komast í 8-liöa úrslit
Frá Arna Snævarr, fréttamanni DV í
Frakklandi.
Islcndingaliðin Cannes og Laval
hafa nokkuð góða möguleika á að kom-
ast í átta-liða úrslit frönsku bikar-
keppninnar í knattspyrnu. Fyrri leik-
irnir í 16-liða úrslitum voru háðir á
laugardag. Cannes vann góðan sigur á
1. deildarliði Sochaux á heimavelli, 3—
0, en Laval tapaði 1—0 í Rouen.
Hjá Cannes var Rampillon allt í öllu
en leikurinn var háöur í grenjandi
rigningu í Cannes og um tíma var
dómarinn í vaf a hvort hann ætti að láta
leikinn fara fram. Rampillon skoraði
tvö af mörkum Cannes. Hiö fyrra á 44.
mín. þegar hann einlék upp allan völl
— á mótherja eftir mótherja — og
skoraöi. Síðan markiö á 75. mín. en
Bertucci skoraði þriðja markið. Teitur
Þórðarson kom inn sem varamaöur.
Laval lék sterkan varnarleik í Rouen
og Karl Þórðarson lék þar allan
tímann. Liðið tapaöi 1—0 og skoraði
Tlémcane eina mark leiksins á 35. mín.
Enn tapaðBordeaux. Féll á heimavelli
fyrir Mulhouse úr 2. deild, sem hefur
leikmennina kunnu, Dieter Six (kom
frá Stuttgart) og Kees Kist, í liði sínu.
Six skoraði eina mark leiksins með
þrumufleyg af 35 metra færi eftir
skyndisókn á 64. mín. Urslit í öörum
leikjumurðuþessi:
Monaco—Nancy 2—0
Lens—Strasbourg 1—0
Metz—Bascanon 4—0
Toulon—Guingant 2—0
Nantes—Lyon 0—0
Það verður því f jör hér í Lyon þegar
Frakklandsmeistarar Nantes koma
hingað í heimsókn í síðari leikinn nú í
vikunni. Þá má geta þess, að Mulhouse
sló bikarmeistara Paris Saint
Germain út úr keppninni og viröist
hafa alla möguleika aö leika sama leik
gegn Bordeaux.
ÁS/hsím.
Olympia Rafeindaritvélar
í takt við tímann
Hraði, nákvœmni og nýjasta tœkni við skrifstofustörfm.
Vél fyrir þá sem gera kröfur um afköst, hagkvœmni og
hljóðlátan vinnustað.
Prenthjólið skilar áferðarfallegri og
hreinni skrift. Leiðréttingarminnið
hefur 46 stafi. Pappírsfœrslu og dálkasetningu
er stjórnað án pess að fœra hendur af
lyklaborði. Endurstaðsetning, leturþétting og
ýmsar leturgerðir.
Report 18.500,-
Compact 20.900,-
KJARAINI
ARMÚLI 22 - REYKJAVlK - SlMI 83022
SPARTA
SPARTA
INGÓLFSSTRÆTI 8, SÍM112024
LAUGAVEGI 49, SÍMI 23610
TANGO
Besti malarskórinn frá Adidas
nr. 37 - 44, kr. 1.170,-
PROFESSIONAL
Besti malarskórinn
Patrick, nr. 36—45, kr. 1.326,
PATRICK SOCCER
nr. 35—46, sterkir ó mölina, kr.
1.114,-
PATRICK KEEGAN 7,
nr. 28-43, kr. 680,- til 822,
FRJÁLSÍÞRÓTTASKÓR,
nr. frá 36, margar tegundir.
ADIDAS jogginallround,
nr. 40-47, kr. 1.955,-
TORINO,
nr. 30-35, kr. 740,
TRX TRAINING,
nr. 36-47, kr. 1.343,
TRX COMPETITION
nr. 38 - 46, kr. 1.343,-
Fyrir islandsmótið í borð-
tennis:
gúmmi — lím, grindur, net,
kúlur, skór í nr. til 39.
afsláttur af öllum vetrarvörum og skiða
— út mars —
fatnaði
stretchbuxur,
skiðajakkar,
úlpur,
vatthúfur,
hanskar,
lúffur,
skautar,
skíðasett,
80 - 90 - 100
Við rýmum til
fyrir vorvörunum
Póstsendum —
opið laugardaga.
SPORTVÖRUVERSLUNIN
Laugavegur 49, simi 23610. Ingólfsstrœti 8, simi 12024