Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1984, Síða 13
Kjallarinn
DV. FÖSTUDAGUR 29. JUNI1984.
AÐALHEIÐUR
BJARNFREÐSDOTTIR,
FORMAÐUR SÓKNAR
við munum sýna að við getum tekiö á
ef ekki verður hlustað á okkur.
Sóknarfélagar hafa aldrei verið
spurðir milliliöalaust um hvernig þeim
líki þessar breytingar. Bréf, sem skrifuð
eru af yfirmönnum, eru marklaus nema
staöið sé viö þau í framkvæmd
Við höfum mikið veriö að tala um
atvinnulýðræði. Er það lýðræði að
hlusta á annan aöilann? Við höfum
samninga í gildi. Er það réttlætanlegt
að skeröa laun fólks svo grimmilega
sem nú er verið að gera þó uppsögnum
sé beitt. Eg spyr ykkur, viðsemjendur
okkar: Finnst ykkur það heiöarlegt?
Getið þið ekki tilkynnt okkur í samningum
hverserað vémta?
Við ykkur, félaga mina, hef ég þetta
að segja: Nú dugar ekki að við berj-
umst hvert við annað. Nú verðum við
að snúa bökum saman. Sameinuð
erum við afl og getum hrint af okkur
hvaða árás sem er. Það gengur ekkert
sjúkrahús eða bamaheimili nema við
séum mættar til leiks. Munið það og
beriö höfuöið hátt.
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir.
13
Af görðum og
veitingahúsum
Nú skartar Reykjavík sínu feg-
ursta. Aratugastarf Hafliða garð-
yrkjustjóra er að skiia skartinu og
þar er óiikt að sjá Miklatúnið nú en
þegar það var tún og kennt við
Klambra, þótt það tilheyrði Sunnu-
hvoli. Sama er um Hljómskálagarð-
inn og í Laugardal er skrúðgarðurinn
fagri sem Eiríkur gaf Reykvíkingum
eftir að hafa yrkt hann um áratuga-
skeið með konu sinni.
Svo höfum við öskjuhliðina og
Heiðmörk, — það er mikið af
grænum svæðum, — græna byltingin
sem Birgir Isleifur Gunnarsson tal-
aði um og beitti sér fyrir er að koma
fram.
En þó vantar
nokkuðá
Á sínum tíma var Hljómskálinn
reistur af homaleikurum í Reykja-
vík og þar átti að æfa í skálanum en
fara síöan upp á þak á góðviðrisdög-
um og leika fyrir almenning. Ekki
man ég eftir því aö slíkt hafi verið
gert en mér er hins vegar í bams-
minni þegar lúörasveitirnar komu í
miðbæinn á sólardögum og léku. Það
varð sérstakt andrúmsloft á þessum
dögum, — meiri hátíðablær en á
venjulegum sunnudögum, svipað
eins og ég heyrði seinna þegar ég fór
að mæta á setningu Landsfundar
Sjálfstæöisflokksins.
Eg man ekki eftir því að lúðra-
sveitir hafi tekið hornin sín að spila
undanfarin ár, — vel getur verið að
þaðhafifariðframhjámér.En þetta
er góður siður sem mætti rækja vel.
Eina tónlistin sem ég heyri úr
miðbænum er djöflamúsík raf-
magnshljómsveitanna þar sem lagt
er mest upp úr hávaöa eins og enn sé
nauðsynlegt að æra burtu drísildjöfla
■frumskógarins.
Raunar er þaö ein af hræðilegum
afleiðingum ósigursins í fyrri heims-
stjTjöldinni að afróamerísk tónlist
hefur orðiö ails ráöandi i Evrópu, en
ekki hin tónþýða evrópska músík
samin í tónahefð Schuberts, Weyse,
Grieg eða Lehars. Því það var vissu-
lega svo að Evrópa beið ósigur 1917,
en sigur Þýskalands og Austurrikis
þá hefði komið í veg fyrir bæði ógnir
kommúnismans og hörmungar
nasismans, og ekki síst varðveitt
evrópska menningu.
Og hliðarverkanir koma síðan
fram i tónsmíðum skallapoppara og
hljóðfæraiðkun rokkhljómsveita, —
einkanlega koma þessar hörmungar
vel fram síðustu mínútumar fyrir
sjónvarpsfréttir þegar tónmennta-
deild sjónvarpsins reynir að eyði-
leggja fimmtíu ára starf tónlistar-
deildar ríkisútvarpsins.
Það vantar vertingahús
Reykjavík verður falleg borg á
sumrin. Garðarnir í blóma og trén.
Hér er landsins stærsti skógur. En þó
notfæra of fáir sér útivistina. Og ég
held að þaö sé vegna þess að það
vantar veitingar í skemmtigörðun-
um. Hvarvetna í Evrópu eru
veitingahús tengd skrúðgörðunum.
