Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1984, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1984, Page 19
DV. LAUGARDAGUR 5. MAl 1984. Að vera ekki Ahorfendur vita orðið á hver ju þeir ciga von þegar Mel Brooks er annars vcgar. Kvikmyndir á borð við The Producers, Biazing Saddles, Silent Movie, Young Frankenstein og The History of the World, Part One hafa aflað honum óteijandi aðdáenda. Nýjasta mynd Mel Brooks, To Be Or Not To Be, hefur á sér öll heistu vöru- merki þessa fræga grinista. Hann cr þekktur fyrir virðingarleysi við allt og aiia og sumir scgja aö maðurinn sé algcrlega smckklaus — sem betur fer, því ella yrðu myndir hans ekkert líkar því sem raun ber vitni. Brooks er ekkert gcfinn fyrir fínan húmor, hann er einfaldlega góður, gamal- dags trúður. Og þó margir hafi hreint ekki smekk fyrir grófa fyndni þá viðurkenna þeir hinir sömu að Mel Brooks gcfur lífinu óneitanlega dálítinn aukaiit mcð myndum sínum. To Be Or Not To Be er gerö eftir samnefndri kvikmynd Ernst Lubitsch frá árinu 1942. Atburðir beggja myndanna gerast í Varsjá árið 1939 og segja frá leikflokki þar í borg sem tekst aö hjálpa pólsku neðanjarðarhreyfingunni með þvi að snúa á nasista. Við þessar aðgerðir beitir flokkurinn einkum hverskyns gamanleikjum og grínþáttum. I mynd Lubitsch voru leikararnir miklir og ágætir túlkendur Shake- speares en til að lífga ögn upp á mannskapinn ákvað Brooks og samstarfsmenn hans viö handrits- gerðina, Thomas Meeham og Ronny Graham, aö tefla fram hópi sem einkum fæst við grín- og söngleiki. Leikhópurinn i mynd Mel Brooks er þó ekki með öllu laus viö verk höfuö- leikritaskálds Breta þvi einn af þáttunum sem þeir flytja heitir „Góðar glefsur úr Hamlet”. Eiginkonan til liðs við Brooks Aðalleikaramir í To Be Or Not To Be frá árinu 1942 voru Jack Benny og Carole Lombard. Kvikmyndin var raunar sú síöasta sem Lombard lék í og hefur því fyrir þá sök nokkurt sögulegt gildi, auk þess sem myndin þykir mega teljast til klassískra verka á sviði gamanmyndagerðar. Mel Brooks fer sjálfur með aöallilut- verkið sem Jack Benny haföi áöur meö höndum og eiginkona Brooks, Anne Bancroft leikur Anna Bronski, eiginkonu Frederick Bronski, per- sónunnar sem Mel Brooks túlkar. Af öðrum þekktum leikurum sem Brooks fékk til liðs við sig má nefna Tim Matheson, sem leikur lautinant i pólska flughernum. Foringi þessi hefur geysilegan áhuga á nánum kynnum við frú Bronski og telur heppilegast að eiga stefnumót við hana meöan eiginmaðurinn er upptekinn við að túlka Hamlet Dana- prins á sviðinu. Charles Durning fer með aukahlut- verk i To Be Or Not To Be og hlaut fyrir vikið útnefningu til óskars- verölauna sem Jack Nicholson hreppti raunar. Þráði að túlka Hitler Sem túlkandi stærsta hlutverksins í To Be Or Not To Be var Mel Brooks of önnum kafinn til að geta annast leikstjórn myndarinnar. Til þessa verks fékk hann gamlan kunningja, Alan Johnson, fyrrum danshöfund. Þeir Johnson og Brooks hafa áður unnið saman og sá fyrrnefndi sá meðal annars um hiö fræga dans- atriði „Springtime for Hitler” í myndinni The Producers og dans rannsóknarréttarins í The History of thc World, Part One. Samstarf þeirra félaganna skilaði góðum árangri, nú sem fyrr, og bandariska pressan geröi fræg ummæli Brooks þegar Johnson sagði við hann i upphafi vinnunnar viö nýju mynd- ina: „Mér finnst rétt að segja þér frá því, Mel, að ég er enginn Lubitsch.” „Það er allt í lagi, Alan,” svaraöi háöfuglinn að bragði, „það~ er enginn.” Handritshöfundarnir