Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1984, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1984, Síða 10
10 DV. LAUGARDÁGUH 28. APRIL1084. HVERNIG VIVM RITHÖFUNDARNIR? Hvernig vinna rithöfundar? Það er áreiöanlega ákaflega misjafnt. Þessir menn vinna allir hjá sjálf- um sér og til þess að eitthvað komi út úr vinnu þeirra þurfa þeir að sýna sjálfum sér talsverða hörku. Líklega er líka varasamt að bíða eftir innblæstrinum. Hann getur látið á sér standa ef menn sitja bara aðgerðalausir og bíða. Viö þekkjum þaö sjálf, bara til dæmis þegar við þurfum að skrifa bréf, að það getur verið erfitt að manna sig upp, útvega nauðsyn- leg ritgögn og næði til þess að skrifa ómerkilegar fréttir að heiman, svo maður tali nú ekki um þegar á að fara að knýja Pegasus á léttu tölti eftir síðunum. Við rákumst á lýsingu á vinnu- brögðum nokkurra ólíkra skálda. Vonandi hafa einhverjir gaman af aö skoða hvernig þau fóru að. BARBARA CARTLAND: Les fyrir ilr sófa Barbara Cartland les einkaritara sínum,Ruth Walles, fyrir. Barbara Cartland var á þriðja ára- tugnum meðlimur í félagsskap í London sem kallaöur var „Gáfaða unga fólkið”. Hún reit líka í slúður- dálka Daily Express. „Beaverbrook lávarður kenndi mér að skrifa eins og blaðamaður: aö koma beint aö efninu og láta öll óþarfa orð hverfa.” Rætur hennar í blaða- mennsku og meöfædd atvinnu- mennska, auk að því er viröist tak- markalaus hæfiieiki hennar til að segja sögu, hefur skapað henni næst- um einstæðan feril sem söluhöfundur. Hún var tvítug þegar hún skrifaöi fyrstu rómantísku skáldsöguna sína (þótt hún heföi skrifað, myndskreytt og bundiö inn bók þegar hún var fimm ára). Hún var hvött til aöklára hana af vinum sínum sem efuðust um aö ung stúlka, sem oft og einatt dansaöi alla nóttina, gæti klárað skáldsögu í fullri lengd. Faðir hennar hafði verið drep- inn í Flanders 1918 og fjölskylda hennar var ekki rik svo hún skrifaði peninganna vegna. En: „Eg varð háð skriftunum. Eg hef gaman af þeim. Skriftir eru allt mitt líf.” Vinnuaðferðir Barbara Cartland svarar bréfum á morgnana, les fyrir sögur sínar milli eitt og hálffjögur síðdegis og veitir viðtöl aö kvöldi. Hún stefnir aö því að skrifa kafla dag hvern og getur skrifað sex til átta þúsund orð. Afköst Það tekur hana um tvær til þrjár vikur aö ljúka bók og hún hefur þrisvar sett heimsmet í ársafköstum: 20 skáld- sögur 1975, 21 skáldsaga 1976 og 24 1977. Árið 1978 skrifaði hún einungis tuttugu því hún eyddi talsverðum tíma í að taka upp hljómplötu með ástar- söngvum ásamt Royal Philharmonic Orchestra. (Þá var hún 77 ára.) I júh' 1979 vann hún að 277. skáldsögu sinni og sala hennar um allan heim er yfir lOOmilljónir. Vinnustaður Hún býr í Camfield Place í Hertfors- hire. Hún les fyrir úr sófa á bókasafni sínu með hvíta skinnábreiöu yfir fótun- um ásamt hitapoka, með tvo hunda við hlið sér og hraöritara tilbúna fyrir aftansig. Aðferðir Það var Godfrey Winn sem stakk upp á því aö hún læsi bækur sínar fyrir. „Góða ensku, sem ég nota í alvar- legum bókum mínum, skrifa ég með eigin hendi.” Dægurenskan, sem hún notar í bókum sínum („fólk býst við að lesa þá gerð samræðna sem þaö er vant úr útvarpi og sjónvarpi”), rennur betur, þegar hún er mælt fram. Bækur hennar eru að mestu byggðar upp á samræðum. Aðrir hlutar frásagnar- innar eru viljandi brotnir upp í stuttar málsgreinar til þess að líkjast samræð- um fljótt á litið. Hugmyndir aö sögum spretta af geysilegum lestri hennar í sögu. Hún rannsakar timabilið og þar sem hún er ákveöin í að vera með allar staðreynd- ir les hún tuttugu til þrjátíu bækur. Uppsláttarbækurnar sækir bílstjóri hennar í bókasafniö í London, sýslu- bókasafniö eða í bókabúð. Hún skrifar niður athugasemdir og skipuleggur fyrirfram hve mikiö pláss hver kafli eigi að taka. Þegar að því kemur aö skrifa söguna lifir hún frásögnina, sér hana gerast fyrir framan sig og leyfir henni einfaldlega aö streyma fram. Einkaritari hennar grípur hana síðan og skráir. Leiöréttingar og endur- skoðanir eru takmarkaðar eins og hægt er. Uppsprettur Saga er hennar eina uppspretta. Skrif í Years of Victory eftir Sir Arthur Bryant um hvemig Napoleon króaöi af 10.000 Bretóna í Frakklandi 1803 hefur orðið henni uppspretta að sex skáld- sögum. Heimsókn til Senegal leiddi af sér það sem virtist afraksturslaust tímabil þar sem hún sökkti sér niður í sögu Vestur-Afríku: „mjög leiðinlegt” þar til hún datt niöur á þunna bók sem sagði frá innflutningi á hvítum stúlk- um sem konum f yrir nýlendubúa. Sagnfræðin