Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1984, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1984, Qupperneq 22
22 DV LÁUGARDAfeUR 5. MÁl l^tíí. Heilbrigð sjónhimna. Augn- lækningar meö leisergeislum Hér er verið að meðhöndla sjúkling með leisergeislaaðferðinni. Aðgerðin tekur um hálftima og sjón sjúklingsins er borgið. Hinn hárfíni og örgranni leisergeisli hefur nú þegar sannaö notagildi sitt viö aögeröir á auga og mun í náinni framtíð einnig geta komiö aö liði í meöhöndlun á gláku. Hér hefur blætt inn á sjónhimnuna. Þessi sjónhimna hefur verið meðhöndluð með leisergeislaaðferðinni. Vetrarmorgun einn vaknar ungur maöur og kemst aö því aö þó svo hann reyni aö nudda stírumar úr augum sér þá fái hann ekkert séð meö hægra aug- anu. . . A meðan hann svaf hefur oröiö blæðing inn í sjónhimnu augans — blæðing sem veldur því aö hann fær ekkert séö meö auganu, ekki einu sinni útlínur handar sinnar þó hann haldi hendinni uppfyrirframanaugaö. Í’.l'í.ur atburöur er ekki svo óalgengur meöal fólks sem líkt og ungi maðurinn hefur haldiö sykursýki í fimm til sex ár og verið meðhöndlaö meö insúlíngjöfum. Sjúkdómurinn og meðfylgjandi breytingar á æðaveggj- um í sjónhimnu augans geta orsakað veiklun æöaveggjanna og leitt til blæö- inga inn í vefinn. Fyrir örfáum árum hefði slík blæö- ing getaö valdiö varanlegri blindu því þaö er þekkt staðreynd aö fyrstu blæö- ingunni fylgja frekari blæöingar. Viö hverja blæðingu veröur sjónin ógreini- legri þar tU að lokum aö blóðmassinn er oröinn svo mikiU að ljósið nær ekki lengur í gegn og hverf ur þá sjónin. Eftir aö augnlæknar hófu aö meðhöndla sUkar blæöingar meö leisergeislum hefur tekist að hjálpa þúsundum manna. Litarefni kemur upp um veikluðu æðarnar Læknamir geta einnig meðhöndlað göt í sjónhimnunni — undanfara sjón- himnulosunar — meö sömu leiser- tegund, svokölluöum argonleiser. Skandinaviskir læknar hafa einnig þró- aö aöferöir sem beita má gegn ýmsum sjónhimnubreytingum. En slíkar breytingar heyra í flestum tilfellum til alvarlegra augnsjúkdóma og geta leitt til blindu ef ekki er gripið til meöhöndl- unar í tíma. En snúum okkur aftur til mannsins sem skyndilega missti sjónina á ööru auganu. Hann fer strax til augnlæknis sem úrskurðar aö blæðingin sé enn of mikil til þess aö hægt sé að beita við- eigandi meðhöndlun. Að tveimur vik- um liönum hefur blóöiö eyðst svo mikiö að æöarnar eru sjáanlegar. Nú er sjúklingnum gefiö litarefni í æð og dreifist litarefnið um allan líkamann, einnig augun. Læknirinn tekur svo ljós- myndir af auganu til þess aö staösetja veikluöu æðarnar en liturinn lekur úr þeim inn í vefinn. En þaö eru einmitt veikluöu æðamar sem leisemum verður beitt á. Meö notkun sérstakrar Iinsu sem lögö er beint á sjáaldrið má fá 360 gráða mynd af sjónhimnunni. Augnlæknirinn fær því greinilega séö hvar hann þarf aö beita leisemum. Leisermeðferðin hindrar frekari blæðingar Hvert skot frá leisemum er minna en 1/2 mm í þvermál og varir í minna en einn tíunda úr sekúndu. Aö hálfum tíma liönum er aögeröinni lokiö og lek- inn stöövaöur. Meöal annars hefur leisergeislinn