Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1984, Side 8
DV' LAUGARDAGUR9. JUNI1984.
'8
Frjálst.óháÖ dagblað
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stiórnarformaðurog útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON.
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON.
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM.
Aóstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON.
Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON.
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON.
Ritstjórn: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 684611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SÍMI
27022.
Afgreiðsla.áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI 11.SÍMI 27022.
Sími ritstjórnar: 686611.
Setning, umbrot, mynda-og plötugerð: HILMIR HF., SÍÐUMÚLA 12.
Prentun: Árvakur hf., Skeifunni 19.
Áskriftarverð á mánuði 275 kr. Verð í lausasölu 25 kr.
Helgarblað2Bkr.
Hagvangi mistókst enn
Hagvangi hefur enn einu sinni mistekizt skoöanakönn-
un.
Þjóöviljinn og Morgunblaöið hafa rifizt alla vikuna um
tildrög þess, að Morgunblaðið lá á niðurstöðum Hag-
vangskönnunar um fylgi flokka og ríkisstjórnar. Morgun-
blaðið hafði keypt einkarétt á birtingu niðurstaðna
þeirrar könnunar og hugöist ekki birta. Fyrst eftir að bæj-
arfulltrúi Sjálfstæöisflokksins á Eskifirði krafðist opin-
berlega, að niöurstööur yröu birtar, varð Morgunblaðið
við því. Orsakir þess, að Morgunblaðiö vildi ekki kunn-
gera þessar niðurstöður, voru ekki þær, að sjálfstæðis-
menn færu illa út úr könnuninni. Orsökin hefur vafalaust
veriö sú, að niöurstööur Hagvangskönnunarinnar voru
lítið trúverðugar.
Hagvangskönnunin um fylgi flokkanna er greinilega
vitlaus.
Þetta sést bezt á samanburði á síðustu skoöanakönnun
DV um sama efni, Hagvangskönnuninni og úrslitum síö-
ustu kosninga. Til einföldunar eru aðeins teknar niður-
stöðutölur þeirra, sem afstöðu tóku.
Alþýöuflokkurinn fékk í kosningunum í fyrra 11,7% at-
kvæða. Framsókn fékk 19%. Bandalag jafnaðarmanna
7,3%. Sjálfstæðisflokkur ásamt aukalista hlaut 39,2%. Al-
þýðubandalag fékk 17,3% og Samtök um kvennalista 5,5%.
í síðustu skoðanakönnun DV fékk Alþýöuflokkur 8,4%
þeirra, sem tóku afstöðu. Framsókn fékk 18,4%. Banda-
lag jafnaðarmanna 3,7%. Sjálfstæðisflokkur hlaut 48,1%.
Alþýðubandalag fékk 15,6% og Samtök um kvennalista
5,8%. Útkoma DV-könnunar í marz var ekki ýkja frá-
brugðin þessu.
Útkoma Hagvangskönnunarinnar fyrri hluta apríl
varð hins vegar þessi: Alþýðuflokkur6,8%, Alþýðubanda-
lag 9,3%, Bandalag jafnaðarmanna 3,7%, Framsóknar-
flokkur 17,1%, Sjálfstæðisflokkur 52,1%, Samtök um
kvennalista 9,2% og „aörir” 1,8%.
Hagvangskönnunin er augljóslega röng. Til dæmis er
áberandi, að Alþýðubandalagið ætti samkvæmt henni aö
hafa tapað nær helmingi kjörfylgis síns. Þetta þætti
mörgum kannski æskilegt, en engum mun koma í hug, aö
neitt slíkt hafi átt sér stað. Aðrir flokkar eru því að sama
skapi meö ranga útkomu hjá Hagvangi.
Hagvangur hefur staðið fyrir rannsókn á „gildismati
íslendinga” með sama úrtaki. Mesta athygli af þeim niö-
urstöðum hefur líklega vakið afstaöa fólks til einka-
rekstrar eða opinbers rekstrar samkvæmt könnuninni.
Nú sýna niðurstöðurnar um flokkana, að mikið skortir á,
að könnun Hagvangs nái til vinstri manna í landinu. Nið-
urstöður annarra hluta þessarar könnunar eru því mikiö í
vafa.
Morgunblaðið hefur hampaö öllum niðurstöðum Hag-
vangskönnunarinnar. Því er skiljanlegt, aö blaðið hafi í
lengstu lög forðast að opinbera, hve vitlaus könnunin er.
