Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1984, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1984, Side 23
DV. LAUGARDAGUR 24. MARS1984. 23 Eg veit ekki hvort menn hafa leitt getum að því hvað nafnið Eurythmics merkir. Nafnið er myndað úr tveimur orðum sem þó skarast; fyrri hlutinn vísar til Evrópu og síðari hlutinn til ryþmans. Hvorttveggja ku eiga að vera vís- bending um einkenni hljómsveit- arinnar en fyrst og fremst hljómaði nafnið vel og var valið af þeim sök- um. Og tónlist Eurythmics hljómar iíka vel og hljómsveitin á fáum árum komin í hóp frægustu hljómsveita heimsins, tilnefnd til Grammy-verð- launa og átti samkvæmt áliti Melody Maker bestu plötu síðasta árs: Touch. En hver eru þau, Dave Stew- art og Anne Lcnnox, sem skipa Eurythmics? avid Allen Stewart fæddist 9. september 1952 í Sunderland, móöir hans bamasálfræöingur sem á þeim árum hafði heldur byltingarkenndar liugmyndir um uppeldi barna. Sam- kvæmt kokkabókum hennar átti bömum að leyfast að gefa ímyndun- araflinu lausan tauminn. Sjálfur segir David að hann hafi ekki veriö spilltur en hins vegar fengið aö reyna ýmislegt sem öömm var bannað. Móðir hans kannaði til dæmis hvaða áhrif litur matarins hefði á matar- lyst drengsins; blár vellingur eða grænar kartöflur vom því daglegt brauöá heimilinu. En áhugi stráksins beindist fljótt að íþróttum og fengi hann áhuga á einhverju átti það hug hans allan. A hinn bóginn var Dave mikill tæki- færissinni í áhugamálum og eins hvað íþróttirnar áhrærði. Hann byrjaði á hjólaskautum, síöan stang- arstökki, svo skíðaíþróttum, hlaup- uin og loks knaltspyrnu. Heföu forlögin ekki gripið inn í væri Dave Stewart sennilega fasta- maður í Sunderland-liðinu í stað þess að vera tónlistarmaður. Tólf ára gamall varð hann nefnilega fyrir hnjaski, eins og þeir segja Bjarni Fel. og Ingó í sjónvarpinu, og lá vik- um saman á spítala meö brotna hnéskel. Spítalavistin var leiöigjörn og engin óskalög sjúklinga í Eng- landi svo einhverjum vandamanni datt í hug aö færa stráksa gítar að gjöf. Og þaö var ekki að sökum að spyrja: gítarinn heillaði hann ger- samlega og ekkert annað komst að! Dögum saman plokkaöi hann hljóðfærið hjúkrunarkonunum til sárra leiöinda og hann var ekki fyrr kominn heim af sjúkrahúsinu en blúsplötur bróður hans vom teknar traustataki og skipulagðar æfingar í blúsgítarleik hófust. , JVIig dreymdi rómantíska dagdrauma þar sem ég var flúinn til Ameríku og léki á gít- arinn minn á jámbrautarstöðvum og fékk brauöskorpur að launum,” segirhann. Fimmtán ára gamall var Dave kominn einsamall upp á svið í þjóð- lagaklúbbnum og lék mestanpart söngva Bob Dylans. Hann vakti at- hygli, lítill vexti og leit út fyrir aö vera tíu ára, sjónvarp og útvarp sögðu lítillega frá upptroðslum hans, en sjálfan dreymdi hann stóran draum; að komast í hljómsveit! Tækifærið kom upp í hendurnar á honum þegar hljómsveit aö nafni The Amazing Blondel lék í Sunder- land. Stráksi laumaðist inn í rútuna hjá þeim og hljómsveitarmenn urðu hans ekki varir fyrr en löngu síðar, hringdu á lögguna og foreldrarnir sóttu snáðann. En eftir viðræður for- eldra og hljómsveitar varð sam- komulag um það að leyfa Dave endrum og sinnum að ferðast með hljómsveitinni til að kynnast hljóm- leikaferðum og spilamennsku. Þar meö fékk Dave nasasjón af hljóm- sveitarlífinu. Seinna stofnaði Dave sína eigin hljómsveit, Longdancer, ásamt þremur vinum sínum, sem lék þjóðlagatónlist og var tíðum borin saman við Lindisfame. Fyrsta platan kom út á merki Rocket Recocds, útgáfufyrirtæki Elton Johns, og hljómsveitin fór í vel heppnaða hljómleikaferð með Elton, tók upp fleiri lög og sneri að því búnu upp tánum. Þetta var mikiö ævintýri sem stóð stutt en gaf góðan peningl aðra hönd. „Við lærðum að eyða fé á fljótvirkan hátt — mest í eiturlyf,” segir Dave. Það tók Dave sex