Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1984, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1984, Blaðsíða 2
2 DV. LAUGARDAGUR 24. MARS1984. lí WKW 'a4 í FARARBRODDI H , -----------AR •3A OiAAU.MUíl*--! iaii^-ri;UAu;f' <Uv-U J iþjpl'; jbjóöum ¥ið ffötefcykfeiferö tii tj^SÉSp þríggja vikna dvöfi í sœluhúsi. I ■ ‘ Þú fyllir út seöilinn í Vikurmi qs Þar með ert þú oröin(n) þátttak$Ktft/‘- -t'jú bú sendir. bvi meiri vorÖa lHtuAikttov.f %. Og fyrir þá sem helst vilja vera heima og skoða sitt eigið land bjóðum við upp á úrvalsbílinn Toyota Tercel 4WD. Þeir sem senda seðlana núna eru líka með þegar dregið verður um hann, ef þeir eru skuldlausir áskrifendur. SUMIR HAFA HEPPNINA MEÐ SÉR. HVERS VEGNA EKKI ÞÚ? MISSTU EKKI AF TÆKIFÆRINU! ÁSKRIFTARSÍMINN ER (91 >-27022 Afmælisbarn vikunnar Afmælisbarn vikunnar er Erlendur Einarsson, forstjóri SIS. Hann á afmæli á föstudaginn, 30 mars, en hann erfæddurárið 1921. Um Erlend segir Afmælisdaga- bókin: „Þú lítur á allt frá vitsmunalegu viðhorfi, hefur skarpa dómgreind og öruggt raunsæi, og ert ágætlega faliinn til opinberra menntastarfa. Þú hefur ríka tilhneigingu til að brjóta allt til mergjar og skýrgreina kenndir manna og hvatir. Láttu ekki þessa tilhneig- ingu ná of sterkum tökum á þér, því hún getur valdið þér vinamissi og von- brigðum.” Erlendur Einarsson. SENDIBRÉF FRÁ SKIPTINEMA Elsku mamma mín: Eg hef það voða gott hér og mér finnst voöa gaman og hún Maribell, mamma hans Dean, segir aö hann hafi þaö voða gott á Islandi, en kvarti dálítið undan soðnu ýsunni sem er alltaf á fimmtudögum. Hér er aldrei soðin ýsa. Það eru allir hér voöa góðir við mig og alltaf þegar koma gestir kallar Maribell á mig og sýnir mér gestina og segir að ég sé skiptineminn frá Islandi. Þá verða allir voöa glaðir og áhuga- samir og ég þarf að segja þeim svo margt um land og þjóð. Eg veit að þú hefur haft áhyggjur af því hvort ég hagi mér vel hér úti. Þú skalt ekki hafa áhyggjur af því, mamma min. Eg hef ekkert gert af mér hér í Texas, nema ég braut pínu- litla rúðu þrem dögum eftir að ég kom út. En ég er alveg hættur að gera það núna. Eg fór nefnilega í útilegu meö nokkrum strákum og við hittum hóp af fólki. sem hafði verið að læra íhugun og sjálfskönnun hjá indverskum jóga. Þeir byrjuöu að kenna okkur og þaö hefur komiö í ljós að ég er voða óham- ingjusamur og bældur persónuleiki, meö sterka „antisocial tendencies”. En þeir eru að hjálpa mér voða mikið núna ogégverðbráðumalveglausvið hatriö á foreldrum minum, íslensku þjóðfélagi, Islandi, soðinni ýsu og út- lendingum. Þá verð ég voða hamingjusamur og get iðkað íhugun daglega til að endumæra sálina. Eg fór með þeim á útisamkomu sem stóð í þrjá daga, um síðustu helgi, og mér leið svo vel aö ég faömaöi að mér negrastúlku sem var við hliðina á mér og sleppti henni ekki fyrr en eftir sex- tán tíma. Hún sagðist aldrei hafa verið föðmuð svo innilega. Mér leið eins og þaö væri logandi kertaljós í maganum. En s vo kom rigning og mér varö kalt. Annars er allt fínt aö frétta og viltu senda mér nokkra vasaklúta. Eg er svo kvefaður og svo græt ég svo oft af hamingju. Þinn elskandi sonur Kormákur. „Hún sagðist aldreihafa verið föðmuð svo innilega." LEIKFANG VIKUNNAR „Ég er unnandi allra inniiþrótta," segir leikfang vikunnar, miðaldra opinber starfsmaður. „Eg var mjög efnilegur knattspyrnumaður áður fyrr en varð að hætta vegna meiðsla. hlú verð ég þvi að láta nægja að fylgjast með þó það sé stundum sártað fá ekkiað taka þátt."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.