Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1984, Side 2
2
DV. FÖSTUDAGUR 29. JUNl 1984.
Ný skýrsla um hitunarkostnað hjá nokkrum hitaveitum:
Enn mikill munur á hitunar-
kostnaði eftir hitaveitum
Meginniðurstaöa skýrslu san
iðnaðarráöuneytið hefur látiö gera
um vatnsnotkun og hitunarkostnað
hjá nokkrum hitaveitum er sú að hið
svokallaða hemlakerfi sé ekki nógu
skilvirkt. Og það skili ekki þeim
tekjum til hitaveitna sem megi gera
ráð fyrir. Það var Guðrún Zoéga,
verkfræðingur hjá Fjarhitun hf.,
sem vann skýrsluna fyrir ráðuneytiö
og voru niðurstöðurnar kynntar á
aöalfundi Sambands íslenskra hita-
veitna á Akureyri í gær.
Hitaveita Reykjavíkur selur vatn
til húsahitunar eftir mæli, Orkubú
Vestfjarða notar bæði vatns- og orku-
mæla. Hinar hitaveiturnar sem tóku
þátt í könnun sem skýrslan byggir á
hafa aliar hemla. Það eru hitaveitur
Borgarness og Akraness, Akureyrar,
Dalvíkur, Húsavíkur Suðúreyrar,
Suðurnesja og Sigluf jarðar.
Með hemlum er stilltur ákveðinn
hámarksskammtur sem fólk greiðir
fyrir, þannig er greitt fyrir vatniö
eftir mestu aflnotkun. Vatnsmæiar
mæla hve mikið vatn fer um þá og
greitt er fyrir tonn. Hjá Orkubúi
Vestfjaröa er bæði mælt vatnsmagn
og hitafell, það er að segja orkan
sem fæst úr vatninu.
Gengið er út frá 400 rúmmetra
einbýlishúsi í skýrslunni og fundinn
hitunarkostnaður þess. Einnig er
reiknað afl- og orkuverð. 1 ljós
kemur að orkunotkun er mjög háð
stærö húsa. Vatns- og orkunotkun 400
riúnmetra húss er til dæmis mun
meiri á rúmmetra en 700 rúmmetra
húss. Fram kemur líka að neyslu-
venjur eru allt öðruvísi hjá hemla-
veitum en mælaveitum. Aflhámark
er mun lægra en notkun jafnari,
heildarvatnsnotkun á ári er meíri en
hjá mælaveitum.
Helstu niðurstöður
Helstu niðurstöður eru dregnar
saman í byrjun skýrslunnar:
Fjórir þættir eru taldir hafa áhrif
á vatnsnotkun: Veðurfar, vatnshiti,
verö og söluaöferðin, hemill eða
mælir.
Þess verður ekki vart að mis-
munandi veðurfar á landinu hafi
áhrif á vatnsnotkun eða hámarks-
vatnsskammt. Munur á vatns-
kaupum fyrir 400 rúmmetra hús eöa
800 rúmmetra er talinn 20—70%.
Minna húsið notar hlutfallslega mun
meira vatn á rúmmálseiningu og á
það jafnt viö um mæla og hemia. Hjá
mælaveitum er vatnsnotkun 400
rúmmetra húss meiri en reiknaö
hefur verið meö, en hámarks-
skammtur hjá hemlaveitum lægri en
álitiöhefurverið.
Raunverulegur hitunarkostnaöur
þessarar sömu hússtæröar er frá
74% af áætlun iðnaðarráðuneytis, og
er þar átt við Hitaveitu Akureyrar,
upp í 125% hjá Hitaveitu Reykja-
víkur. Orkuverð er hins vegar 54%
hjá Hitaveitu Akureyrar upp í 100%
þar sem er Orkubú Vestfjarða,
miöað við áætlun ráðuneytisins.
Þegar hitunarkostnaður húsa er
borinn saman verður að taka tillit til
þess hvemig greitt er fyrir neyslu-
vatn. Það er ýmist innifalið í vatns-
skammti eða utan hemils og kemur
sem viðbót við þann hámarks-
skammt sem greitt er fyrir. Þannig
jafngilda 2,9 1/mín. á Suðumesjum
Guðrún gerir grein fyrir niður-
stöðunum á fundinum á Akureyri
igær.
DV-mynd: JBH Akureyri.
2,51/máAkureyri.
Vatnsnotkun er jafnari yfir árið
hjá hemlaveitum en mælaveitum.
Hámarksnotkun er mun minni og
yfirleitt ófullnægjandi í mestu
kuldum hjá dýrari hitaveitum.