veriö notaöur til aö loka einnig fyrir óeðlilegar æöar sem seinna meir heföu kannski látiö undan. Utkoman er því sú aö ekki er aö vænta frekari blæöinga inn á augaö og sjón mannsins því borgiö. Argonleiserinn vinnur á þann hátt að ljósið fer í gegnum sjáaldriö, augn- steininn og augnknöttinn án þess að hafa áhrif en rauðu blóðkomin drekka ljósiö í sig, hitna og mynda blóðstorku. einn slíkur punktur er samt svo lítill aö þó hann hleypi ekki ljósi í gegn þá veröur einstaklingurinn ekki var viö hann en hafi sjúklingurinn fengið upp undir 500 slík „skot” meö leisemum er hætt við aö honum þykí sem hann horfi í gegnum sigti. I flestum tilfellum eyö- ast þessir storkublettir meö tímanum og þó svo þeir hverfi ekki aliir þá lætur heilinn sem þeir séu ekki lengur til. Það er aö segja, einstaklingurinn verður ekki var viö blettinn nema athygli hans sá vakin á tilvist bletts- ins. Norrænir augnlæknar framarlega á sviði leisernotkunar Danskir augnlæknar standa nokkuö framarlega í notkun leiser viö meö- höndlun á augnsjúkdómum og má þar benda á nýlega aðferö sem þeir hafa þróað til meöhöndlunar á sjónhimnu- kölkun sem orsakast af minnkuðu blóöflæði til augans eöa augnhlutanna. Danski augnsérfræðingurinn Soren Barner segir svo: — I slíku tilfelli veröur aö vanda mjög til athugunarinnar á litarefnisflæöinu. Þaö er afgerandi aö komast aö því hvort blóö berst enn til sýkta svæöisins eða hvort um örvefsmyndun er orðiö að ræða. Hafi örvefur myndast eru frumurnar dauðar og leisermeðhöndl- un til einskis gagns. En sé enn um blóö- flæöi aö ræöa meðhöndlar læknirinn svæöið í kringum kölkunina. Aöferöin felst í því aö æöarnar í kringum sýkta svæöið eru stíflaöar og blóðflæðið til sýkta svæðisins þannig aukiö. Barner leggur á þaö áherslu að leisermeöhöndlunin getur ekki gert við skemmd svæöi en hún getur hindrað frekari skemmdir á þeim svæðum sem kölkun hefur hafist á. Þaö er því mikil- vægt aö meðhöndlun hefjist eins fljótt og unnt er. Sjónhimnan fest með leiser Danski augnsérfræöingurinn greinir frá einu slíku tilfelli. — Fyrir ári kom til míh ung kona og kvartaði yfir truflun á sjón. Það kom í ljós aö hún var meö gat á sjónhimnu en þaö getur leitt til losnunar sjónhimnu frá augnbotni. Þar sem hún var ófrísk vildi ég ógjaman framkvæma á henni skurðaðgerð líkt og gert er undir venjulegum aðstæðum. Þess í staö afmarkaöi ég gatiö með leiser — sauð sjónhimnuna fasta niöur, í kringum gatiö. Soren Bamar hefur síðan meö- höndlaö fleiri sjúklinga með gat á sjón- himnu á sama máta og á þann hátt hlíft þeim við óþægilegri aðgerö og nokkurra daga vist á spítala. — Eg er mjög ánægöur meö árangur leisermeðhöndlunarinnar, sérstaklega vegna þess að árangurinn sést strax að lokinni aðgerð. Þar aö auki er aðgerðin sársaukalaus og því óþarfi að nota deyfimeðul. Þaö er hægt að fram- kvæma hana á staðnum og sjúklingur- inn getur haldiö heim á leiö aö aðgerð lokinni. — Þó er um eina áhættu aö ræöa. En hún er ekki til staðar nema þegar gera þarf aögerð þétt upp við augndíl (macula lutea) en þar er sjónin skörp- ust. En hættan á mistökum er svo hverfandi lítil aö