Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1984, Side 1

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1984, Side 1
DAGBLAÐIÐ — VISIR 14B. 1 Bi. — 74. ogio. — FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ1984. í „Lokuðumst fyrr en varði inni í ísnum” — sagði skipstjórinn, Jón Marteinn Guðröðarson „Vi5 vorum á fullu stími á leiöinni á miðin er aöalvélin drap skyndilega á sér, og skömmu síðar drapst á ljósavélinni. Þar meö var báturinn orðinn stjórnlaus, við gátum ekkert gert og fyrr en varði rak okkur inn í isinn og báturinn lokaðist innL” Þetta sagði Jón Marteinn Guð- röðarson, skipstjóri á vélbátnum Siguröi Pálmasyni HU 333, í gærkvöldi, er skuttogarinn Sigurfari II SH 105 frá Grundarfiröi var með Sigurð í togi, um 15 sjómílur norður af Straumnesi, á leið til Isafjarðar en þangaö komu skipin á fjórða tímanumínótt. „Ástæðan fyrir því að vélarnar stönsuöu var sú að það komst vata í olíuna. Það er mér gjörsamlega óskil janlegt hvernig þaö gat gerst. ” Jón sagði að þeir hefðu verið um eina og hálfa sjómflu frá ísröndinni, um 32 sjómflur út af Straumnesi, er þetta geröist. Klukkan var þá tólf á hádegi. „Það var svo mikil ferö á ísnum, þetta voru stórir jakar, að við vorum orðnir innilokaðir mfldu fyrr enégáttivon á.” Sex manna áhöfn var á Sigurði og sakaði engan í óhappinu. „Það eina sem við getum núna kvartað yfir er að það er orðið nokkuö kait um borð. Getum ekki einu sinni hitað okkur kaffi. Söknumtíudropanna.” — Er báturinn skemmdur? „Mér þykir ólíklegt annað en að hann hafi skemmst eitthvað, en það er enginn leki kominn að honum. Þetta kemur allt betur ljós á morgun, en þá verður kafað undir hann.” „Ég vil bara nota tækifæriö og þakka þeim á Sigurfara aðstoöina. Þeir brugöust fljótt viö, og þetta eru eldklárir sjómenn,” bætti Jón við. DV náði einnig tali af Gunnari Hjálmarssyni, skipstjóra skuttog- arans Sigurfara II. „Taugin slitnaði einu sinni, en að öðru leyti gekk ljómandi vel að ná bátaum úr ísnum,” sagði Gunnar. „Við komumst aldrei nær honum en 50 metra, og því urðum við að skjóta línunni á milli. Það gekk vandræðalaust. Sennilega tók mest- an tima í þessu öllu saman að finna leið aö bátnum í gegnum ísinn.” Þess má geta að Sigurður Pámlason er 300 tonna stálskip. Það er í eigu rækjuverksmiðjunnar Mel- eyrar á Hvammstanga, og var á leið á rækjuveiðar er óhappið varö í gær. -JGH. Tvísýnar kosningar á Nýja-Sjálandi sjá bls. 10 Samhygðer líkafjör,grín ogglens — sjá Viðtalið við Júlíus P. Valdimarsson bls.ll Ennmikill munurá hitunarkostnaði eftirhitaveitum — sjá bls. 2 MáliBalysog fruarfrestað sja bls. 2 40laxafékk holliðf Miðfiarðará - sjá bls. 2 Ekið vará unga stu/ku á Vatnsveituvegi ígær. Stúikan, sem varað störfum fyrír vinnufiokka borgarinnar, ersiysið áttisérstað, meiddist a/lilla íbaki og háisi. D V-mynd: HS UTANLANDSFERÐIR FLUGMÁLASTJÓRNAR: 810 DAGAR Á NÆSTA ÁRI „A erfiðu ári þarf ég að vera í út- löndum á vegum stofnunarinnar allt upp í 60 daga. Á venjulegu ári eru það um 45 dagar,” segir Pétur Einarsson meðal annars í samtali við DV. Þar kemur fram að fyrstu sex mán- uði þessa árs hafi ferðalög starfs- manna stofnunarinnar veriö 571 dagur eða um hálft annað ár. Ekki er alveg ljóst hver kostaaður vegna þessa er. Hins vegar var kostaaður vegna ferða starfsmanna rúmar 2,3 milljónir í fyrra. Fargjöld og dagpeningar fyrir einstaka starfsmenn á því ári nema frá 20 til 30 þús. kr. fyrir hverja ferð í rúm- ar 200 þúsund krónur. Á næsta ári verða starfsmenn Flug- málastjómar í útlöndum í 810 daga eða í um tvö og hálft ár. Kostaaður við það er áætlaður tæpar 4,5 milljónir. „Við höldum öflu í lágmarki, hvað þetta varðar,” sagði Pétur Einarsson, „og 80 prósent af okkar ferðum er bein- linis vegna flugumferðarþjónustu.”-KÞ Ferðablað fylgir á morgun 32 siðna innlent ferðablað fylgir D á morgun. Meðal efnis í blaöinu i heimsókn í sumarbústaöi, á tjaldstæ og fjölmarga þá staði sem ferðamer gista. I blaðinu eru uppiýsingar ui ferðir og ferðalög innanlands sem öl um ættu að koma að gagni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.