Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1984, Side 10
DV. FÖSTUDAGUR 29. JUNI1984.
10
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Nýja-Sjáland:
Tvísýnar kosning-
ar í næsta mánuði
Sir fíobert Muldoon, forsætisráðherra Nýja-Sjátands, er sigurviss.
Ibúar Nýja-Sjálands munu ganga
til kosninga 14. júlí næstkomandi.
Veröur þar kveöinn upp úrskurður
um stjórnarstefnu Sir Roberts
Muldoons forsætisráöherra sem
setið hefur i rikisstjóm frá árinu
1975. Muldoon er formaður Þjóöar-
flokksins og gegnir ennfremur stöðu
fjármálaráðherra. Muldoon, sem er
62 ára, þykir nokkuð hrokafullur og
ákvarðanir hans í efnahagsmálum
hafa oft vakið reiði.
Stjóm Muldoons missti naumar
meirihluta á þinginu 14. júní síöast
liðinn. Stjómin haföi aðeins eins
atkvæðis meirihluta sem féll þegai
auðmaðurinn Bob Jones sagöi skiliC
við flokk sinn og greiddi atkvæði
gegn tillögum stjórnarinnar í efna-
hagsmálum. Jones stofnaði síöar
sinn eigin flokk — Nýsjálenska flokk-
inn — og boðar hann minni ríkis-
afskipti en Muldoon getur fallist á.
Ekki er þó talið að flokkur Jones fái
mikið fylgi og benda skoðana-
kannanir til að flokkurinn fái einn
þingmann kjörinn af 92 sem sæti eiga
áþinginu.
Skýrsla ríkissaksóknara Italíu um
morðtilræðið við Jóhannes Pál páfa
mun sennilega leiða til þess að þrír
Búlgarar og sex Tyrkir veröi
ákærðir sem hlutdeildarmenn í
verknaði skotmannsins tyrkneska,
Ali Agca. Agca skaut á páfa og særöi
hann 13. maí 1981. Hann situr nú í
fangelsi á Italíu og afplánar lífstíðar
dóm fyrir morðtilræði við páfann.
Samkvæmt heimildum frá Italíu
leggur ríkissaksóknarinn, Antonio
Albano, það til í skýrslu sinni að
ákæra verði gefin út á hendur
mönnunum þar sem hann telur ótví-
rætt að þeir hafi verið þátttakendur í
samsæri um aö myrða páfann.
Hætt í Póllandi
Albano hefur unnið að skýrslu
sinni í fimm mánuði. Hefur hann
stuðst viö rannsóknir Ilario Martella
dómara sem stjórnaði frumrannsókn
málsins. Síðan verður það Martellas
að ákveða hvort ákæra skuli gefin út.
Að öllum líkindum mun sú ákvörðun
liggja fyrir nú í sumar.
Skýrsla saksóknarans flokkast enn
sem komiö er sem leynilegt plagg.
Hins vegar hefur bandarísk blaða-
kona, Claire Sterling, komist yfir
eintak af henni. Sterling hefur
skrifað um skýrsluna í mörg blöð
víðs vegar um heim. Hún hefur
fylgst náið með málinu frá því skot-
árásin var gerð fyrir þremur árum.
Sterling segir að í skýrslunni komi
fram 'að „valdamikill stjórnmála-
maður” hafi álitið mikla hættu stafa
Persónulegt fylgi
ráðherrans
Síðustu skoöanakannanir gefa
Muldoon forsætisráðherra ekki til-
efni til mikillar bjartsýni. Sam-
kvæmt þeim fær Verkamanna-
flokkurinn, sem er í stjórnarand-
stööu, 46 prósent atkvæða en Þjóðar-
flokkur Muldoons 39 prósent. Hins
vegar vildu helmingi fleiri fá
Muldoon sem forsætisráðherra
heldur en formann Verkalýðs-
flokksins, David Lange. Á þetta
hefur Muldoon lagt mikla áherslu í j
málflutningi sínum að undanförnu.
Lange er 41 árs lögfræðingur.
Hann tók við formennsku Verka-
mannaflokksins af Bill Rowling eftir
að flokkurinn hafði tapað kosningum
þrisvar sinnum í röö. Lange er talinn
hafa sett ferskan svip á flokk sinn.
