Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1984, Síða 6
6
DV. FÖSTUDAGUR 29. JUNl 1984.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Bandaríkin:
/Etlaði að selja
írönum hergögn
—og einnig írska lýðveldishernum
Bandarískur vopnasali hefur veriö
sekur fundinn um tilraun til aö selja
Irönum vopn fyrir tvo milljarða
Bandaríkjadollara. Abbott van
Backer, 63 ára gamall, hugðist
meöal annars selja frönum 25 þyrlur
ætlaðar til árása, 100 skriðdreka og
60 Hawk stýriflaugar. Var van
Backer dæmdur í 11 ára fangelsi
fyrir tiltækið og er það hæsta refsing
sem hugsanleg er fyrir slíkt brot í
Bandaríkjunum. Auk þess var van
Backer gert aö greiða 40.000 dollara í
sekt.
Van Backer var handtekinn í júlí á
síðasta ári ásamttveimur félögum
sínum grunaður um að ætla að selja
Irönum mikið magn vopna. Höföu
þeir af því tilefni reynt aö múta opin-
berum starfsmönnum í Bandarik jun-
um til aö fá þá til að gefa út fölsuð
vottorð fyrir vopnakaupum.
Þeir félagarnir voru einnig sak-
felldir fyrir að ætla að selja vopn til
írska lýðveldishersins (IRA) og var
andvirði þeirra um 15 milljónir doll-
ara. Er þetta talið umfangsmesta
mál sinnar tegundar sem komið
hefur upp í Bandaríkjunum á síðustu
árum.
Opinberar heimildir frá
Bandaríkjunum herma að hvorki
stjómvöld í Iran né írski lýðveldis-
herinn hafi verið beinir kaupendur,
heldur hafi viðskiptin átt að fara
fram í gegnum milliiiði.
Pólland:
Frakki dæmdur fyrir að smygla áróðri
Pólskur dómstóll hefur dæmt 28 ára
gamlan Frakka í tveggja ára fangelsi
fyrir að reyna að smygla bókum og
f jölritunarvélum inn í landiö. Auk þess
var Frakkanum, Jacques Challot, gert
aögreiöa 4.500 dollara sekt.
Pólska fréttastofan PAP sagði að
Challot hefði reynt að smygla til Pól-
lands 778 bókum og bæklingum sem
hefðu verið andkommúnískur áróður.
Auk þess heföi hann reynt aö koma inn
í landið fimm fjölritunarvélum, vara-
hlutum í þær og blekl
Fyrr í þessum mánuði stóðu frönsku
leikararnir Yves Montand og Gerard
Depardieu fyrir mótmælum fyrir utan
pólska sendiráðið í París. Þar mót-
mæltu þeir handtöku Challots.
6 mánaða ábyrgð
BILABORG HF
Smiðshöföa 23 sími 812 99
Aldrei höfum við getað boðið eins gott
úrval af 1. flokks notuðum MAZDA bíl-
um og núna. Allir bílarnir eru gaum-
gæfilega yfirfarnir og þeim fylgir 6
mánaða ábyrgð frá söludegi.
Sýnishorn úr söluskrá:
Bifreiðakaupendur!
Komið við hjá okkur um helgina, trygg-
ið ykkur úrvals notaðan MAZDA bíl og
stuðlið þannig að ánægjulegu sumri.
Langar þig í nýrri bíl fyrir sumarið?
Komdu þá til okkar með þann gamla
og skiptu honum upp í nýrri MAZDA.
Opið laugardag frá kl. 10-4
GERÐ ÁRG. EKINN
929 LTD 2 dyra HT v/s '83 20.000 6 mán. áb.
929 LTD 4 dyra v/s '83 32.000 6 mán. áb.
929 LTD 4 dyra sjsk.v/s '82 20.000 6 mán. áb.
929 LTD 2 dyra HT m/öUu '82 53.000 6 mán. áb.
929Sedan4dyrasjsk.v/s '82 46.000 6 mán. áb.
929 Sedan 4 dyra sjsk.v/s '80 92.000 6 mán. áb.
929 Sedan 4 dyra '79 63.000 6 mán. áb.
626 GLX Hatchb. sjsk.v/s '83 16.000 6 mán.áb.
626 2000 4 dyra v/s '82 39.000 6 mán. áb.
626 2000 2 dyra HT v/s '82 47.000 6 mán.áb.
GERÐ
ARG.
626 2000 4 dyra sjsk. '82
626 2000 4 dyra sjsk. '81
626 1600 4 dyra '81
323 1300 3 dyra '82
323 1300Saloon4 dyra '82
323 1300 5 dyra sjsk. '81
323 1400 5 dyra '80
323 1400 SP 3 dyra '80
RX 7 2 dyra m/öllu '81
RX 7 '80
EKJNN
45.000
22.000
20.000
38.000
23.000
2.700
40.000
58.000
47.000
62.000
6 mán. áb.
6 mán. áb.
6mán. áb.
6 mán. áb.
6mán. áb.
6 mén. áb.
6 mán. áb.
6 mán. áb.
6mán.áb.
6 mán. áb.
John Barron er sérfræðingur í málefnum KGB. Hann hvetur Vesturlönd til að
setja reglur um f jölda sovéskra sendiráðsstarfsmanna.
