Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1984, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1984, Qupperneq 5
DV. FÖSTUDAGUR 29. JONl 1984. 5 Áætlun um utanf erðir starf smanna Flugmálastjómar á næsta ári: DAGAFJÖLDINN SAMAN- LAGT NOKKUÐ Á 3JA ÁR — Er erlendis í 60 daga á vegum stof nunarinnar á erf iðu ári, segir f lugmálast jóri AOsetur Flugmálastjórnar: starfsmenn þar verOa erlendis á vegum stofnunarínnar í810 daga á næsta ári. „Á erfiðu ári þarf ég að vera í út- löndum á vegum stofnunarinnar allt upp í 60 daga. Á venjuiegu ári eru það um 45 dagar,” sagði Pétur Ein- arsson flugmálastjóri, í samtali við DV. Alþýðublaðið greindi frá skýrslu í gær sem flugmálastjóri lagði fyrir flugráö fyrir skömmu. 1 skýrslunni er meðal annars greint frá ferða- lögum og ferðakostnaði Flugmála- stjómar. „Eg er mjög hissa á því að skýrsla þessi skuli vera birt því hún er trúnaðarmál,” sagði Pétur. „Hins vegar er þetta svo sem ekkert leyndarmál. Við gætum þess aðhalds sem við mögulega getum og svona 80 prósent af okkar ferðum eru beinlínis vegna flugumferðar- þjónustu.” I skýrslunni um ferðalög starfs- manna Flugmálastjómar fyrstu sex mánuði þessa árs kemur fram að þeir hafa verið erlendis i samtals 571 dag eða rúmlega háift annað ár. Pétur sagði að þetta skiptist svo: Radamámskeið, 4 menn í 21 dag, samtals 84 dagar. Námskeið í meðferð fjarskipta- tækja, 1 radíómaður í 40 daga. Radarnámskeið, 4 flugumferðar- stjórar í 56 daga, samtals 224 dagar. Fundur um samræmingu flugs á Atlantshafi, 1 maður í 22 daga. Þing alþjóöaflugmálastjómarinn- ar, 1 maður í 17 daga. Ferðir vegna uppsetningar nýs radars, 3 menn i 8 daga, samtals 24 dagar. Vegna alþjóðafiugmálastofnunar- innar í Montreal, einn maður í 20 daga. „Þetta er svona það stærsta,” sagði Pétur. „Afgangurinn fer í styttri ferðir, frá 3ja daga upp í viku, vegna funda og einstakra verkefna. Annars er það svo að við reynum til dæmis á fundum og ráðstefnum aö vera ekki alian tímann. Hins vegar er oft erfitt við það að eiga þar sem atkvæðagreiðslur fara oft fram í lokin. Og okkur finnst bagalegt að taka ekki þátt i slíku, eins og gefur að skilja.” Á síðasta ári kemur fram að ferðir og uppihald það ár kostuðu rúmlega 2,3 milljónir. Fargjöld og dagpening- ar fyrir einstaka starfsmenn á því ári nema frá 20 til 30 þús. kr. fyrir hverja ferð í rúmar 200 þús. kr. 80 dagar í ferðalög á næsta ári „Á næsta ári er gert ráð fyrir, að kostnaður við ferðir utanlands verði tæpar 4,5 milljónir og innanlands 1,345 milljónir eöa samtals um 5,8 milljónir,” sagði Pétur. „A því ári er gert ráð fyrir að starfsmenn stofnunarinnar verði á ferðalögum erlendisí80daga.” Að sögn Péturs skiptast þær svo: 113 dagar vegna alþjóðaflugmála- stofnunarinnar. 16 dagar vegna Evrópusambands flugmálastjórna, 34 dagar vegna norræns sam- starfsfundar. 