Nýtingartími hámarksafls er mjög
hár sem veldur því að orkuverðiö er
lágt.
JBH/Akureyri
Guðrún Zoega verkf ræðingur:
Mælikerfið hent-
ugra en hemlarnir
„Tilgangur með þessari athugun
var að finna raunverulegan hitunar-
kostnað húsa og niðurstööurnar eru í
mjög stuttu máli þær að hitunar-
kostnaður hjá hemlaveitum er yfir-
leitt mun lægri en reiknað hefur
verið meö,” sagði Guörún Zoéga
verkfræðingur í samtali við DV.
„Þetta þýðir fyrir veiturnar að
vatnsþörfin er ekki eins mikil og
einnig lækkaðar tekjur. Afltoppur er
lægri hjá hemlaveitum og nýtingar-
tímihærri.”
Guðrún sagðist í skýrslu sinni ekki
leggja til neinar breytingar í sam-
ræmi viö þær niöurstöður að hemla-
veitumar komi verr út en mæla-
veitur, það væri annarra. Hún taldi
að ekki væri verið að sfá hemlakerfiö
rothögg en mælakerfiö væri þó
hentugra, bæði fyrir notendur og
seljendur.
„Eg held að þessar niðurstöður
komi mönnum kannski ekki á
óvart,” sagði Guðrún um þann mun
sem reyndist vera á útreiknuðum
hitunarkostnaði íbúða sem iðnaðar-
ráðuneytið hefur notað og því sem
skýrslan leiðir í Ijós. „Raunverulegt
orkuverð er kannski ekki nema upp
undir 60 aurar eða rúmur helmingur
af því sem reiknað hefur verið með.
Munurinn á hitunarkostnaði er hins
vegarekkieinsmikill.” JBH
IONAOAHBAOUNIYTIO
SAMAMBURDUn MITAKOSTMAOAR 3UNI
26.06.84/KH/gh:niðurgrd
1. HITAVEITUR
.01 Reykjavik
.02 SeltJirnirnes
.03 Mosfel1shreppur
.04 Bessdstdððhreppur
.0S Suóurnes
.06 Porldkshofn
.07 Eyrar
.08 Selfoss
.09 Hverígerói
.10 Ldugdrðs
.11 Fluóir
.12 Brautarholt
.13 Vestmannaeyjdr
.14 Akranes og BorgarfJ
.15 Reykholar
.16 Suðureyn
.17 Hvammstangi
.18 Blönduos
.19 Sauðarkrokur
.20 Siglufjörður
.21 Olafsfjörður
,22 Daivlk
.23 Hrisey
.24 Akureyri
.25 Husavik
.26 Reykjahlið
.27 Egilstaðir
.28 Rangeinga
2. VARMAVEITUR
.01 Orkubu Vestfjarða
% á óniöurgreiddri olíuhitun.
>»»»»>»»»»»»»»»»»>»»»»»»»»»>
0 10 20 30 40 50 60 70 80 90 100
.02 SeyðisfJorður
.03 Hofn Hornaf.
3. RAFHITUN
.01 Vestmannaeyjar
.02 Akranes
.03 Orkubu Vestfjarða
.04 Siqlufjorður
.05 Akureyri
.06 ReyðarfJorður
.07 Rafmagnsveitur rikis HH
4. OLIUHITUN
.01 An oliustyrks
.02 Með oiiustyrk
MN: Með, niðurgreislum
Ail: An niðurqreíðs 1 na
10 20 30 40
!HVER • 3AFNCIL0IR 2\
60 70. 80 90 100
Þetta yfiriit sýnir hitunarkostnað i júni 1984. Oliuhitun án iækkunar
vegna oliustyrks er sett á 100%. Hitunarkostnaður hjá Hitaveitu Reykja-
víkur er aðeins 22%. Hverpunktur i yfiriitinujafngildir 2%.
' VEIÐIVON
Gunnar Bender
Hraíiik '! Kjartansson með tvo fallega
laxa nr ármótum Miðfjarðarár og
Vestb. ár, 18 og 14 punda laxar. 18
punda laxinn er sá stærsti sem veiðst
hefur ennþá í Miðfirðinum.
DV-mynd G. Bender.
