Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1984, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1984, Blaðsíða 9
DV. LAUGARDAGUR 24. MARS1984. 9 Fóstur- fedur I endurminningum sínum kallar Armstrong móöur sína Mayann. Frá henni segir hann meðal annars: ,,Mayann sá alltaf fyrir því aö ég ætti nóg af fósturfeðrum til aö ég væri aldrei buxnalaus. Eg gat varla snúið svo viö henni baki aö ekki væri kominn nýr fósturfaðir. Sumir þeirra voru af- bragösmenn en aðrir voru ekki þess viröi aö umgangast þá. Einkum og sér í lagi átti þetta viö einn sem hét Albert. Slim var ekki miklu betri en Albert var sá versti af þeim öllum. Dag nokkum sátu hann og mamma á bólverkinu viö gamlá síkiö niöri viö Galves Street og rifust um eitthvað á meöan ég lék mér nokkuö frá. Skyndilega kallaði hann hana svarta tík og barði hana í andlitiö svo aö hún 'féll i síkið. Því næst gekk hann í rólegheitum í burtu án þess svo mikið sem líta til baka.' Eg varö óskaplega hræddur. A meðan Mayann lá í vatninu og öskraöi og veinaði meö blóöið lagandi úr andlitinu byrjaði ég aö hrópa á hjálp eins hátt og ég gat. Fljótlega kom fólk hlaupandi og dró hana upp úr vatninu en mínúturnar sem liðu þangaö til voru hræðilegar. Eg hef aldrei fyrirgefiö þessum manni hegöun sína og ef ég sé hann einhvern tímann aftur rota ég hann. Eg hef oft veriö í New Orleans síðan og ég hef aldrei rekist á hann. Gamalt fólk segir aö hann sé dauður. Bestur af fósturfeðrum minum — ég man aö minnsta kosti eftir sex — var Gabe. Hann var kannski ekki eins upplýstur og gáfaður og hinir en hann haföi heilmikið af heilbrigðri skynsemi og það skipti miklu máli fyrir mig á þeim tíma. Hvaö Slim stjúpa minn snertir þá var hann alls ekki sá versti en hann drakk mikið. Stundum var hann góður og blíður en í önnur skipti tók hann Mayann og lamdi hana sundur og saman. En hann gerði þaö nú aldrei þegar ég var viöstaddur. Eg gleymdi aldrei tilvikmu meö Albert og þaö var aldrei neinn sem fékk að berja móöur mína aftur án þess aö ég geröi mitt besta til aö hjálpa henni. Þegar Mayann byrjaði að vera meö Auglýsingadeild, Síðumúla 33 símar 27022 - - Reykjavík, 82260. Staðgóður danskur morgunmatur i afslöppunarfötum. Fyrsta konan TVÖ AUKABLÖD - í APRÍL kemur út laugardaginn 7. apríl. Blaðið kemur út í byrjun sýningar Bílgreina- sambandsins, AUTO '84. AUGLÝSENDUR, sem áhuga hafa á að auglýsa vörur sínar og þjonustu, vinsamlegast hafi samband við auglýsingadeild DV, Síðumúla 33 eða í síma 82260, virka daga kl. 9—17 fyrir fimmtudaginn 29. mars nk. ERLENT FERÐABLAÐ — sumarleyfisferðir til útlanda — kemur út laugar- daginn 14. april. Blaðið kemur út á þeim tíma sem flestar ferðaskrifstofur hafa fullgert sumar- áætlun sína og þegar landinn ætti að skipuleggja sumarleyfisferð til útlanda. AUGLYSENDUR, sem áhuga hafa á að auglýsa vörur sínar og þjónustu, vinsam- legast hafi samband við auglýsingadeild DV, Síðumúla 33 eða í . sima 82260, virka daga kl. 9—17 fyrir fimmtudaginn 5. april nk. HAFIÐ SAMBAND! Armstrong segir svona frá því þegar hann hitti fyrstu konu sína: „Eg held aö The Brick House sé ein svakalegasta búlla sem ég hef spilaö á á ferli mínum. Það var veitingahús meö bar þar sem hafnarverka- mennirnir söfnuöust saman á hverju laugardagskvöldi og einbeittu sér aö stúlkunum sem gengu þar um gólf. Þessir drengir drukku ótrúleg býsn og gengu í skrokk hver á öðrum eins og hjólsagir. Flöskurnar flugu um sali og yfir höfuöiö á okkur spilurunum og þaö var líka alveg ríkulegt af venjulegum skotbardögum og slagsmálum með hnífum. En svo merkilegt sem þaö var þá hafði þetta aldrei nein áhrif á mig því aö ég var bara ánægöur að hafa einhvern staö þar sem ég gat leikið á homiömitt. Þrjá eöa fjóra laugardaga í röö tók ég eftir því aö ein stúlknanna horföi á mig meö þessu eina