Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1984, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1984, Blaðsíða 35
35 l Akureyri—KA Akureyri—KA Akureyri—KA Akureyri—KA Akureyri — KA Lið KA keppnistímabilið 1984. „STEFNUM AÐ SIGRI í HVERJUM EINASTA LEIK” —segir Gústaf Baldvinsson þ jálfari KA en hann er yngsti þjálf arinn í 1. deildinni í sumar „Ég er svona þokkalega ánægður með árangurinn hjá okkur til þessa. Það hefur verið stígandi í liðinu og þetta á aUt eftir að koma hjá okkur,” sagði Gústaf Baldvinsson, þjálfari KA frá Akureyri, í samtaU við DV. Gústaf er kornungur af þjálfara hjá 1. deUdar félagi að vera, aðeins 26 ára gamall. Hann er yngsti þjálfari í 1. deUdinni í sumar og líklcga sá yngsti frá upphafi. Gústaf hefur fengist nokkuð við þjálfun áður, þjáUað yngri flokka hjá ÍBV og i fyrra þjáUaði hann Einherja frá Vopnafirði með góðum árangri. „Það gefur augaleið að þetta er stórt stökk frá því aö þjáUa 3. deildar lið og Gústaf Baldvinsson, þjálfari KA. ég verð að segja eins og er að það kom mér nokkuð mikið á óvart þegar ég var beðinn um að taka KA-liðið að mér. Þetta er mjög krefjandi starf og á hug manns aUan. Eg var frekar smeykur við þetta í byrjun en það er allt að lagast. Strákarnir eru mjög skemmti- legir, stjórnin mjög góð og það er ekki lítið atriði.” „Reynsluleysið verst" Hverjir eru helstu veUdeUtar hjá KA og um leiö helstu kostir liðsins? „Það háir Uöinu kannski nokkuð hversu leikmenn Uðsins eru ungir að árum og reynsluUtUr. En ég kvíöi engu. Strákarnir hafa lagt ótrúlega mikið á sig, sýna virkUega mikinn áhuga og það er á aUan hátt gaman aö vinna með þeim. Það er kannski stærsti kosturinn. KA-liðið á fram- tíðina fyrir sér og ég hef trú á því að Uðið verði mjög gott eftir svona eitt til tvöár.” „Svipuð og í fyrra" Hvemig hefur þér fundist knatt- spyrnan í sumar? „Knattspyman er ekki verri en hún var í fyrra. Það er alveg á hreinu. Ef eitthvað er þá er hún betri. Annars finnt mér svona á heUdina litiö hún vera svipuð og hún var í fyrra. Ég hef þá trú að hún eigi enn eftir að batna og leikimir sem eftir eru í sumar verði bæði jafnir og skemmtUegir. Eg held að þriggja stiga reglan eigi ekki eftir að hafa mikil áhrif á knattspymuna ein og sér. Það þarf meira til að breyta knattspyrnunni.” „Stefni að sigri í hverjum einasta leik" Hvað um leikskipulag KA-liðsins, Umsjón: Stefán Krístjánsson leikið þið varnarlcik eða setur þriggja stiga reglan strik í reikninginn? „Þriggja stiga reglan hefur ekkert með leik okkar að gera, nema þá að við fáum þrjú stig fyrir leik sem við vmnum. Eg stefni að sigri í hverjum emasta leik, sama hver and- stæðingurmn er. Ég hef aUtaf meiri áhyggjur af mínum mönnum en and- stæðingnum og reyni eftir fremsta megni að láta þá frekar hafa áhyggjur af okkur. Viö leikum yfirleitt leik- aðferöina 4—4—2 en annars er það svo- lítiö breytUegt eftir því hverjir leika hverju sinni.” „Skaginn og Blikarnir sterk- astir" Nú veit ég að þú hefur séð marga leiki í sumar. Hvaða Uð telur þú að hafi mesta möguleikana á íslandsmeist- aratitlinum? „Ég hef trú á að Skaginn verði með sterkt lið í sumar eins og fleiri. BUkarnir eru líka með gott lið og þetta hlýtur að fara að koma hjá þeim. I liðinu eru margir mjög góðir leUanenn sem eiga eftir að gera það gott í sumar. Spurningin er bara hvenær liðið fer í gang. Svo finnst mér alveg furðulegt hvaö ValsUðið er dapurt uppi við mark andstæðinganna. Eg trúi ekki öðru en þeir nái sér á strik. Eg vil engu spá um röð liðanna, hvorki um það hvaöa lið stendur uppi sem sigurvegari í lokin eða hvaöa lið falla. Eg vil engum liðum svo iUt að falla í 2. deild. En það er ljóst að eitt lið vinnur og tvö faUa. Þetta ræðst aUt saman í síðustu leikjummótsins.” Að lokum, Gústaf. Hvernig líkar þér dvöUn á Akureyri? „Mér hefur liðið alveg ljómandi vel. Hér er gott að vera og allir hafa tekiö mér vel. t stuttu máli sagt: Ég er mjög ánægður,” sagði Gústaf Baldvinsson aölokum. -sk. I I I I ERLINGUR MEÐ FLESTA LEIKI Vamarmaðurinn snjalU, ErUngur | Kristjánsson, er leikjahæstur KA- Imanaa en hann hefur leikið 103 leiki með liðinu. IÁsbjörn Bjömsson stendur honum ekki langt að baki, hefur leikið 95 9 leiki. Ormarr Örlygsson hefur leikið ■ 59 leiki, Hinrik ÞórhaUsson 72 leiki, I Friðfinnur Hermannsson 39 og Þor- _ valdur Jónsson 32 leiki. Þetta ero ekki háar tölur en undir- * strika ungan aldur leikmanna liðs- | ins. I I Eriingur Kristjánsson. Samtals sex leikir | Leikmenn þeir sem leika meö KA í sumar hafa leikið samtals sex lands- leiki með A-landsliði, fimm lands- leiki undir 21 ára aldri, 14 unglinga- landsleiki og einn drengjalandsleik. Þeir Erlingur Kristjánsson og Hinrik Þórhallsson hafa báðir leikiö L____________________________________ tvo A-landsleiki, Ásbjöm Björnsson og Njáll Eiðsson einn hvor. Einn leikmaöur liösins, Erlingur Kristjánsson, hefur leikið í landsliði 21 árs og yngri, samtals fimm leiki. Asbjörn Björnsson hefur leikiö flesta unglingalandsleiki eða sex, Stein- grímur Björnsson fimm, Mark I Duffield tvo og Hinrik Þórhallsson J einn. | Og Ásbjörn Björnsson hefur einn . leikmanna liðsins leikiö i drengja-^ | landsliði.einnleik. ■ -sk. I _______________________________________I A Akureyri—KA Akureyrí—KA Akureyri—KA Akureyri—KA Akureyri—KA_

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.