Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1984, Side 16
16
DV. LAUGftflDAGUK 2fr. APRIL'1984.’"1
Makki, eyru og reiðtygi eru úr leðri. Srtið
og málun er að finna á vinnu-
teikningunni.
m mmm
Líkami og handföng
Þessir hlutir eru mældir með aðstoð
barnsins sem á eftir að ferðast á reið-
prikinu. Handfangið verður að vera ör-
lítið lengra en grip barnsins hvorum
megin. Það er mikilvægt að lengd
reiðpriksins sé rétt. Ef búkurinn er of
stuttur er alls ekki hægt að nota reið-
prikið og ef hann er of langur rekur
barnið hann alls staðar utan í.
Makki og eyru
Þetta er teiknað á leðrið eftir fyrir-
myndum 2,3 og 4. Það eiga að vera tvö
stykki af fyrirmynd 4. Allir hlutarnir
eru skomir út með dúkahníf. Heili
kanturinn á öðrum faxhlutanum er
lagður eftir hnakka reiðskjótanp
þannig að afgangurinn af faxinu liggi
yfir hnakka hestsins. Glansandi hluti
leöursins á að snúa upp. Faxið er neglt
fast og þaö er látið vera um tveggja
sentímetra bil milli nagla. ‘
Þá er leðrið bleytt og tey gt þangað til
það fellur niður með þeirri hliöinni þar
sem naglamir em negldir. Eins er gert
við hina hliö faxins. Ennistoppurinn
(mynd 3) er festur ofan á höfuðið. Eyr-
un em brotin eftir punktalínunni meö
grófu hliðina út og eru negld á með
einumnagla.
Beisli
Allar reimar í beisliö eru skomar í 12
mm breidd og 300 millímetra lengd.
Byrjið á aö gera nefreimina. Hún á að
vera hæfilega löng til þess aö það sé
akkúrat hægt að troöa henni yfir nef og
höku. Endarnir eru festir saman meö
lími. Á mynd 5 má sjá hvernig endar
leðursins eru skomir til.
Reimin frá hringnum í nefreimina er
skorin á sama hátt og mynd 5 sýnir og
er síðan límd yfir nefreimina. Festing-
ar í hringana tvo eru settar eins og
sýnt er á mynd sex. Hinir tveir hlutar
smellunnar eru settir í hvor frá sinni
hlið í fyrirfram gert gat. Allt er þetta
lagt á hart undirlag og lamið á meö
hamri þannig aö festist vel saman.
Snarað og snyrt.
SGV.
Reiðprikið Sleipnir
Þeir eru margir bardagamir sem
fram hafa farið á reiðpriki. Mörg ung
hetjan hefur mnnið á aðra og barist
upp á líf og dauða í bakgörðum og
sundum þar sem enga vægð var að
finna. Margt fagurt sólarlagið hafa
ungir félagar riöiö inn í á baki svona
grips eða með glæsilega leggi í togi
millifótanna.
Reiðprikið er eldgamalt leikfang og
dæmigert leikfang sem foreldrar hafa
sjálfir gert fyrir böm sín. Reiöprikið
Sleipnir ætti því að toga allar fram-
takssamar mæður og feður upp úr
rúminu eða sófanum og aö smíða-
boröinu.
Reiðprikið Sleipnir er gert úr sam-
anlímdum og tilsöguðum fjölum,
búkurinn er kústskaft meö trékúlu á
enda. Eym og makki eru úr leðri.
Reiðprikið Sleipnir
Auðvelt er að gera reiöprikið úr
fjalarbút, gardínustangarkúlu og dá-
litlu af afgangsleðri. Það sem tekur
lengstan tíma er að mála þaö.
Höfuðið
Tréö sem er 26X125X450 mm er
skipt í eina f jöl sem er 300 mm á lengd
og aðra sem er 150. Þessi stykki eru
límd, kantur við kant, eins og
teikningin sýnir. Fyrirmynd eitt er
yfirfærð á tréð og síðan sagaö með
stingsög. Yfir alla kanta og brúnir er
farið með þjöl og sandpappír.
I tréð er borað með 22 mm bor og
þannig gerðar holur fyrir handfang og
búk. Búkur og handfang er síðan límt
við höfuðið. Kúlan er límd á búkinn.
Reiöprikiö er málaö tvívegis meö
olíumálningu. Því næst eru nef,
tennur, augna- og kjáikalinur færöar á
höfuöiö með málningu.