Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1984, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1984, Blaðsíða 11
DV. FÖSTUDAGUR 29. JUNl 1984. 11 Júlíus K. Valdimarsson, formaður Flokks mannsins: Samhygð er líka fjör, grín og glens „Ég vil líkja framtíðinni við veörið eins og það hefur verið undanfarna daga, bjart, hlýtt og hressandi,” sagði Júlíus/K.Valdimarsson, fram- kvæmdastjóri Vinnumálasambands samvinnufélaganna og formaður bráðabirgðastjómar Flokks manns- ins, sem nýverið var stofnaður á vegum Samhygðar. Júlíus er 41 árs að aldri, samvinnu- skólagenginn og hefur gegnt fram- kvæmdastjórastarfi hjá Vinnumála- sambandinu frá 23 ára aldri. „Nei, ég fékk þetta starf ekki í gegnum neina klíku, engin skyldmenni mín hafa verið í forystusveit SlS, faðir minn var húsamálari og hefur aldrei málað hús fyrir Sambandið, mér vitanlega. Eg var í verslunarskóla í Bretlandi þegar mér var boðið fram- kvæmdastjórastarfið og hef í sann- leika sagt aldrei vitað hvers vegna,” sagði Júlíus. Samhygð kynntist Július áriö 1980 þegar hann fór á streitunámskeiö hjá Pétri Guðjónssyni og nánari kynni hans af Pétri leiddu hann inn á braut- irSamhygðar. „Eg var eins og svo margir aðrir stre:saður kerfiskarl og hafði ákaf- lega mikið gagn af því að kynnast Pétri, námskeiöum hans og svo loks Samhygð. Að vísu held ég að sumir hafi orðið hissa þegar ég fór að starfa meö samtökunum, en það er alltaf sama sagan þegar eitthvað nýtt er á ferðinni, þá fyllist fólk for- dómum. Þó held ég ekki að ég hafi orðið meira fyrir barðinu á þeim en aörir félagar mínir í Samhygð.” Aðspurður um áhugamál sín segir Júlíusað þar sé tónlistin í fyrsta sæti. Hann er liðtækur klarinett- og harmóníkuleikari og kemur það sér vel á fundum Samhygðar því þar situr alvaran ekki alltaf í fyrirúmi eða eins og Júlíus oröar það sjálfur: ,,Samhygð er líka fjör, grín og glens. Mér finnst það skipta miklu máli í lífi hvers og eins að hann skemmti sér; aö lífið sé skemmtielgt. ’ ’ Júlíus K. Valdimarsson er fráskil- inn og á tvö böm, strák og stelpu, 17 ogl8ára. -EIR. Július K Valdimarsson, formað- ur bráðabirgðastjórnar Flokks mannsins: — Faðir minn hefur aldrei málað hús fyrir Sambandið. Slitlagí Homafirðí Slitlagsbundnir vegir verða stöð- ugt stærri hluti af þjóðvegum lands- ins. Um miðjan júlí næstkomandi verður væntanlega hægt að aka á slitlagi meginhlutann af leiðinni frá Höfn í Homafirði vestur að Hólmsá á Mýrum. Nokkrir stuttir malarkaflar verða þó eftir. Að sögn Hilmars Finnssonar, um- dæmistæknifræðings Vegageröar- innar á Austurlandi, verður slitlag lagt á 16,1 kílómetra alls í Homafiröi í sumar. Austan viö Hoffellsá verða 3,7 kílómetrar klæddir sex metra breiöu slitlagi. Frá Hoffellsá aö Grjótá á Mýrum verður lagt á 5,9 kílómetra. Frá Djúpá að Hölmsá verða 6,4 kílómetrar klæddir. Breidd slitlagsins á Mýrum verður fjórir metrar en ráðgert hafði verið að breiddin yrði sex metrar. Meö því Verið var að slétta þjóðveginn á Mýrum i Hornafirði i síðustu viku með þessum tækjum. Þessa dagana er verið að klæða hann slitlagi. DV-mynd: GVA. aö mjókka verður slitlagiö þess í stað mikil. Mjórra slitlag er jafnvel talið látiö ná lengra. Ohætt var talið að betra í hálku á vetuma. mjókka þar sem umferð er ekki -KMU. Nauðunqaruppboð sem auglýst var í 92., 97. og 99. tbl. Lögbirtingablaos 1982 á húseigninnl verslunarhús Kaupfélags Svalbarðseyrar, þingl. eign Kaupfélags Svalbarðseyrar, fer fram eftir kröfu Póstgirostofunnar og fl. á eign- inni sjálfri þriðjudaginn 10.7.1984 kl. 16. Uppboðið er annað og síðasta uppboð. Sýslumaður Þingey jarsýslu, bæjarfógeti Húsavíkur. MYNDBANDALEIGA til sölu af sérstökum ástæðum. Er á besta stað í bænum. Engin útborgun, söluverð lánað til langs tíma. Þeir sem hafa áhuga sendi nafn og síma á augld. DV Þverholti fyrir þriðjudag merkt: m-20. ísafjarðarkaupstaður ÚTBOÐ Tilboð óskast í að fullgera u.þ.b. 2.500 fm lóð fyrir dagheimili og leikskóla á Isafirði. Verkið er jarðvinna, girðingar, hellu- lögn o.fl. ásamt smíði og uppsetningu leiktækja. Útboðsgögn verða afhent á tæknideild ísafjarðarkaupstaðar, Austurvegi 2, gegn 1000 kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað 3. júlí nk. kl. 11. Áskilinn er réttur til aö taka hvaða tilboöi sem er eða hafna öllum. Bæjarstjórinn ísafirði. KVARTMÍLUKEPPNI Kvartmílukeppni verður haldin laugardaginn 30. júní og hefst hún kl. 14.00 á brautinni við Straumsvík. Komið og sjáið nýja bila og spennandi keppni. KVARTMÍLUKLÚBBURINN Rafsuðu vélar SINDRA STÁLHF Jafnstraumsrafsuðuvélar, 300 og 400 A. Nota þriggja fasa straum 220/380/420 V Sjóða rafsuðuvír allt að 6.3 mm Auðvelt að breyta í hlífðargasrafsuðuvélar með föstu skauti TIG Akaflega auðveld suða, jafnvel fyrír byrjendur vegna góðs kveikjueiginleika Vélarnar eru á hjólum og með handföngum — ótrúlega smávaxnar vélar BOC TPANSARC DC300 OG 400 Pósthólf 881, Borgartúni 31, 105 Reykjavik, simi: 27222, bein llna: 11711. TIL SÖLU Willys Renegate Cj 5 árg. 75, 8 cyl., 304, ekinn 52 þús. mílur frá upphafi. Allur nýupptekinn. Tilboð óskast. Uppl. í símum 68-77 66, Eggert 68-64-77. Blik og 96-23952, heimasími.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.