Hagvangur varð síðastliðið haust að athlægi fyrir moö-
hausaspurningu um, hvort fólk styddi efnahagsaðgerðir
ríkisstjórnarinnar. Spurningin braut flest lögmál við
orðalag spurninga í skoðanakönnunum og var þannig:
„Ef kjaraskerðing getur haft áhrif til lækkunar verö-
bólgu, ertu þá sjálfur tilbúinn eða ekki tilbúinn, að launa-
hækkanir verði ekki umfram það, sem ríkisstjórnin hefur
boðað á næstu 12 mánuðum?” Með þessu rugli töldu for-
göngumenn sig hafa fengið út mikinn stuðning viö stjórn-
arstefnuna. Stjórnarstefnan naut stuðnings en ekki eins
mikils og þessi leiðandi spurning gaf til kynna.
HaukurHelgason.
DV
BARIST UM BOLTA
KæriGeir.
Eg skrifa þér þetta bréf í
örvæntingu, oröinn alveg hreint ráö-
þrota og vitandi vart mitt rjúkandi
ráð, því ofsóknir nágranna minna á
hendur mér hafa nú komist á þaö stig
aö ég er nánast umsetinn á heimili
mínu og óttast þaö aö fara út. Eg veit
ekki hvert ég á aö snúa mér því
enginn viröist geta hjálpaö mér og
þú ert mín síöasta von.
Svo þú vitir allt um forsögu
málsins vii ég byrja á aö geta þess
aö fyrir fimmtán árum spörkuöu
nokkrir pörupiltar leöurknetti inn á
grasflötina mína, mér til sárra
leiöinda. Eg haföi þá þegar lagt
mikla vinnu og kostnaö í garðinn
minn og mér sárnaöi aö sjá gras-
stönglana, sem ég hef nostrað svo
við, og aldrei sparaö áburöinn og
skarnann á, brotna og bögglast undir
knettinum. Þess vegna hljóp ég út,
tók knöttinn, sem var þar að auki
skítugur! og fór með hann inn. Hann
hefur verið í geymslunni minni
síöan.
Eg læröi einnig af þessu og setti
upp vandaða og trausta giröingu um-
hverfis garðinn minn svo ekkert
þessu líkt kæmi fyrir aftur.
En nú, fyrir viku síöan, gerðist
þetta aftur! Aö vísu voru ekki sömu
götustrákarnir á ferðinni aö þessu
sinni heldur synir þeirra, en þaö
gerir bara illt verra því ég óttast aö
feöurnir hafi hvatt þá til óknyttanna,
minnugir þess hvemig ég tók á sama
broti þeirra fyrir fimmtán árum. Eg
heyrði knöttinn skoppa eftir gras-
flötinni minni, sem er ein sú sléttasta
og gróskumesta í Reykjavík, og
hljóp þá þegar út. Eg sá annan
drenginn, fastan í um tveggja metra
hæö, í gaddavírsgirðingunni, en hinn
drengurinn reyndist hafa dottið ofan
í gryf juna, sem ég lét grafa í hvarfi
frá götunni, bak við hekkið. Eg tók
boltann og fór meö hann inn, þar sem
hann liggur nú viö hliðina á hinum í
geymslunni og hjálpaöi síöan drengj-
unum aö losa sig og rak þá burtu.
En nú er eins og enginn viröi
eignarréttinn lengur! Eg var
auðvitað í mínum fulla rétti en engu
að síður hafa nágrannar mínir síöan
látiö dólgslega viö mig, lagt í stæöið
mitt, svara ekki kveðjum mínum aö
morgni og fyrir skemmstu kom til
mín sendinefnd húseigenda í ná-
grenninu og krafðist þess aö ég
skilaði boltanum. Eg rak þá
auövitað á brott því þeir komu til
mín í garðinn og bældu grasið fyrir
mér.
Nú kem ég að bón minni. Eg biö
þig þess nú aö þú fáir lögregluna til
þess að hjálpa mér því þegar ég hef
beðið þá um aö skipta sér af málinu
hafa þeir verið afundnir og svarað
mérútíhött.
Eg er viss um aö ef þú sýnir mér
stuðning í þessu máli munu mínir
yfirgangssömu grannar renna af
hólmi og böm þeirra láta blettinn
minn í friði.