rétta augnaráði. Eg spilaöi fyrst áfram og lét sem það skipti mig engu en ég fór smám saman aö horfa til baka á nákvæmlega sama hátt. Stúlkan hét Daisy Parker. Af hennar hálfu voru þetta hrein og bein viöskipti og af minni hálfu var þetta hversdagslegt daður. Þessu komst ég nú ekki aö fyrr en ég var kominn í eitt af herbergjunum á loftinu meö henni. Hún hafði nefnt veröiö sem ekki var sérlega hátt á þeirra tíma mælikvarða og ég stakk upp á því við hana að viö hittumst þegar ég væri búinn að spila. Hún samþykkti það og ég spilaði áfram og hugsaöi meö mér: Þetta er aldeilis falleg lítil Creola- stúlka. Eg vissi ekki hvað beið mín. Eftir aö leiknum var lokið rauk ég upp á loft, næstum því án þess aö nota stigann, og Daisy dró sig í hlé frá þeim sem hún var meö og kom á eftir. Bæði hún og ég vorum búin að ljúka vinnudeginum þannig aö við vorum á herberginu frá fimm um morguninn þangaö til langt fram á eftirmiödag- mn. Þaö fyrsta sem ég tók eftir hjá Daisy þennan morgun — en ég sagöi ekki neitt um það því að ég trúöi ekki mínum eigin augum — var aö þegar hún klæddi sig úr þá fór hún úr gervi- mjöömum sem hún notaði til aö vera glæsilegri í vexti. Eg hugsaði með sjálfum mér: Hér hef ég gengið og gapaö yfir henni og vextinum og svo er þetta ekki annað en sundbelti! En áöur en ég náöi aö velta þessu meira fyrir mér kom hún sjálf meö skýringuna. Hún sagöi að hún væri allt of grönn, aðeins 50 kíló aö þyngd. Eins og hún var vaxin var hún nauöbeygö aö vera með beltið og vöxturinn varð við það aldeilis lýtalaus. Þaö gerði heldur ekki neitt til því hún leit bæöi vel út og vár auk þess akkúrat rétta stúlkan fjrrir mig. Eg vandist „sundbeltinu” smám saman og vandist því jafnvel að sjá hana taka þaö af sér og f innast hún enn líta vel út. Við vorum oft saman eftir þann dag og viö urðum smám saman ákaflega ástfangin. Daisy var tuttugu og eins og ég átján. Eg var svo ástfanginn aö við komum aldrei inn á þaö aö hún átti „old man” en þaö kölluöu stúlkurnar mann sem þær voru löglega giftar.” Louis Armstrong með tveimur aðdáendum, leikaranum Wiiiiam Langford og leikkonunni Tallulah Bakhead. SUm var ég að veröa stór strákur. A hverjum einasta degi voru slagsmál í hverfinu: slagsmál á mUU meUna inn- byrðis, mUU fóla og jafnvel mUU barna. Einhversstaöarí hverfinu var aUtaf verið aö rífa hús þannig að þaö var alltaf nóg af múrsteinum innan seUingar. Um leiö og einhverjir lentu í vandræðum hlupu þeir aö næsta hrauk og byr juöu að henda múrsteinum hver í annan. Og þegar viö krakkarnir sáum þetta tókum viö sama hátt upp. Morgun nokkum um tíuleytið byrjuðu SUm og Mayann herfileg slagsmál á horni Gravier Street og FrankUn Street. A meöan þau slógust færðu þau sig niður FrankUn Street þangaö til þau voru komin að krá Kids Brown. Þar var eldhúskarlinn aö þrífa og var meö dyrnar opnar. SUm og Mayann duttu — enn í brjáluðum slagsmálum — inn á barinn, fóru kringum píanóiö og út á dansgólfið á bak viö. A meðan á þessu gekk kom einn af vinum mínum, sem hét Cocaine Buddy, hlaupandi og náöi í mig um leið og ég kom út úr skólanum í frímínút- um. ,Elýttu þér, Dipper,” (þaö var viöumefni mitt, stytting úr Dipper- mouth eftir melódíunni Dippermouth Blues.) „Flýttu þér, þaö er náungi að ber ja mömmu þína. Eg fleygði frá mér bókunum mínum og hljóp á vettvang. Þegar ég kom aö krá Kids Brown voru þau enn aö slást en nú voru þau á leiöinni út á götu aftur. „Láttu mömmu mína vera. Láttu mömmu mína í friði,” kallaði ég. Þegar hann vildi ekki hætta fékk ég ágæta hugmynd og náöi í nokkra múr- steina. Það tók mig ekki margar sekúndur og þegar ég byrjaði aö fleygja í hann steinunum skaut ég ekki einum einasta framhjá. Þann dag gat ég borið mig saman viö hvaöa base- ballhetju sem vera skyldi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.