Hann hefur bent á að þrátt fyrir að
persónulegt fylgi sitt sé mun minna
en Muldoons þá fari það vaxandi
meðalkjósenda.
Muldoon hefur verið gagnrýndur
mest fyrir stefnu sína í efnahagsmál-
um. Andstæðingar hans hafa gagn-
rýnt hann fyrir miklar erlendar lán-
Ítalía:
af Einingu, hinni bönnuðu pólsku
verkalýöshreyfingu. Hafi þessi
valdamaður talið heppilegt aö drepa
hinn pólska páfa sem verið hefur
óþreytandi við að lýsa yfir stuðningi
við baráttu Einingar fyrir frelsi og
mannréttindum í Póllandi.
Þetta er þó aðeins skoðun Albanos
en ekki stutt ótvíræðum sönnunar-
gögnum. Hefur Albano sjálfur staö-
fest það í viðtölum við fréttamenn.
öruggu hæli lofað
Að sögn Sterling er því lýst í smá-
atriöum í skýrslunni hvers konar að-
stoð Agca hlaut við framkvæmd
ódæðisins og einnig hafi verið ætlun-
in að hjálpa honum að morðinu
loknu. Agca fullyrðir að gert hafi
verið ráð fyrir að hann kæmist undan
í flutningabíl merktum búlgarska
sendiráðinu á Italiu. Hefur hann lýst
þessari áætlun mjög nákvæmlega að
sögn Sterling.
I fyrstu neitaði þó Agca því að
nokkur hefði verið honum til aðstoðar
við verkið og hann hefði átt frum-
kvæðið sjálfur. I skýrslunni segir að
þegar hann hafi gert sér grein fyrir
því að vitorðsmenn hans hafi enga
aðstoð getað veitt honum hafi Agca
tekið þá ákvörðun að hefja samvinnu
við lögregluna. Samkvæmt skýrsl-
unni hefðu Búlgarar lofað Agca
400.000 dollurum fyrir að drepa páf-
ann og auk þess hefðu þeir heitið
honum öruggu hæli einhvers staöar
utan Italíu.
Einn Búlgaranna hefur verið í
tökur, lítinn sem engan hagvöxt, vit-
lausa vaxtastefnu og fyrir að lög-
binda hækkun launa og verðlags.
Auk þess gagnrýna þeir hann fyrir
að vera andvaralausan gagnvart at-
vinnuleysi í landinu sem nú er um
það bil fimm prósent. A sjötta ára-
tugnum þekktist atvinnuleysi ekki á
Nýja-Sjálandi og þjóðartekjur á
mann voru þær hæstu sem þekktust í
veröldinni.
Lange, formaöur Verkamanna-
flokksins, segir aö stefna flokks síns
sé skýr. Hann hefur boðað aögerðir
til að auka hagvöxt og koma í veg
fyrir atvinnuleysi én þetta eru að
sjálfsögðu markmið sem allir
flokkarnir hafa sett í stefnuskrár
sínar.
Hagstæð
erlend lán
Muldoon skorar á kjósendur lands-
ins að athuga sinn gang og hvetur þá
til að breyta ekki breytinganna
vegna. Hann mótmælir því að efna-
hagsstefna ríkisstjómarinnar sé
fangelsi frá því í nóvember 1982.
Sergei Antonov var þá handtekinn og
grunaður um aðild að tilræðinu.
Verjandi hans, Guiseppe Consolo,
hefur sagt að Sterling segi ekki nema
hálfan sannleikann. Hún sleppi
veigamiklum atriðum sem styrki þá
fullyrðingu skjólstæðings síns að
hann sé ekkert við málið riðinn. Auk
þess sakar verjandinn Sterling um
ónákvæm vinnubrögð en hann hefur
neitað að fara út í smáatriöi með
þeim rökum að skýrsla saksóknar-
ans sé enn leynilegt plagg.
Pólitísk nauðsyn
Sterling hefur vísað þessum
ásökunum lögfræðingsins algjörlega
á bug. Hún segir að í skýrslu Albanos
komi það viðhorf hans fram að mikill
stuðningur páfans við Einingu hafi
leitt til þess að búlgarska leyni-
þjónustan hafi skipulagt tilræðið.
