Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1984, Blaðsíða 6
6
DV. LAUGARDAGUR 9. JUNl 1984.
Sumar göturnar
á Arnarnesinu
hafa orðið gró-
ið yfirbragð.
Við aðrar ríkir
yfirbragð upp-
byggingar,
spýtur á víð og
dreif og íbúarn-
ir rétt ófluttir
inn. Á einum
stað yfir útilukt
rákumst við á
þröst sem þar
hafði gert sér
hreiður og
kúrði í morgun-
kyrrðinni. Hann
gerði eins og
hinir íbúarnir,
byggði sitt
skjól þótt hans
væri það
minnsta á Arn-
arnesinu.
DV-myndir:
GVA.
Arnar-
nesid
Hér áöur var nesiö yfirlætislaust,
kúröi á milli Kársness og Álftaness,
gerir það raunar enn, en á því hefur
risiö fjölskrúöug byggð. Áður var þar
búskapur og býlið hét eftir nesinu, Am-
ames. Upp úr 1960 fór aö byggjast þar,
fyrstu „nútíma landnemarnir” tóku
sér þar bólfestu fjrir tæpum tuttugu
árum. Þá vantaöi rafmagn í nýbygg-
ingar sem margir „frumherjar”
leystu meö rafinótor í bilskúrnum.
„Þaö er xnjög gott aö búa á Amar-
nesinu, eins og aö búa uppi í sveit.
Fuglalíf er þarna mikið viö sjóinn og
trjágróður og annar gróður dafnar
vel,” sagöi einn íbúanna á Amarnes-
inu viöblm. DV.
Viö fórum þangað einn morguninn til
aö virða fýrir okkur byggðina sem eins
og fyrr segir er ákaflega fjölskrúðug.
Þaö höföum viö líka heyrt á nokkrum
sem búa þama að umferö, sem virka
daga er lítil, eykst til muna á sunnu-
dögum. Þá fer fólk í „sunnudagsbíltúr-
inn” á Arnamesið til að viröa fyrir sér
hýbýbn (og garðana á sumrin).
Þarna munu búa um 600 til 650
manns eöa um 11 prósent íbúa í Garða-
bæ. Um þessar mundir eru bæjaryfir-
völd aö leggja síðustu hönd á lagningu
síöustu götunnar og byggingar aö rísa
viö hana. Amarnesið var í einkaeign,
landeigandi var ábúandi á jörðinni.
Lóöir hafa víst allar veriö seldar, en
ekki hefur enn veriö byggt á þeim öll-
um. Ein og ein óbyggö lóð er þar inni á
milli glæsilegra húsa. Eftir því sem við
komumst næst er lóöaverð þar hátt á
aöra milljón króna. Á skipuiagsteikn-
ingum má sjá smábátahöfn út í Kópa-
voginn á norðanverðu nesinu. Höfnin
er ekki komin en margir húseigendur
hafa komið sér upp bátum og aöstööu
fyrir þá.
Húsin á Arnamesi eru æöi fjölbreytt
að stærö og lögun, mikið frjálsræöi hef-
ur ríkt og ekki kvaðir eöa höft á bygg-
ingarskilmálum bæjaryfirvalda. Og
þaö er víst rétt aö taka þaö fram aö
þarna em ekki háhýsi, ekid raöhús, aö-
eins einbýlishús. Eitt kúluhús í bygg-
ingu, annaö hefur yfirbragð miðalda-
kastala, torfþak á einu og svo mætti
lengi telja. Engin verslun er á Amar-
nesi, fyrstu árin var sölubifreiö ekið út
á nesiö meö nauösynjavarningi en þaö
er löngu liðin tíð..
Auk friösældar, fuglalifs og mannlífs
í ömggri höfn er byggingarstíll hús-
anna á Amarnesi glöggt dæmi um
miklagrósku íslenskuefnahagslifi.-ÞG