KGB-sérfræðingur:
Telur Rússa hafa
gert mistök í
máli Treholts
John Barron, bandarískur sérfræð-
ingur í málefnum sovésku leyni-
þjónustunnar KGB, segir aö Sovét-
menn hafi gert mikil mistök í máli
norska njósnarans Arne Treholts.
Barron segir í viötali, sem nýlega birt-
ist í norska Dagblaðinu, að Sovétmenn
hafi verið of bráðir. Þeir hafi átt að
bíða meö aö nota Treholt þar til hann
hefði náö hærra i metorðastiganum
innan norska embættismannakerfis-
ins. Hefðu þeir gert það heföi Treholt
komið þeim aö miklu meiri notum en
raun varð á að sögn Barrons.
Barron, sem nú er staddur í Noregi
til að kynna nýja bók sem hann
skrifaöi um starfsemi KGB, sagði að
Treholt hefði veriö í miklum metum
hjá Sovétmönnum. Hann studdi það
meöal annars þeim rökum að Treholt
skyldi hitta tvo háttsetta menn innan
KGB í Vín en venjan sé sú að KGB
sendi aðeins einn mann til slíkra
funda.
Barron sagði að Sovétmenn hefðu
allt of marga sendiráðsstarfsmenn í
lýðræðisríkjunum. Barron sagði það
einkennilegt að Sovétmenn hefðu 33
sendiráösstarfsmenn í Osló en Norð-
menn þyrftu aðeins sex fulltrúa í sendi-
ráði sínu í Moskvu. Varpaði Barron
síðan þeirri spurningu til blaöamanns
hvort hann teldi líklegt aö þeir sovésku'
skiluöu fimm sinnum minni afköstum í
starfi. Barron sagöi að um það bil
helmingur sendiráðsstarfsmanna
Sovétmanna væri tengdur KGB. Að
lokum taldi hann rétt af Vesturlöndum
að setja reglur um fjölda sovéskra
sendiráðsstarfsmanna. Ætti fjöldi
þeirra aldrei að vera meiri en viðkom-
andi ríki hef ði í Moskvu.
Sovéskir félagsf ræðingar:
ÞRIÐJUDAGINN BER
AÐ LEGGJA NIÐUR
Eru dagar þriðjudagsins í Sovét-
ríkjunum taldir? Við því má búast ef
tveir sovéskir félagsfræðingar fá vilja
sínum framgengt. Félagsfræðingamir
segjast hafa komist að þeirri niður-
stööu í rannsóknum sínum aö núver-
andi fyrirkomulag að hafa 52 sjö daga
vikur í árinu með tólf mismunandi
löngum mánuðum sé afar óhentugt.
Það fullnægi ekki þörfum þróaðra iðn-
ríkja.
Félagsfræðingarnir, Maria Nits og
Sergei Pyatnik, hafa hannað sitt eigið
tímatal og birtist það nýlega í tímariti
sem sovéska visindaakademían gefur
út. Þau leggja til að sex dagar verði í
hverri viku og fimm vikur í mánuðin-
um. Mánuðimir tólf veröi þá ailir
jafnlangir eöa 30 dagar. Með þessu
verða dagarnir í árinu 360 og fær það
ekki staðist miðað við hið hefðbundna
sólár. Það tekur jú jörðina 3651/4 daga
að snúast umhverfis sólu. Or þessum
galla vilja félagsfræðingarnir leysa
með því að bæta viö nýja árið sitt einni
fimm daga viku (sex daga viku þegar
hlaupár er) sem yrði almenn frívika.
Hér yrði um að ræða viku í nýjum
skilningi — viku án mánaöar. Þau
segja að allir útreikningar muni verða
auðveldari í nýja tímatalinu. Auk þess
myndi sömu mánaðardaga ávallt bera
upp á sömu vikudaga. Félags-
fræðingarnir segja að í tímatali sínu
muni verða 15 vinnudögum færra en í
því sem nú er stuðst við.
Ekki er kunnugt um viðbrögð sov-
éskra ráöamanna viö þessum nýstár-
legu tillögum. En síðustu fregnir
herma að enn sé þar notaður
þriðjudagur.
Utanríkisráöherra
Kanada segirafsér
Utanríkisráðherra Kanada, Allan
Maceachen, hefur ákveðið að segja af
sér embætti. Hann hefur lengi verið
hægri hönd Pierre Trudeau sem vikið
hefur fyrir John Tumer sem forsætis-
ráðherra Kanada.
Maceachen sagði við fréttamenn að
lann hefði engan áhuga á að starfa í
stjórnmálum eftir að Trudeau er
hættur. Maceachen hefur auk starfa
sinna sem u
mmrm
tók fyrst sæti á þingi árið 1953 og er 62
ára gamall.
Maceachen sagði að honum hefði
verið boöin staða í ríkisstjóm Turners
en hafnaö því. Telja fréttaskýrendur
líklegt aö hinn vinsæli orkumálaráð-
herra Kanada, Jean Chretien, muni
ganga Turner næstur að völdum í ríkis-
stjórninni.
Tumer mun verða settur formlega í
embætti forsætisráðherra á morgun,
laugardag. Verður hann 17. forsætis-
ráðherra Kanada.