ljær þó einungis rammann að sögum hennar sem stans- laust tjá trú hennar á fullkomna ást sem er bæði líkamleg og andleg. „Þaö er hið hæsta andlega ástand sem maöur getur náð gagnvart guði. Ungar stúlkur áttu aö trúa á fullkomna ást og láta þaö næstbesta ekki nægja sér. Það að við endum með því að þurfa að sætta okkur við þaö næstbesta þýðir ekki endilega það að viö eigum að stefna að því. „Allar hetjur mínar eru hreinar meyjar. Stúlkumar, sem sofa hjá, taka blómann af kvenleikanum; alveg sama hvað þú notar mörg falleg orð um það,” segir hún. ERIVEST HEMIMGWAY: Skrifaði standandi Þegar Hemingway framdi sjálfs- morö eins og faðir hans haföi gert á undan honum með því að skjóta sig í Ketchum í Idaho, 63 ára að aldri, var hann ef til vill að horfast í augu við það á svakalegan hátt að hækkandi aldur gerði honum ókleift að halda áfram því ævintýralífi sem hann hafði lifað fram að því. Sh'ku lífi hafði hann lifað frá barnæsku, hann lofsöng þaö og varpaði fram efasemdum um þaö í mörgum bókum sínum. Líf hans hafði leitt hann til nautaats á Spáni, stórgripaveiða í Afríku og atburða og f jörs í hálfri tylft landa um hálfan heiminn. Þrír atburðir á litríkum ferli virðast hafa mótaö Hemingway mjög sem mann eöa rithöfund. Það fyrsta eru æskuárin sem hann eyddi við vötnin miklu og gerðu hann hrifinn af útilífi. Nasst voru það árin er hann starfaði sem blaöamaður smáblaðs. A því tímabili skóp hann sér sinn stutta, staðreyndahlaöna stO. Að lokum var það aivarlegt sár á höfði sem hann hlaut þegar hann var sjálf boðaliði á sjúkrabíl í fýrri heimsstyrjöld. Sú reynsla olli því aö hann horfðist í augu við dauðann, tema sem gengur í gegn- um um öll hans skrif. Vinnuaðferðir Stóran hluta rithöfundarferils síns átti Hemingway á Kúbu. Þar hafði hann fremur nákvæma dagskrá. Hann fór upp við fyrstu skímu og skrifaöi standandi og flutti þungann af öörum fætinum á hinn öðru hverju. Hann færði sig einungis yfir í stól og ritvél þegar skriftir gengu vel og engin ljón voru á veginum. Hann fylgdist með framvindunni hjá sér með því að skrá hana á stóra töflu sem hann hafði. („Til þess aö blekkja ekki sjálfan mig”) Hann skráði það hjá sér að hann þyrfti að vinna það upp daginn eftir ef hann hafði einhverra hluta vegna tekið sér frí frá störfum. Hann hætti venju- lega um hádegisbil dag hvern og aldrei öðruvísi en hann væri alveg viss um hvernig hann vildi halda áfram. Afköst Hemingway reyndi að skrifa milli 450 og 575 orð á dag en hann fór upp í 1250 orð til að vinna upp tapaöan dag. Vinnustaður Hemingway hafði sérstakt vinnu- herbergi í tumi í húsi sínu í Havana en honum fannst best að vinna í svefnher- bergi á jarðhæð. Þar var smápláss fyrir ritvélina hans uppi á bókaskáp. Snemma á ferli sínum vandi Heming- way sig á að vinna undir næstum því hvaða kringumstæðum sem var. Aðferðir Oft, en þó ekki alltaf, byrjaði Hemingway að vinna út frá óljósum út- linum sögu. Hann vissi til dæmis í Hverjum klukkan glymur hvað ætti að gerast í stórum dráttum en fann upp atburöi hvers dags jafnóðum og hann skrifaði. Hann sagðist einu sinni reyna að skrifa út frá sömu lögmálum og giltu um ísjakann, það er að fullbúið verkið gæfi í skyn reynslu sem ekki væri í skáldsögunni sjálfri en spennan af henni fyndist óafvitað. Gamli mað- urinn og hafið, sem er litil saga er afl- aöi honum ásamt öðru nóbelsverð- launa, hefði samkvæmt því sem hann sagði getað verið þúsund blaðsíður aö lengd. A hinn bóginn voru tvær skáld- sögur hans, To Have and Have Not og Across the River and into the Trees, upphaflega smásögur. Hemingway skrifaði með blýanti. Hann endurskoðaði skrifin þegar hann vélritaði þau upp og aftur þegar hann las próförk aö þeim. Uppsprettur Meirihluti skrifa Hemingways er greinilega byggður á eigin reynslu. Ofbeidisfull ytri atburðarás er í mið- punkti í öllum verkum hans hvort sem er í stríði eöa friði. Vopnin kvödd og Across the River and into the Trees eru byggð á reynslu hans í fyrri og seinni heimsstyrjöld á meöan Hverjum klukkan glymur byggir á reynslu hans í borgarastyrjöldinni á Spáni. Hann hefur sjálfur lýst The Green Hills of Africa sem tilraun til að skrifa alger- lega sanna bók — til að athuga hvort lögun lands og atburðarás eins mán- aðar, ef sagt væri sannferðuglega frá, gætu keppt við verk ímyndunaraflsins Sumar persónur hans voru teknar úr raunveruleikanum þó yfirleitt væru þær fundnar upp á grundvelli reynslu hans af fólki eða dregnar af mynd hans af s jálfum sér.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.