mánuöi að ná sér, síðan æddi hann milli hljóm- sveita frá Osibisa til Sadista Sisters og eiröi hvergi. Þá hófst svartur kafli í sögu Dave, ferðalög og flækingslíf um Evrópulönd með eða án hljómsveita, eiturlyf og sukk en eftir bílslys í Þýskalandi sneri hann aftur á heimaslóðir. I Lundúnum hitti hann Peet Coombes, sem haföi veriö í hljómsveit í Sunderland. Þeir ákváðu að setja hljómsveit á laggimar, flökkuðu til megin- landsins um hríð, komu aftur til Sig vinur Peet þekkti stúlku :ra rödd sem væri rétt að . Hún vann á veitingahúsi í d og gegndi nafninu: Anne 'nneLennox fæddist í Aberdeen á jóíadag árið 1954. Faöir hennar vann við skipasmíðar og þó fjölskylduna skorti ef til vill ýmislegt í efnalegu tilliti var enginn skortur á hvatningu dótturinni til handa þegar uppgötv- aðist að tónlistarhæfileikar vom henni gefnir I ríkum mæli. Anne eignaðist leikfangapianó og lék á það, söng skosk þjóðlög þriggja ára og ári síðar veittist henni innganga í kvennó þeirra í Aberdeen. Þar lærði hún ýmsa mannasiöi en þó aðallega flautuleik og tónlistin varð fljótt annað og meira en tómstunda- gaman. Anne lék með ýmsum lúöra- sveitum og kammersveitum en þeg- ar táningsárin gengu í garð hafði hún gert tvær stórar uppgötvanir sem létu hana ekki í friði; popptónlist og strákar. Þetta tvennt gerði lífið þess virði að lifa því. Tónlistin kom einkanlega frá Tamla Motown, líka frá Bítlunum, Rollingunum og Kings en strákarnir frá Aberdeen. Samt var það klassíska tónlistin er hafði betur; sautján ára var Anne send til Lundúna í Konunglegu tónlistaraka- demíuna og hljóöfærin: pianó og flauta. Þrátt fyrir góðan ásetning, hæfileika og almenna ást á klassískri tónlist hvarf Anne frá náminu eftir þriggja ára puð. Hún lýsir náms- árunum sem sennilega mestu von- brigðum lífs míns. ,,Eg reyndi mitt besta til Jæss að aðlaga mig skólanum, skilja nemendur og kennara, en þeir voru svo stífir, stirðir og andlausir,” segir hún. „Og klassísk tónlist er sumpart sama marki brennd, ósveigjanleg, og gefur engin tækifæri á persónulegri tjáningu. Eg fékk óskaplega inni- lokunarkennd og varð að hlaupast á brott.” Þremur næstu árum eyddi Anne í Lundúnum, vann fyrir sér með ýmsu móti, seldi til dæmis notuö föt á markaði, gekk um beina á veitinga- stöðum, samdi lög og kom fram með nokkrum litlum hljómsveitum. Svo gerðist það dag einn að hún uppgötvaði sönghæfileikana og menn fóru að hafa á orði hvað hún syngi vel. Anne Lennox ákvað aö reyna fyrir sér sem söngkona, tróð upp með óþekktum hljómsveitum og beið eftir „réttum mönnum” til að vinna með. Enn varð hún þó að ganga um beina til að haf a í sig og á. Og kvöld eitt snemma árs 1977 komu tveir ungir menn inn á veitingahúsið í Hampstead, Peet Coombes og Dave Stewart. Sá síðar- nefndi gekk til Anne og sagði há- tíðlegur: Viltugiftastmér? Og þannig hittust Dave Stewart og Anne Lennox. Hún bauö drengjunum heim, söng fyrir þá og upp frá því hafa Dave og Anne veriö óað- skiljanleg. Þar meö er Eurythmics samtekkifædd þvíáðurensúhljóm- sveit kemur til sögunnar er langur kafli um hljómsveitina The Tourists. Sú saga verður ekki sögö hér, en túr- hestamir unnu saman í rösk þrjú ár, gáfu út þrjár breiöskífur og glás af litlum plötum, slitu síðan sam- starfinu og Dave og Anne gátu þá loksins tekið til óspilltra málanna. Og það hafa þau svo sannarlega gert undir hljómsveitamafninu The Eurythmics. Þó fyrsta breiðskifa Eurythmics sé fáum kunn hafa seinni plötumar tvær gert hljómsveitina að stórveldi í rokkinu. Dave og Anne eru mjög metnaðargjöm og vita nákvæmlega hvað þau vilja, reynsluheimur þeirra er óhkur og spannar vítt svið, fjölbreytni er þeirra stóra tromp og flestir rokkunnendur geta ekki annað en fylgst með Eurythmics. Þau hafa eitthvað að segja í tónum, tali og myndum. -Gsal.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.