Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1984, Qupperneq 42
42
DV. MÁNUDAGUR19. MARS1984.
Rakarastofan Klapparstíg
Sími 12725
Hárgreiðslustofan Klapparstíg
Tímapantanir
13010
í fjölbreyttu og vönduðu úrvali GENERAL reiknivéla eru
vélar fyrir einföldustu og flóknustu verkefni.
LATTU GENERALINN LEYSA DÆMIÐ
Verð frá kr:
1.549,-
stgr.
Viðgerða og varahlutaþjónusta.
S SAMBANDSINS
ÁRMÚLA3 SÍMAR 38900 - 38903
OG KAUPFÉLÖGIN
Margra ára reynsla GENERAL á sviði reikni og rafeindabún-
aðar tryggir að hugsað er fyrir þörfum kaupenda í öllum
smáatriðum.
OGENEROL
BORÐREIKNIVÉLAR
\ AUSTURLANB""■
BÍLASALA
Toyota Cressida
Toyota Carina GL
Toyota Corolla
Subaru station
4x4
Mazda 929 LTD
Mazda 626 2000
árg.1980
árg.1982
árg. 1982
árg.1981/82
árg.1982
árg. 1981
Volvo 244 árg. 1979/80/81 /82
Volvo 345 GL árg. 1982
Peugeot 504 L disil árg. 1982
Chevrolet El Camino
pickup árg. 1979
Chevrolet Sport Van
10 sæta árg. 1972
Bronco árg. 1966/73/74/76
Scout Terra pickup árg. 1978
Lada Sport árg. 1978/79/81
Bedford disil
torfærubíll árg. 1970
400 ökutæki og vinnuvélar á söluskrá.
Vegna mikillar sölu vantar ýmsar gerðir
bifreiða á söluskrá.
Ný tölvuunnin söluskrá vikulega.
FELL SF.
Fellabæ
Simar 97-1479, 97-1179
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
„Best að hreinsa mann-
fóíkið um leið og hundana”
Fréttapistill af Vatnsnesi
Nú til dags er Vatnsnes í V-Hún.
talið vera afskekktur staður.
Einu sinni var hér margt fólk; einu
sinni voru hér framin hryllileg morð
sem höfðu þær afleiðingar að sveitin
hér um bil tæmdist en smátt og
smátt kom fólk aftur. Og fyrir alda-
mót þegar Húnaflói var þakinn ís og
grasið óx ekki á Vatnsnesinu fluttust
heilar fjölskyldur til Vesturheims og
hvernig það fólk sem eftir var lifði
veit enginn því nú lifir enginn til að
segja frá. En að sjálfsögðu hefur
Vatnsnes séö betri ár eins og aðrar
sveitir sem urðu á sínum tíma fyrir
miskunnarleysi veðurguðanna.
Þetta fer í bylgjum eins og annað en
nú er orðiö fátt aftur á Vatnsnesinu,
bæir standa í eyði og á sumum bæj-
um þar sem einu sinni — og það ekki
fyrir allöngu bjuggu margir, er nú
aðeins einn búandi á hverjum.
Fyrir sunnan Vatnsnes stendur þorp-
ið Hvammstangi. Það var títið
„pláss” á striðsárunum og ennþá
minna við stríðslok. Margt haföi
flust til Reykjavíkur í vinnu og
möguleika. Nú hefur það breyst í
aðra átt. Hvammstangi hefur byggst
upp með hraði síðustu árin og nú eru
það Vatnsnesingar og aðrir úr sveit-
um V-Hún. sem hafa farið í þorpið.
En fyrir utan þessa fólksfækkun á
Vatnsnesinu búa margir blómlegu
búi í Víðidal, Miðfirði og við Hrúta-
fjörð.
011 þjónusta er með prýöi á
Hvammstanga. Bátar fiska og gera
þaö gott. Presturinn, sr. Guðni Þór
Olafsson, sem situr á Melstað, er
með skrifstofu í sama húsi og tann-
læknirinn starfar og ráðunautur
um landbúnað og þar er einnig sýslu-
skrifstofan og saumastofan. Þetta er
glæsilegt hús sem er eign Verslunar
Sigurðar Pálmasonar.