84 dagar vegna annarra alþjóðlegra funda. 93 dagar vegna námskeiðs radió- manna, 337 dagar vegna námskeiös flug- umferðarstjóra. 43 dagar vegna námskeiðs í flug- prófunum. 32 dagar önnur námskeið, 30 dagar sérstakar kynnisferðir. 21 dagur vegna stöövaskoðana og flugvallaeftirlits. 5 dagar vegna björgunar- ráðstefnu. Samtals gerir þetta 810 daga eða um tvö og hálft ár. „Af þessu sést,” sagði Pétur, „aö langmestur hlutinn eöa um 63 prósent fer vegna nám- skeiða, um 30 prósent vegna sam-1 starfs við erlenda aðila og 7 prósent vegna annarra ferða. Þá vil ég benda á þaö aö i fluginu erum við að vinna víðsvegar um heiminn. Við störfum á alþjóölegum grundvelli. Þess vegna komumst við ekki hjá að sitja þessa fundi og ráðstefnur og greiða at- kvæöi. Allt hitt er í lágmarki. ” Pétur sagði að ferðalögin innan- lands væru vegna viðhalds og eftir- lits, vegna afleysinga og námskeiöa í Reykjavík. „Allt í lágmarki" , — En hversu margir vinna hjá Flugmálastjóm. Hefurðu mannskapi í allar þessar ferðir ? „Það vinna um 220 manns hjá Flugmálastjórn. Námskeiðin, er haldin eru, em fyrir nýliða og þá sem em að endurmennta sig. Það em því ekki sömu mennimir sem fara á þau eins og gefur að skilja. Um erlenda samstarfið sjá sex menn og þeir skipta þessu á milli sin. En eins og ég sagði höldum við öllu í lágmarki,” sagði Pétur Einarsson. -KÞ TJALDSÝNING FÖSTUDAG, LAUGARDAG OGSUNNUDAG. 5 MANNA TJALD Súluhæð: 1.8 m. FLEYGAHIMINN Á 5 MANNA TJALD HIMINN Á 5 MANNA TJALD 1 eða 13 m Iram fyrá tjald með eða ðn kants. 4-5 MANNA TJALD 0G HIMINN HIMINN MEÐ KANTI HIMINN Á3JA MANNA TJALD 1 eða 13 m fram fyrir tjald, með eða án kants. Vegghæö: 60 cm. Þyngd: 12 kg. Lengd: 3 m. Breidd: 2 m. Verð: 5399. Súluhæð yfir tjaldi: 1,8 m. Súluhæð: 1.8 m. Súluhæð: 1,8 m. Súluhæð: 1,5 m. Súluhæð I framlengingu: 1,7 m. Þyngd á 1 m: Vegghæð: engin. Þyngd á 1.. Þyngd: 11 kg. Þyngd á 1,5 m: 10 kg. Þungd: 13. kg. Þyngdá 1,5 m: 73 kg. Lengd: 5 m að neðan og 4.5 m að ofan. Langd: 4 m-4,5 m. \ Lengd tjalds: 2.7 m. Lengd 3.75-425 m. Breidd: 2 m. Breidd: 2 m. Breidd tjalds: 2 m. Breidd: 13 m. Verð: 6.683, Verð 1 m: 4290, Lengd himins: 3,4 eða 3,7 m. Verð 1 m: 3318. 3 MANNA TJALD Súluhæð: 13 m. Vegghæð: 40 cm. Þyngd: 7,5 kg. Lengd: 2,75 m. Súluhœð: 1,5 m. Vegghæð: 40 cm. Þyngd: 5,5 kg. Lengd: 2 m. Verö 1 m m/kanti: 4.944,- Verð 1,5 m: 4.525, Verð 1,5 m m/kanti: 5.179,- Bre’idd himins: 2 m. Verðmeð 3.4 m: 7.717,- Verð með 3.7 m: 8.636,- OPIÐ ALLA HELGINA föstudag, laugardag og sunnudag. Verð 1 m mfkanti: 4.172.- Vetð 13 m: 3.885,- Verð 13 mmfkanti: 4.538,- e£\ag er^y Breidd: 13 m. Verö: 4.087,- Breidd: 13 m. Verö: 3.321,- Eyjarslóð 7. Símar: 14093 og 13320. HMÉMiiáiaiaMÉiiæriiMiarááráikaaaaaaráMáMæannadiMMaMMaiMMMUUa ■

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.