Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1984, Page 17
DV.LAUGAEDAGUR5.MAl 1984.
17
Bílar
Bílar
Bílar
Bílar
Bflar
JENATZY—C Jenatzy
1899 109,7 km/h
BENZ—B Oldtield
1910 211,8 km/h
SUNBEAM—H Segrave
1927 327,9 km/h
BLUEBIRD—M Campbell
1932 408,7 km/h
THUNDERBOLT—G Eyston
1938 502,2 km/h
„Thrust 2” er alls 3.859 kíló aö
þyngd meö ökumanni og elds-
neyti. Hann er 8,28 m langur, 2,54
á breidd og 1,37 á hæð (stýriugg-
amir aö aftan eru þó 2,18 m).
Minnsta hæö frá jöröu er 13 sm.
Bil milli hjóla er 6,35 m. Spor-
breidd aö framan er 1,99 m og að
aftan2,39m.
Richard Noble sat vinstra
megin viö tvítugan þotumótor-
inn, Rolls Royee 302 Avon, sem
gefur um 32 þúsund hestöfl. Þar
stýröi hann eldsneytisinngjöfinni
ásamt eftirbrennara fyrir mótor-
inn ásamt hemlunum sem voru
diskahemlar. Eldsneytiseyöslan
var 227,5 lítrar á mínútu.
Þessi risamótor úr Lightning
orrustuþotu frá breska
flughernum er hjartaö í þessum
álklædda, grindarbyggöa bíl sem
er meö sjálfstæöa f jöörun á öllum
hjólum.
Hratt, hraðara, hraðast...
RAILTON—J Cobb
1947 634,4 km/h
SPIRIT OF AMERICA—C Breedlove
1964 846,9 km/h
BÚUE FLAME—G Gabellch
1970 1.01 4,7 km/h
THRUST 2—R Noble
1983 1.019,0 km/h
Draumurinn sem rættist
THE BUUE HMflt
I tæpar sex sekúndur sat hinn 37 ára
gamli breski verslunarmaöur Richard
Noble eins og límdur í stólnum á bak
við öryggisbelti, geimfaraútbúnað og
öryggishjálm. Líkaminn hristist og
pressan var gífurleg vegna margfalds
þyngdarálags.
Augun þrýstust langt inn í höfuðið og
táraflóðið var svo mikið að hann rétt
sá sjóndeildarhringinn fram undan
gegnum örlitla f ramrúöuna.
Klukkan var þrjú þann fjórða októ-
ber 1983. Staðurinn var Black Rock
eyðimörkin í Nevada í Bandaríkj-
unum, ekki langt frá spilaborginni
Reno.
Allt stóö þetta aðeins í nokkrar
sekúndur, þá var leiksýningin búin.
Þaö var meö reyk og ryki sem
Richard Noble tókst að fá nafn sitt
skráö í heimsmetabækur þegar honum
tókst á risabíl sínum, „Thrust 2”, aö ná
mestum hraöa sem nokkurn tíma haföi
áöur náöst á jöröu niðri.
Meö bíl sínum haföi honum tekist að
fara ensku míluna (1609 metra) á
meðalhraöanum 1019 km (hámarks-
hraðinn varð 1046 km).
World Land Speed Record var staö-
réynd.
Nokkur hundruö áhorfenda uröu
vitni aö þessum atburði. England hafði
á ný eignast meistarann, nokkuö sem
þjóöin hafði átt i mönnum eins og Mal-
colm Campell og John Cobb.
Met Bandaríkjamannsins Gary
Gabelichs, sem var 1014,53 km á
klukkustund, á bílnum ,,Blue Flame”
frá 1970 var þar með slegið.
Þegar Richard Noble var hjálpaö
upp úr ökumanns-„brunninum” á
hinum 8,28 metra langa, 2,54 m breiða,
1,37 m háa (tveir stýriuggar að aftan
eru 2,18 m háir) og fjögurra tonna
þunga „Thrust 2” sagöi hann:
„Draumur minn sem drengs er upp-
fylltur.” Hann haföi náð því sem hann
ætlaöi sér. ,,Thrust”-áætlunin, meö
aðstoð 213 breskra fyrirtækja, haföi
kostaö 53 milljónir króna á nokkrum
árum.
Nú er nóg komið!
Hraðametin hafa verið sett aftur og
aftur svo lengi sem bíllinn hefur veriö
tu.
„Hvaö mig varðar þá er mínum hlut
lokið,” sagði Richard Noble, „ég hef
náö lokamarkinu. Eitt sinn er nóg, ekki
meira hættuspil fyrir mig.”
Hjá honum stóðu konan hans Sally
og dætumar Miranda, 4 ára, og
Genevieve, 3 ára, og hlógu. Þær voru
aö fagna deginum sem heimilisfaöir-
inn var aö enda lífshættulega sókn sína
aömetinu.