vart er tekið tillit til hennar. Seren Bamer leggur á þaö áherslu aö öll leisermeðhöndlun þarf aö eiga sér staö á framstigum sjúkdóms ef vel áaðvera. — Hjá okkur er þetta mögulegt vegna stæröar stofnunarinnar. Gat í sjónhimnu er meöhöndlað samdægurs en biðtími eftir annarri meðhöndlun er yfirleitt ekki nema ein til tvær vikur. Glaucoma þarfnast sterkari leisers Augnlæknar í norrænum löndum notast enn sem komiö er einungis viö argonleiser. En hann hefur gefið góöa raun viö meðhöndlun á blæöingum og götum á sjónhimnu. En á hinn bóginn hafa nýlegar rannsóknir í Danmörku sýnt fram á aö hann sé ekki nægjan- lega kraftmikill til aö koma aö fullum notum í meöhöndlun á gláku. I slíkri meöferö eru gerö göt í lit- himnuna til aö eðlilegt flæði augn- vökvans út í affallsgöng augn- vökvans geti átt sér staö. En augn- vökvinn er myndaður í brárlíki og tæmdur út í gegnum canal of Schlemm (affallsgöngin) í horni fremra augn- hólfs. Augnvökvinn þarf því aö komast úr glerlíki í aftari augnhólf og þaðan í fremra augnhólf. Argonleiserinn ér of veikur til þess aö mynda göt, einnig skilur hann eftir sig ör og því er þaö enn best aö framkvæma skurðaögerð til meðhöndlunar á gláku. Oröiö gláka (Glaucoma) er notaö yfir sjúkdómstilfelli þar sem þrýstingur inni í auganu vex nægjan- lega til aö valda skemmdum á sjón- himnu og sjóntaugardoppu. Orsökin er yfirleitt sú aö lithimnan þrengir aö eða lokar fyrir rennsli augnvökva í affalls- göng (Canal of Schlemm), einnig getur verið um stíflu í affallsgöngum aö ræöa. Glaucomatilfellum má skipta í þrjá flokka: 1) Frumglaucoma, ekki afleiðing annarra breytinga. 2) Glaucoma vegna erföafræöilegra þátta. 3) Glaucoma sem afleiöing ann- arra breytinga. Þessum þáttum er svo hægt aö skipta niður í fleiri þætti. I náinni framtíð má gera ráö fýrir aö hægt veröi aö meðhöndla Glaucoma með sterkari leiser. Einn slíkur er svo- nefndur „Yagleiser” og kostar u.þ.b. þrjár milljónir króna. Yagleiserinn hefur veriö tekinn í notkun í Bandaríkj- unum. Bylgjulengdir þær sem hann vinnur meö gera hann nægjanlega öflugan til þess aö skera í augað meö þeim. Með honum er hægt aö skera sundur örvefsstrengi og vef og því hægt að nota hann í meðhöndlun á gláku. Eini galli hans er aö hann er kaldleiser og veldur því ekki storknun blóös eins og argonleiserinn. Framtíöarleiserinn má þó vænta aö veröi koldíoxíðleiserinn. Það mark- veröasta viö hann er aö hann er svo öflugur aö vefurinn sem honum er beint að, gufar hreinlega upp. Vanda- máliö viö hann er að það er spurning hvort þessi mikla orka valdi ekki eyö- ingu á fleiri vefjum en til stendur. En þess er aö vænta aö svar við þessari spumingu fáist brátt. I dag eru þaö aðallega sykursýkis- sjúklingar sem meðhöndlaðir eru með leisermeöferö, en brátt munu fleiri augnsjúkdómar veröa meöhöndlaöir meö leiser. I 80% tilfella má rekja orsakii- blindu til blóðrásartruflana í augum, sykursýki eöa gláku. Sumir þessara sjúkdóma eru nú þegar meöhöndlaðir meö leisermeöferð og veröa væntan- lega allir meðhöndlanlegir meö leiser innan fárra ára.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.