Meehan og Graham gerðu auðvitað umtals- veröar breytingar á handriti eldri myndarinnar og umskrifuöu meðal annars langan kafla til að Brooks gæti fullnægt ákafri löngun sinni til að leika Hitler. I mynd Lubitsch flýja leikararnir að lokum tii Englands og nota á flóttanum einkaflugvél for- ingjans. Til aö komast um borð i vélina þarf auðvitað foringjann sjálf- an eöa góða eftirlíkingu af honum. Brooks fær bæði að syngja og dansa í gervi foringjans og flytur lagiö vinsæla To Be Or Not To Be, The Hitler Rap, sem nú er leikiö á diskó- tekum og í útvarpsstöðvum vítt og breitt um hnöttinn. Textinn við lagið lýsir prýðilega kimnigáfu Mel Brooks og því er hluti af honum birtur hér á síöunni. Lagið tekið á pólsku Thc Hitler Rap er auövitað ekki eina dans- og söngatriðið í myndinni og hún byrjar raunar.í leikhúsi The Bronski Theatrical Company á því að hjónin Anna og Frederick Bronski syngja Sweet Gcorgia Brown há- störfum á pólsku. Leikararnir ræðast svo góða stund við á pólsku þar til rödd aö ofan tilkynnir að hér eftir verði í myndinni töluð tunga sem flestir eigi gott með að skilja — og sjá og heyr, enskan rennur ljúf- lega upp úr Pólverjunum. (Jose hægn ST* <Mel sSt8ervt Bancroft). a’ 0,l"» Bronski ,^ To Be Or Not To Be hefur fengið nær einróma lof gagnrýnenda sem viðurkenna aö myndin sé dæmigerö Mel Brooks mynd af betri geröinni en sumir bæta því raunar við að þeir hafi nú fyrir sina parta ekki smekk sem hæfi svona gríni. Neikvæðir gagnrýnendur telja að Brooks hafi seilst nokkuð langt er hann ákvað að endurgera jafn prýðilega gaman- mynd og To Be Or Not To Be eftir Lubitsch var. Ekki hefur staðiö á svari og Brooks segir að Hamlct með Sir Laurence Olivier í aðalhlutverki hafi ekki verið endurgerö á neinni mynd þó þegar hafi verið til kvik- myndin Hamlet með John Barrymore í aðaihlutverki. Og Brooks hefur hingaö til ekki lagt í vana sinn aö endurtaka1 það sem aörir hafa gert — svo ólíkur er hann öllum öðrum þegar hann dregur þjóðir og einstaklinga sundur og saman á háðinu. -SKJ. TO BE OR NOT TO BE Well hi there people you know me I used to run a little joint called Germany I was number one the people's choice And everyone listened to my mighty voice My name is Adolf l'm on the mike l'm gonna hip to you the story of the new third reich It all Begun down in Munich town And pretty soon the word started getting around So I said to Martin Borman I said hey Marty Why don't we throw a little Nazi party? And before you knew it was hello new order To all those mothers in the fatherland I said achtung baby I got me a plan Said whatya got Adolf whatcha gonna do I said how about this one world war two I drank wine from the Rhine with the finest ladies And did it in the back of a black Mercedes I was on a roll I couldn't lose then came D day Yanks and the Brits started raisins cain Those guys were picked' they drove me insane People all around me started swallowing pills Let’s face it folks we was going downhill Berlin was crumbling we was under the gun Time to look out for number one So I grabbed a blonde and a case of beer Said the Russians are coming let's get out of here To be or not to be oh Honey can't you see We had to take it to the top You sure made history and it felt so good to me Ooh Schutzy please don’t ever stop Auf wiedersehen good to see ya got a oneway ticket to Argentina To be or not to be oh Baby can't ya see We gotta take it to the top. það er gamanmyndm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.