Noble, sem lifði ævintýraríku lífi á
unga aldri — fór í leiðangra bæði til
Suður-Afríku, Afganistan og Indlands
— byrjaði aö gera áætlun um hraða-
metiö strax áriö 1974.
Hann seldi Triumph TR6 bíl sinn og
fékk þar meö upphafið aö „Thrust 1”
sem nokkrir áhugamenn smíöuöu og
hann keyröi í klessu á flugbrautinni í
Fairford 1977. Þá læstist eitt hjólanna
og bíllinn valt þrjá hringi.
Þriggja ára vinna
Honum tókst aö fá hálfs árs launaö
leyfi frá því fyrirtæki sem hann vann
hjá og leitaði hófanna hjá breskum iðn-
fyrirtækjum sem lögðu sitt af mörkum
til að hægt var aö byrja smíði „Thrust
2”.
Eftir þriggja ára vinnu setti Noble
breskt met í hraðakstri á þriggja kíló-
metra flugbraut viö Greenham-
Common herstööina áriö 1980.
Richard Noble var á leiðinni aö láta
Bretland endurvinna heimsmetið í
hraöakstri þótt hann heföi ekki tök á
besta mótornum né bestu tækninni.
Undirbúningurinn átti sér staö á
venjulegu bílaverkstæði, fjarri tækni-
nýjungum geimferöanna.
A saltsléttunum í Utah, þar sem
gjarnan er kljáöst við hraöametin,
setti hann enn nýtt breskt hraðamet
1981, 672,75 km á klst. Þrátt fyrir regn
og bleytu tókst honum að komast upp í
950 km hraða í „Black Rock” eyöi-
mörkinni skömmu seinna.
Þotumótor á 40 kr.
Noble hafði tekist aö telja breska
flugherinn á aö selja sér 22 ára gamlan
þotumótor úr Lightning orrustuflug-
vél, sem gaf 32 þúsund hestöfl, og var
greiðslan til málamynda í kringum 40
krónur.
Bíllinn var endursmíöaöur og endur-
bættur undir stjóm John Ackroyd sem
er sérfræöingur í loftmótsstööu. Mótor-
inn haföi ótrúlegt afl. En nú gilti aö fá
ferlíkið til að vinna rétt og hanga kyrrt
ábrautinni!
Tilraunir í vindgöngum
Þetta tókst allt meö því aö reyna bíl-
inn í vindgöngum. Erfiöara var aö
halda þeim sem styrktu málefniö viö
efniö því þeir vildu draga sig í hlé eftir
misheppnaöar tilraunirnar á undan.
Það var því nánast sem efnahags-
draugurinn væri farþegi með Noble
þegar hann gaf stífbónuðum áldrek-
anum í botn þann 4. október 1983. Eftir-
brennarinn á vélinni gaf síöan kraftinn
svo full ferö náöist á 20 kilómetra
langri brautinni. Léttmálmshjólin
skildu eftir sig bein strik i eyðimörk-
inni þegar ferlíkiö þaut áfram, 13 sentí-
metra yfir jörðu, og ,,RR 302 Avon”
þotumótorinn drakk í sig 120 lítra á
rníluna.
„Thrust 2” fer nú á safn eftir aö hafa
staðið við sitt: í gær metbíll, í dag
úreltur og heyrir sögunni til.
Daytona Beach í Florida,
Bönneville Salt Flats í Utah og
Black Rock í Nevada eru nokkrir
þeirra staöa þar sem þeir sem
hafa hraöann aö leikfangi
spreyta sig.
Meö 63,13 km hraöa á klukku-
stund.var Frakkinn Chasseloup-
Laubant fyrstur til aö setja
hraöametáriö 1889.
1889 braut Camille Jenatzy 100
kmmúrinn.
Það hefur veriö keppt á gufu-
bílum, bensín-, þotu- og rakettu-
drifnum bílum. Metiö er aöeins
staðfest aö ekiö sé í báöar áttir.
1927 ók Henry Seagrave á
327,97 km hraöa á Sunbeam.
Maícoim Campell komst áriö
isjz upp í 408,3 km hraöa á
„Bluebird”. George Eyston fékk
1937 sitt met skráö sem var
502,117 km á klst. John Cobb náöi
síðan 634,405 km hraöa á
„Railton-Mobil” bíl sínum árið
1947.
Bandarikjamaðurinn Craig
Breedlove náöi áriö 1964 846,97
km í bíl sínum, „Spirit of Amer-
ica”. Ariö eftir ók Art Alfons
„Green Monser” á 927,87 km
hraöa og 1970 kom Gary Gabelich
á „Blue Flame” og náöi þá
1.014,53 kmáklst.
Met Stan Barrets frá 1979, sem
var 1027 km, fæst ekki skráð því
rakettubíll hans ók aöeins í aöra
áttina.
Bretinn Richard Noble er því
hraöskreiðastur á landi á
„Thrust 2” bíl sínum meö 1019
km á klst.