Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1984, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1984, Qupperneq 4
DV. LAUSAROAGUR-28. APRtt, 1984. ” 4 ' Með því verra sem fyrir fólk getur komið er án efa að vera statt í flugvél og flugmaðurinn meðvitundarlaus af einhverjum ástæðum. Hætt er við að margir teldu sig ekki eiga mikið lengri h’fdaga fyrir höndum við þær aöstæöur. En ekki verður ófeigum í hel komið eins og margoft hefur sannast og það á svo sannarlega viö um hana Edithu Merrill. Hún og vinkonur hennar þrjár tóku litla flugvél á leigu til að fljúga frá Lake Pleasant Mobile Home Estates í Arizonafylki í Bandaríkjunum til Sedonaflugvallar, norður af borginni Phœnix í sama fylki. Flugvélin var af geröinni Piper Cherokee og flugmaðurinn, Bruce Tumer, gamalreyndur kappi úr síðari heimsstyrjöldinni. Skyndilega fékk hann hjartakast og féll meðvitundarlaus fram á stýri flug- vélarinnar. Kona flugmannsins sem einnig var meö í förinni hóf þegar að kalla á hjálp í talstöö flugvélarinnar en hin 78 ára gamla Editha Merrill tók við stjórn flugvélarinnar. Hún vissi ekki hvað sneri fram og aftur á stjórntækjum flugvélar en það var ekki um neitt að ræða, einhver varð að reyna að stjórna vélinni. — Eg hef aldrei á ævinni verið jafn- hrædd, segir Editha Merrill. — Mér leiö einsog ég get ímyndað mér að fólki líði þegar byssu er miðað að því. Eg var skrælþurr í munninum og titraði öll. Fljótlega tókst aö ná sambandi við Við skulfum i hnjáliðunum þegar við stigum út úr flugvélinni, en við komumst til jarðar hei/u og höldnu. Guði sé lof, ég er lent SedonaflugvöU þar sem Jack Seeley flugmaöur tók að sér að leiöbeina Edithu við stjórn flugvélarinnar. — Það hefur komið fyrir áður að við höfum þurft að leiðbeina óvönu fólki við stjóm flugvélar en aðeins einu sinni hefur það tekist svo vel að allir í flugvélinni komust heilu og höldnu til jarðar, segir Jack Seeley. En það tókst líka I þetta sinn. Með aöstoð Jacks tókst hinni 78 ára gömlu konu að lenda flugvélinni á herflugvelli í næsta nágrenni við Sedonaflugvöll. Og svo vel tókst til hjá Edithu að enginn í flugvélinni hlaut hina minnstu skrámu. — Hún sýndi aðdáunarveröa rósemi og stillingu, það bjargaði þeim öllum, segir JackSeeley. — Þetta var allt Jack að þakka. Hann útskýrði allt fyrir mér svo listi- lega vel að mér fannst eins og hann sæti við hliðina á mér, segir Editha. Sá eini sem ekki lifði flugferðina af var flugmaöurinn, Bruce Tumer. Hann reyndist látinn þegar komið var með hann á sj úkrahús. Strax eftir þessa einstöku lífsreynslu fór Editha til New Vork til að koma fram í sjónvarpi og að sjálfsögðu fór hún þangað með flugvél og það meira aðsegja þremur. — Eg hitti flugstjórana að máli í öllum flugvélunum og allir spurðu þeir mig hvort ég vildi ekki lenda vélinni fyrir þá. En ég afþakkaði öll boðin, ég er búin að fá nóg af því að lenda flug- vélum, segir Editha Merrill. KRISTJÁN n\\ít»sso\ á Feneyja- biennalnuni 1984 Kristján Davíðsson fæddist árið 1917. Hann hóf ungur að mála og telst vera sjálfmenntaður listamaður ef undan er skilið tveggja vetra nám við háskólann í Pennsylvaníu sem fór aö mestu leyti fram í fyrirlestrum. Kristján hafði snemma mikla sér- stöðu í íslensku málverki. Hann hafnaði alfariö hinni heföbundnu aka- demísku skólasýn og tók fremur mið af frjálsari myndgerð. Fljótlega á list- ferli sínum kynntist Kristján evrópska formleysismálverkinu og sá í því and- stæðu hins menningarlega málverks sem einkennt hafði evrópska listasögu í aldaraðir. Hann skynjaði að form- leysismálverkið stæöi nær náttúrunni og eðli mannsins. Þessi beina og í f

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.