Litið hafi verið á verknaðinn sem
pólitiska nauðsyn til að viðhalda ró í
ríkjumVarsjárbandalagsins.
Sterling segir að með því að full-
yrða að „valdamikill stjórnmála-
maður” hafi fyrirskipað að páfi
skyldi myrtur sé Albano að ásaka
Sovétmenn um að standa aö baki
verknaðinum. Hún bætir því við að
þama sé Albano kominn út á hálan
ís. Hann setji ekki fram neinar
ótvíræðar sannanir fyrir staðhæf-
ingu sinni heldur sé um persónulega
skoðun hans að ræða. Sterling segir
því að Albano hafi farið út fyrir verk-
svið sitt sem saksóknari.
Sterling getur sér þess til að með
þessu sé Albano að lýsa þeirri sann-
röng. Muldoon hefur hafnað því að
erlend lán séu of há. Hann bendir á
að Nýja-Sjáland njóti mikils trausts
á alþjóðlegum Iánamörkuðum og
styður þá fullyröingu með því að ný-
lega hafi verið tekið lán meö hag-
stæðum vöxtum og einnig bendi
f jöldi þeirra sem lána vilji Nýja-Sjá-
landi til þess að menn beri traust til
landsins.
Ráðherra
til æviloka
Verkamannaflokkinn vantar
fjögur til fimm prósent fylgisaukn-
ingu til að ná meirihluta ef marka
má síðustu skoðanakannanir. Ef
Jóhannes Páll páfi II. særður eftir
skotárásina.
færingu sinni að engar líkur séu til
þess að búlgarska leyniþjónustan
hafi tekiö þaö upp hjá sjálfri sér aö
skipuleggja morð á páfanum.
Einhver annar og valdameiri aðili
hljóti að hafa komiö þar við sögu.
Þessi háttur hafi hins vegar verið á
hafður í öryggisskyni ef eitthvað
skyldi fara úrskeiðis eins og raunin
varð á.
Samsæri CIA
Búlgarar hafa staðfastlega neitað
öllum ásökunum um að leyniþjón-
usta þeirra hafi verið viðriðin
verknaðinn. Þeir segja aö banda-
hvorki þjóðarflokkurinn né Verka-
mannaflokkurinn ná hreinum meiri-
hluta kunna tveir litlir flokkar að ná
oddastöðu eftir kosningamar. Það
eru annars vegar flokkur Bobs Jones
og hins vegar lítiU félagshyggju-
flokkur sem hefur nú tvö þingsæti.
Muldoon forsætisráðherra er hins
vegar ekki á þeim buxunum að
hætta. Hann er sigurviss og segist
eiga eftir langan tíma sem forsætis-
ráðherra. „Líklega verð ég forsætis-
ráðherra til æviloka,” var haft eftir
honum nýlega. Vitaskuld er það ekki
á hans valdi að ákveða það. Kjósend-
ur munu kveða upp sinn dóm þann
14. júlí næstkomandi.
Tilræðismaðurinn tyrkneski, Ali
Agca.
ríska leyniþjónustan CIA hafi
spunnið þá sögu upp. Og að um sé að
ræða samsæri bandarískra heims-
valdasinna gegn Búlgaríu. Consolo,
verjandi hins búlgarska Antonovs,
heldur því statt og stööugt fram að
Antonov sé saklaus. Hann fullyrðir
að Ali Agca hafi aldrei sagt sannleik-
ann. Framburður hans sé lygi frá
rótum.
Búist er við að dómur falli í málinu
í lok þessa árs eða byrjun þess
næsta. Mun þá væntanlega skýrast
hvort Tyrkinn Ali Agca tók það upp
hjá sjálfum sér að ráða Jóhannes Pál
páfa af dögum eða hvort fleiri aðilar
hafiátthlutað máli.
Saksóknari vill
ákæra Búlgara
—fyrir þátttöku í tilræðinu við Jóhannes Pál páfa
Umsjón: GunnlaugurS. Gunnlaugsson