Kaupfélagið er gömul stofnun hjá
Húnvetningum og veitir það góða
þjónustu með kjörbúð, mjólkur- og
ostastöð og báðar verslanir reka
hvor fyrir sig sláturhús.
Lækna- og heilbrigöisþjónusta ér í
góðu standi. Báöir læknarnir eru sér-
fræðingar í heimilislækningum og
annar þeirra, Haraldur O. Tómas-
son, hefur nýlega hlotiö gráöu
M.CL.SC eöa Master of Clinical
Science frá Háskóla í London,
Ontario, Kanada. Hinn læknirinn,
Matthías Halldórsson, er einnig
hálærður í sinni grein frá Svíþjóð.
Þetta hlýtur að vekja athygli
manna, að ekki eru lengur allir sér-
lærðir læknar í Reyk javík.
Gamall bóndi ræddi við mig um
daginn út af hundahaldi í Reykjavík.
„Það er skrítið,” sagði hann bros-
andi, ,í hvert skipt sem ég fer í höfuð-
staöinn kem ég aftur heim upppestað-
ur og ekki var ég að kyssa hunda í
bænum.” Og svo hugsaði karlinn um
stund og bætti við með kimni í a ugun-
um. „Kannski væri best að hreinsa
okkur mannfólkið um leið og við
hreinsum hundana. ”
Það er óþarfi að minnast á veðrið
því að þótt það sé gott í dag getur
komið hríð á morgun.
-Róbert Jack/Vatnsnesi
í V-Húnavatnssýslu.
Fáskrúðsfjörður:
Samning-
arnir
samþykktir
— með breytingum
Frá Ægi Kristinssyni, fréttaritara DV
á Fáskrúðsfirði.
Samningar ASI og VSI voru sam-
þykktir með 30 atkvæöum gegn 1 á
fundi í Verkalýös- og sjómannafélagi
Fáskrúðsfjarðar á laugardag. Aöur
hafði formaður félagsins upplýst aö
munnlegt samkomulag heföi tekist við
atvinnurekendur um að fella út ákvæöi
um lægra kaup til handa 16—18 ára
unglingum. Þeir fá þannig 12.660 kr. á
mánuðimeðkauptryggingu. „R
K/wanisk/úbburinn Hek/a færði Hrafnistu i Reykjavík nýlega að gjöf
fuiikominn skoðunarbekk sem ætiaður er til notkunar á læknastofu
stofnunarinnar. Á myndinni hér að ofan er stjórn og styrktarnefnd Heklu
við afhendingu bekkjarins.
Félag bókasafnsfræðinema:
EFUÐ HÁSKÓLA ÍSLANDS
svo að hann geti þjónað hlutverki sínu
Félag bókasafnsfræðinema við Há-
skóla Islands skorar á ráðamenn
þjóðarinnar að beita sér nú þegar fyrir
úrbótum svo Háskóli Islands geti gegnt
hlutverki sínu og þróast á eðlilegan
hátt.
I ályktun frá félaginu er bent á þaö
að nemendum við Háskólann hafi
fjölgað um þriðjung á síðastliðnum
fjórum árum en f járveitingar til skól-
ans hafi ekki aukist að sama skapi. Þá
hafi kennurum ekki fjölgað til sam-
ræmis og kennslurými ekki stækkaö aö
undanskildu húsnæði fyrir 60 nemend-
ur tannlæknadeildar.
Þá bendir Félag bókasafnsfræði-
nema á að útlit sé fyrir að ekki verði
hægt aö kenna um helming þeirra
námskeiða sem nauðsynleg teljast í
greininni á haustönn 1984 vegna að-
stöðuleysis. -GB
Hressir og traustir
fréttaritarar óskast
Nútíminn hf. óskar eftir hressum og traustum
fréttariturum um land allt. Þurfa að geta tekið
myndir. Greiðslur fyrir hvert verk. Umsóknir
skal senda til Nútímans h.f. Síðumúla 15,
Reykjavík, og skulu þær ekki berast seinna en
1. apríl n.k. Starfandi fréttaritarar Tímans, er
óska að halda störfum áfram sem slíkir sendi
einnig bréf þar að lútandi fyrir sama tíma.
Nútíminn h.f.