Eg vona aö þú hafir þaö gott og
skilaöu kveöju til fjölskyldunnar.
Bestukveöjur.
Poldi.
Herra Geir Hallgrímsson.
Eg fæ ekki oröa bundist yfir þeirri
ókurteisi sem undirmenn þínir hafa
sýnt mér. Enn hefur enginn lögreglu-
þjónn tekið litlu skrattakollana í
Úr ritvélinni
Ólafur B. Guðnason
karphúsið og feöur þeirra ganga enn
lausir, þrátt fyrir brot þeirra gegn
öllum lögum Guös og manna.
Ég beiö dögum saman eftir svari
frá ráðuneyti þínu, en til einskis og í
gær þegar ég hringdi og spurðist
fyrir um það hverju þessi ósvífni
sætti svaraði fulltrúablók mér með
óþolinmæði og dónaskap. Hann sagöi
aö þar sem ég væri Islendingur kæmi
þetta mál ráðuneytinu ekki við. En
ég mun s já til þess aö þetta mál komi
ráðuneytinu við.
Mér hefur veriö boðin nafnbót
ræðismanns, fyrir Swaziland! Að vísu
mun þaö kosta mig hundrað þúsund
krónur en ég læt mig ekki muna um
þaö til aö verja grasið mitt. Sókn ná-
grannanna gegn mér hefur heldur
betur þyngst eftir aö þetta mál
komst í blöðin, og nú hafa tuttugu
húseigendur við götuna tekiö sig
saman um þaö aö sparka hver um
sig einum bolta á dag inn á flötina
mína. Geymslan mín er löngu orðin
full sem og stofan og lítiö pláss orðiö
eftir í rúminu mínu. En ég mun ekki
gefast upp og ég vona, þín vegna og
þjóðarinnar, aö til einhverra
aögeröa komi fljótlega, svo þetta
mál verði leyst farsællega.
Kveöjur.
Leópold Nikulásson.
Herra utanríkisráðherra.
Eg hef þann heiöur aö bera fram
kvörtun við yður vegna ágangs
nokkurra íslenskra ríkisborgara á
yfirráöasvæöi Swazilands, umhverfis
ræðismannsskrifstofu ríkisins í
Heykjavík. Daglega er tugum fót-
bolta sparkaö inn á grassléttu, sem
er óaðskiljanlegur hluti Swazilands,
og unnin á sléttunni náttúruspjöll.
Ekki veröur fulltrúi Swazilands
sakaöur um aö hafa sýnt kæruleysi í
þessu máli, enda hefur hann gripiö
til ýtrustu varúðarráðstafana til
þess aö koma í veg fyrir aö erlendir
ríkisborgarar geti unniö nátt-
úruspjöll á landi Swaza. Þannig
hefur veriö reist þreföld gaddavírs-
giröing, fimm metra há, umhverfis
bústaö ræöismannsins og gryfjur,
fylltar glerbrotum, grafnar í skjóli
viö runna sem liggja næst
girðingunni. Aö lokum má geta þess,
sem eftir síöustu atburði má vera
öllum ljóst, aö sjálfvirkar, léttar vél-
byssur, tengdar ratsjá, hafa verið
settar upp til aö verja land Swaza og
náttúru fyrir siölausum villi-
mönnum.
Það er afdráttarlaus krafa
konungs Swazilands, Ljóns ljónanna,
Hins mikla fíls, Mbungo Bango,
ríkisstjórnar hans og fulltrúa hans
hér, Bwana Banana (áöur Leópold
Nikulásson), aö íslensk yfirvöld sjái
til þess aö árásum á yfirráðasvæði
Swazilands í Reykjavík veröi hætt,
Bwana Banana ræöismanni bættur
sá skaöi sem orðið hefur á beitar-
löndum hans og settur veröi
lögregluvöröur viö ræöismannabú-
staðinn til þess aö hindra aö af
frekari árásum geti oröiö.
Ljón ljónanna, Hinn mikli fíll,
Mbungo Bango, konungur Swaza,
treystir því aö íslensk yfirvöld fallist
á eölilegar og sjálfsagöar kröfur
Swazaþjóöarinnar í þessu máli, en
mun íhuga frekari og harkalegri
aögerðir veröi ekkert aö gert.
Virðingarfyllst,
Bwana Banana,
ræðismaður Swaza á íslandi.