Miðfjarðará:
Síðasta holl fékk 48 laxa
— mjög góð stærð á laxinum, 8-18 pund
Miðfjarðará hefur um langt árabil
verið talin með betri laxveiðiám þessa
lands en árið 1938 var áin friðiuð fyrir
ádráttaveiði sem nær hafði gert hana
að tómum pytti en sem betur fer var
því afstýrt
Þegar talað er um Miðfjarðará er
átt við allt veiðisvæðið í Miðfirði, það
er Miðfjaröará sjálfa, Austurá, Vesturá
og Núpsá, sem mynda Miðf jarðará eða
falla í hana. Hafa allar þessar ár sína
skemmtilegu eiginleika og er gaman
að veiða í þeim. Veiðin í Miðfjarðará
það sem af er hefur verið þokkaleg og
var kominn á land 141 lax á hádegi á
miövikudag og var sá stærsti 18 pund.
Holliö sem yfirgaf ána þá um hádegi
og hafði veitt i ánni í þrjá daga, var
með 48 laxa, frá 8—18 punda laxa.
Mest hefur veiðst af laxinum á maðk,
en flugan hefur þó gefið einn og einn
lax.
I Vesturánni virðist vera mest af
laxi núna og segja reyndir veiðimenn
að áin sé ,,gull” að veiða í henni þessa
dagana.
Austuráin hefur gefið nokkra laxa
og virðist vera eitthvað af laxi í henni.
Núpsáin hefur gefið töluvert af laxi
og eru þar efri og neðri Núpsfossar
fengslæastir eins og er. En það getur
breyst á stuttum tíma.
Þó var þetta alls engin mokveiði,
langt frá því, en reytingur engu að
síður. Eldri veiöimenn muna ána betri
en hún er núna orðin en þetta breytist
vist allt. Mikið af þessum löxum sem
veiddust í hollinu síðasta voru með lús
og sumir með margar. Veiðisvæði
Miðfjarðarár er um 60 km og víst eru
nafngreindir um 150 veiðistaðir, svo
af nógu er að taka. Gaman er að renna
fyrir fisk í ánum og fá hann tO aö taka
þó meira mætti vera af honum í þeim.
G. Bender.
Sendiherra Þýskalands í bréfi til Jóns
Hákonar hjá Hafskipi: ^
UMMÆLIÞIN
ÓSANNGJÖRN
Sendiherra Vestur-Þýskalands á
Islandi hefur sent Jóni Hákoni
Magnússyni, framkvæmdastjóra hjá
Hafskipi, bréf vegna ummæla sem
sá síðarnefndi haföi i viötali við DV á
þriðjudag í sambandi viö flótta
Miroslav Peter Baly.
I áðurnefndu viðtali segir Jón
Hákon meðal annars aðhonumþyki
ekki laust við að þaö gæti tvi-
skinnungs í þessu öllu. „A sama tima
og þýsk yfirvöld eru að heiöra Islend-
inga fyrir frækin björgunarafrek,
bjarga þeir dæmdum þjófi úr landi.”
Þessi ummæli þykja sendi-
herranum Jörg R. Krieg ósanngjörn.
Hann segir að Jón Hákon hefði með
einu simtali til sendiráðsins getað
komist að því að þeir þar hefðu
engan þátt átt í flótta Miroslav
Peter. Og auk þess styddu þeir vfija
islenskra yfirvalda í hvívetna í þessu
máli. Hann segir ennfremur að
viðurkenningamar til björgunar-
mannanna hafi farið fram í fullri vin-
semd í fullvissu þess að samband
þjóðanna tveggja væri í stakasta
lagi. „Við þessa hátíðlegu stund
hvarflaði ekki að nokkrum að hún
gæti síðar verið notuð í þeim tilgangi
sem þú gefur í skyn,” segir í niður-
lagi bréfsins. . —KÞ
Hæstiréttur:
Máli Baly og f rúar f restað
Máli fálkaeggjaþjófanna Miro-
slav Peter Baly og Gabriele Uth Baly
sem flytja átti fyrir Hæstarétti í dag
hefur verið frestað til hausts.
„Vegna farbannsins sem Baly var
í til 5. júlí átti að ljúka málinu fyrir
þann tíma og áöur en Hæstiréttur
færi í réttarhlé,” sagði Bjöm Helga-
son, ritari Hæstaréttar, i samtali við
DV. „Nú þegar Baly er sloppinn úr
landi virðist það skipta litlu máli
hvort dómurinn er kveðinn upp nú
eðaíhaust.”
Bjöm sagði að málflutningi fyrir
Hæstarétti væri lokið fyrir réttarhlé.
Hann sagði einnig að á sumrin væru
einungis þau mál tekin fyrir sem
væru mjög aökallandi og þyldu enga
bið.
—KÞ