Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1984, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1984, Qupperneq 8
Engilbert Jensen i dag. Trommu- leikurinn að mestu iagður á hilluna en gitarana handfjatlar hann dag- lega við vinnu sina. DV-mynd: EÓ. Gömlu góðu Hljómar frá því á jóium 1964. Engilbert lengst til vinstri, þá Rúnar, Gunnar og Erlingur. Myndin er i gömlum Bítlastíl, eiginhandar- áritun hvers og eins prentuð á myndina. ENGILBERT JENSEN: Gríp í sönginn „Eg fæst viö aö gera viö hljóöfæri,” segir Engilbert Jensen, söngvarinn góðkunni, sem var heimsfrægur um allt Island á árunum fyrir og eftir 1970. Frægastur er Engilbert eflaust fyrir söng sinn meö Hljómum sálugu en frá þeim árum þekkja flestir gulikom eins og Bláu augun þín og Þú og ég. Seinna söng Engilbert meö Lonlí Blú Bojs og síðast með Geimsteini, 1980. En í dag situr Engilbert hvunndags niðri á Klapparstíg og gerir við hljóð- færi, mestmegnis gítara, bæði raf- magns og án rafmagns. Hann er sjálf- lærður í iðninni og nýtur þar góðs af gamla tóneyranu. „Það er ómissandi í þessum bransanum,” segir Engilbert. Frá því að Engilbert hætti að syngja meö Geimsteini hefur hann ekkert komið fram opinberlega ef frá eru talin nokkur kvöld á Bítlaæðinu í Broadway í vetur. „Eg hafði nú engan sérstakan áhuga á aö taka þátt í þessu en lét tilleiðast á endanum,” segir hann. Þar með er ljóst aö það er ekkert á döfinni hjá Engilbert aö byrja aö syng ja opinberlega aftur. „Nei, þaö er ekki á dagskránni hjá mér, ég læt mér nægja að grípa í söng- inn við og við í hópi góðra kunningja og gríp þá einnig í gítarinn,” segir hann. En hvað með trommumar? „Það kemur fyrir að ég djamma meö kunningjunum en annars er ég aö mestu hættur að spila á trommurnar,” segir Engilbert. Engilbert fylgist vel meö öllu því sem er að gerast í tónlistinni í dag og lætur sér í léttu rúmi liggja þótt hann og hans líkar séu kallaöir skalla- popparar. „Þeir sem em að byrja í bransanum halda allir aö þeir séu að gera þetta af einhverri hugsjón. En einn góðan veöurdag vakna þeir upp við það að þeir em að þessu fyrir peningana,” segir Engilbert Jensen. -SþS Þuriður Sigurðardóttir söng um alllangt skeið með hljómsveit Ragnars Bjarnasonar. Vinstra megin við Þuríði á myndinni eru Stefán Jóhannsson, Ragnar Bjarnason og Jón Sigurðsson. Hægra megin eru þeir Andrés Ingólfsson (nú látinn), Grímur Sigurðsson og Árni Scheving. ÞURjDUR SIGURÐ ARDÓTTIR: Sólóplatan er enn á döf inni „Eg er húsmóðir og fæst þar að auki við að teikna auglýsingar í frístundum jafnframt því sem ég teikna fyrir sjálfa mig,” segir Þuríður Sigurðar- dóttir sem söng um langt árabil með hljómsveitum eins og hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar, Islandíu og síöast hljómsveit Eagnars Bjarnason- ar. Þuríður byrjaði komung að syngja. Aðeins 17 ára að aldri söng hún aðstað- aldri í hinu gamalfræga öldurhúsi Rööli. Árið var 1965. Söngurinn var svo aðalstarf hennar fram til 1978 er hún tók sér hvíld. „Eg byrjaði aftur að syngja opinber- lega þegar Bítlaæðið var sett upp í Broadway í fyrrahaust. Það var mjög Þuriður Sigurðardóttir i dag. Húsmóðir og auglýsingateiknari og syngur litillega enn. DV-mynd Bj. Bj. gaman að þessu, þetta var skemmti- lega unnið, maður var kominn heim um miðnætti þannig að þetta truflaöi heimilsiífið lítið,” segir Þuríður. Og þó að Bítlaæðið sé fyrir bí í bili syngur Þuríður enn i Broadway, bak- DV. LAUGARDAGUR 28. APRIL1984. STJÖRNUR GÆRDAGSINS HVAR ÞÆR NÚ? Hverjir muna ekki eftir lögum á borð við Bláu augun þín, O, hún er svo sæt, I sól og sumaryl, Þin innsta þrá? Og hverjir