Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1984, Síða 2
2
öraeeÁítoMím'á87AÞfciL m:
Breid>
síðan
«Den lille mann»
Vinur liíla mannsins
vekur mikla athygli
Við rákumst á þessa yfirskrift í einu ónefndu erlendu blaði. Þar var greint
frá því að litlir menn viðsvegar um heirn hefðu nú himin höndum tekið eftir
að það spurðist að þeir hefðu eignast vin uppi á íslandi. Það hefur vakið
svo mikla athygli í þeirra hópi að nú er i bígerð að hefja hópferðir hingað
til lands með það fyrir augum að hitta þennan mann sem gefur sig út fyrir
að vera vinur litla mannsins.
Kryddarmn
í síðasta Kryddara skoraði
Magnús Ólafsson grínisti á
Albert Guðmundsson fjármála-
ráðherra. Magnús og Albert eru
báðir í Stjörnuliöi Ómars
Ragnarssonar. Þaö var ekki
auövelt að ná sambandi við fjár-
málaráöherrann því að eins og
alþjóð veit hefur hann verið
önnum kafinn við að troða upp í
gatið fræga. Það tókst þó að
lokum og var Albert ekki í
vandræðum með að snara fram
einni bráöfyndinni sögu.
Albert sagði að fyrst Magnús
hefði skorað á sig væri tilvaliö að
segja frá einu atviki sem átti sér
stað hjá Stjörnuliðinu.
En það var einu sinni eftir einn
góðan leik hjá Stjömuliðinu.
Ómar Ragnarsson hafði varla
tíma til að skipta um föt í
búningsklefanum á eftir leikinn
því hann varð að þjóta til að fara
að skemmta einhvers staðar úti í
bæ. Og Ómar var þotinn áður en
hinir liðsmennirnir vissu af. Það
sem Ómar vissi reyndar ekki
var að í asanum hafði hann tekið
nærbuxumar hans Alberts í mis-
gripum, þótt ótrúlegt sé. Það
fylgir síðan sögunni að þegar
Ómar kom heim og ætlaði að
ganga til náða gat kona hans
ekki annað en hlegið sig mátt-
lausa og Ómar var í miklum
vandræðum með að skýra út
fyrir henni hveraig hann hefði
komist í nærbuxur annars karl-
manns.
Albert var ekki lengi að hugsa
sig um á hvern hann ætti að
skora. Auðvitað hann Davíð
Oddsson borgarstjóra og það
með bestu sumaróskum.
1 /
/
Æ i
Ví 7 / r
. / 7
'íP ^ V
' > 7 7 /
/
OPIÐ ALLAR
HELGAR
Laugardaga kl. 9—19, sunnudaga
kl. 10-12 og 13-19.
Svart/hvítir
dekkjahringir
í öllum
stærðum.
HJÓLBARÐA-
VERKSTÆÐI
SIGURJÓNS
'HÁTÚNI 2A-SÍM115508
Hálf>
BAIMII
Lengsta auglýsing
í heimi
Dagblað eitt í Noregi komst ný-
lega í Heimsmetabók Guinness.
Ástæðan fyrir því var sú að í blað-
inu birtist ein lengsta auglýsing
sem menn muna eftir. Auglýsingin
mældist 6 metrar að lengd og náði
yfir 15 síður í blaðinu. Fyrirtækiö
sem auglýsti var bjórbruggunar-
fyrirtæki. En ekki vitum við hvort
íslensk dagblöð eiga eftir að fá
svona langar auglýsingar þegar
bjórinnverðurleyfðurhér.. .
Kýrnar í Japan
fá bjór dag hvern
— en ekki við
A meðan við Islendingar enun
orðnir langþreyttir á að fá ekki
alvörubjór gegnir öðru máli með
Kobekýrnar í Japan. Þær fá nefni-
lega dag hvem að gæða sér á úr-
vals bjór og í ofanálag fá þær
einnig sérstakt kúanudd. Þaö er
ekki nema von að sagt sé að þessar
kýr séu ofdekraöar. Astæðurnar
fyrir þessu dekri við kýrnar eru
þær aö fullyrt er að með þessu
móti sé hægt að fá það albesta
nautakjöt sem um getur. Enda eru
Kobekýmar heimsþekktar fyrir sitt
ljúfenga Kobebuff. En er það nú
ekki samt nokkuð langt gengið að
kýrnar í Japan fái bjór en ekki við
hér á Islandi, eins og við erum nú
þyrstir?
Á hlaupum
kringum jörðina
Tveir Englendingar hafa sett sér
þaö takmark að verða fyrstir að
hlaupa kringum jörötna. Hlaupið
mun hefjast við Tower Bridge í
London. Þeir félagar reikna með
því að veröa tvö ár að hlaupa þessa
vegalengd sem ku veröa 25600 kíló-
metrar. Ekki vitum við þó hvaða
leið þeir ætla aö fara og ekki heldur
hvort þeir ætla að hlaupa yfir höfin
blá.
Frumleg aðferð
Dómstóll einn í Austur-Finnlandi
dæmdi nýlega tvo þarlenda menn
til að greiða sektir fyrir aö hafa
reynt aö smygla nokkram eintök-
um af Jóhannesarguðspjallinu yfir
til vantrúaöra Rússa hinum megin
við landamærin. Aðferðin sem þeir
notuðu var nokkuð nýstárleg og
frumleg, en þeir hengdu guðsorðið í
loftbelgi, sem síðan svifu yfir til
Rússanna.
IIEYKT1
APAIHHIM
,,Því meira sem ég lœri því
meira veit ég og því meira
sem ég veit því meira gleymi
ég og því meira sem ég
gleymi því minna veit ég.
Hvers vegna þá í ósköpunum
að vera lœra?” sagði apinn
og hnipraði sig saman.
DV-mynd E.Ó.