muna ekki eftir söngvurum eins og Berta Möller, Engilbert Jensen, Þorvaldi Halldórssyni, Þuriði Sigurðardóttur, Ingibjörgu Guðmundsdóttur og Bjarka Tryggvasyni? Allt eru þetta þekkt nöfn i sögu islenskrar da^gurtónlistar. En hvar er þetta fólk i dag og hvað gerir það? raddir og fleira. Og hún ætlar aö halda áframaðsyngja; til dæmis er sólóplat- an enn á dagskránni. „Það hefur oft verið talað um sóló- plötuna, en af einhverjum ástæöum hefur ekki orðið af henni ennþá, en það er aldrei að vita nema að það verði ein- hvern tíma,” segir Þuríður. Hún hefur þó ekki hug á aö leggja sönginn fyrir sig sem aðalstarf að nýju. „Nei, ég fer seint út í dansbransann aftur,” segirhún. Þuríður reynir að fylgjast með því sem er að gerast í tónlistinni í dag eftir bestu getu en tíminn er oftast naumur. „Yfirleitt set ég bara rás 2 á og læt hana ganga, eins og hinar húsmæðurn- ar,”segirhún. Annars eru það rólegu ballöðumar sem höfða mest til Þuríðar þó svo hún hlusti svo til á hvaða tónlist sem er. Henni líst vel á það sem er að gerast í tónlistarmálum hér á landi í dag og finnst gaman að sjá hvað mikiö af góðu fólki hefur komið fram á sjónar- sviðiö á síðustu árum. „Þó vil ég ekki ráðleggja neinum að byrja eins ungum og ég gerði, ég missti alveg af skemmtanalifi áranna kringum tvítugt. Eg hafði engan tíma til að skemmta mér sjálf,” segir Þuríð- ur Sigurðardóttir. -SþS Berti Möller i dag. Aðstoðarvarð- stjóri i lögreglunni, en á þessu ári eru 20 ár frá þvi Berti hóf störf þar. DV-mynd S. Falconsextettinn á gullaldarárunum. Berti Möller lengst til vinstri, þá Gissur Helgason, Arthur Ross Moon, Geir Vilhjálmsson, Eyjólfur Melsted og Sigurjón Fjeldsted. BERTIMÖLLER: Fyrst og fremst lögreglumaður „Eg er fyrst og fremst lögreglu- maöur en auk þess eiginmaður og faðir,” segir Bertram Möller sem flestir þekkja frekar undir nafninu Berti Möller. Berti var upp á sitt besta á rokktímabilinu í kringum 1960 og söng þá með ýmsum hljómsveitum eins og Plúdó-sextettinum, síðar Lúdó- sextettinum, og Falcon-sextettinum. Rokkarar þeirra tíma höfðu tónlist- ina bara að hobbíi og aðalstarf Berta varoghefurveriðlögreglan frá 1964. Hann hélt áfram að syngja alveg fram til 1978 er hann hætti alfarið. „Eg spilaði þá með Lúdó og Stefáni í Átthagasalnum á Hótel Sögu en þaö gekk æ erfiðlegar að samræma spila- mennskuna vaktavinnu hjá lögregl- unni. Eg sá aö þetta gekk ekki til lengdar og ákvað að hætta í spiliríinu,” segir Berti. Og svo harður var Berti á því að . hætta að hann seldi og gaf öll hljóð- færin sem hann átti. Og þannig liðu fimmár. Síðastliðið haust þegar Rokkhátíðin var sett upp í Broadway var að sjálf- sögðu leitaö til Berta og þá gat hann ekkisagtnei. „Það var ekki hægt, sérstaklega þegar ætlunin var upphaflega að þetta yrði bara eitt kvöld,” segir Berti. En þrátt fyrir að honum hafi þótt þetta alveg sérstaklega gaman og mót- tökumar frábærar hefur hann ekki í hyggju að byrja aftur. „Nei, ætli ég láti þetta ekki nægja, það er ekki séð fyrir endann á Rokk- hátiðinni ennþá,” segir Berti. Hann segist vera alæta á tónlist þó að stefnur eins og bárujámsrokk og tölvupopp höfði ekki til sín. Og honum finnst að íslensku tónlistarlífi hafi hrakaðfrá gullaldarárum rokksins. „Það fer ekkert á milli mála. Popp- arar í dag verða að vera afkáralega klæddir og haga sér afkáralega af þeirri einföldu ástæðu að þeir verða að fela lélaga tónlist meö einhverju öðm. Svona var þetta ekki í gamla daga. Þá kom fólkiö til að hlusta á tónlistina en ekki til að horfa á okkur,” segir Berti Möller. -SþS.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.