Ef það er fallegur garður í einhverri
borg er ævinlega veitingahús í
grenndinni, þar sem hægt er að fá
einhverja hressingu, t.d. bjór eða
kaffi og ís handa bömum. Og þegar>
veitingahús em talin nauðsynleg í
miklu hlýrri löndum, af hverju þá
ekki hér, þar sem ævinlega er ein-
hver gjóla, sem gerir það erfitt að
drekka kaffið sitt úti, — fýrir utan
þaö að enginn hleypur heim að sækja
kaffibrúsa að drekka af í Hljóm-
skálagarðinum, — miklu frekar að
hispurslausir menn fari i ríkið og
skjóti hvitvínsflösku á milli sín á
einhverjum bekknum.
Ég veit ekki af hverju vantar
veitingahús. Gæti þó trúað því að
heilbrigðiseftirlitið eigi einhverja
sök á því en sú stofnun hefur hamast
gegn öllu því sem heilbrigt er í sam-
skiptum manna, svo lengi sem ég
man eftir. (Eðlilegar sóttvamir hafa
aldrei verið í verkahring þessarar
stofnunar heldur hitt að banna sölu
grænmetis á torgum, hamast gegn
íspinnasölu upp úr kælivögnum og
vera á móti pylsuvögnum).
Það má taka Heiðmörk sem dæmi.
Reykvíkingar fara þangað oft á
góðviðrisdögum með nesti. Þar er
grillað og gengið um. Hins vegar er
þar enginn staður sem fólk getur
drukkiö kaff ið sitt eða keypt sér mat,
— staöur eins og t.d. Valhöll á Þing-
völlum. Miklu eðlilegra væri að gefa
einhverjum einstaklingi færi á að
reisa veitingahús í Heiðmörk, þar
sem jafnframt væri hægt að fá að-
gang að útigrillum til þess að minnka
eldhættu, — setja upp smáleiksvæði
fyrir böm svo að f ullorðna fólkið hafi
frið.
Kjallarinn
HARALDUR BLÖNDAL
LÖGFRÆÐINGUR
Til hliðsjónar geta menn velt því
fyrir sér, hvemig aðkoman væri á
Þingvöllum ef veitingarekstur legð-
ist þar niður.
Bláfjöll tóku
stakkaskiptum
Ég er ekki áhugamaður um skíði.
Hins vegar hafa fróðir menn sagt
mér hversu miklum stakkaskiptum
aðstaöa tók þegar veitingahúsið var
reist í Bláfjöllum. Og alls staðar er
sama sagan. Til þess að menn njóti
útivistarinnar verður að vera afdrep
(nema þá fyrir sérstaka göngufúsa
menn), þess vegna er þaö svo að
skemmtigarðarnir verða ekki
notaöir fyrr en komið er veitingahús
í tengslum við þá.
Kjarvalsstaðir hafa því miöur
aldrei tengst Miklatúni. En það er
vel hægt. Lúðrasveitin gæti t.d.
spilaö þar á stéttinni á góðum sunnu-
degi, — þar mætti hafa litla hljóm-
sveit á fögm sumarkvöldi. En vitan-
lega þarf fyrst að útvega staðnum
vínveitingaleyfi svo að menn átti sig
á því að húsiö sé menningarsetur.
Haraldur Blöndal
lögfræðingur
í verði (ca 25%) heldur en brottför í
fyrstu viku maí, sbr. íslensku fjöl-
skylduna. Munurinn minnkar með
auknum barnaafslætti í maí en er þó
um kr. 3.000 fyrir fjölskylduna. Þar
sem Urval bauð ekki upp á brottför
þessa siðustu viku í aprfl er saman-
burður byggður á verði OSL fyrstu
viku í maí.
Einnig má koma með sparðatining
svo sem ónákvæmni í meðferð gengis
krónunnar og flugvallarskatts.
Samanburður
Að öllu þessu samanlögöu þarf því
ekki að koma á óvart að niðurstöður
hafa nokkuö breyst. Með tilvísun í
meðfylgjandi töflu þá hefur 3ja manna
fjölskyldan sem feröast í maí sparaö
sér kr. 1.167 með viökomu í London og
er þá miðað við að hægt sé að komast
af með eina gistinótt þar.
Sé sama fjölskylda á ferðinni í júli
breytist dæmiö enn og er nú rúmlega
ellefu þúsund krónum ódýrara í leigu-
flugimeð Urvali.
Viðkoman í London verður enn
ódýrari þegar um 4ra manna fjöl-
skyldu er að ræða en þá er leiguflug
Urvals ódýrara sem nemur kr. 7.841 í
maí.
I fréttinni 6. júní fullyrðir frétta-
maðurinn að ekki sé um sérstaka af-
sláttarferð að ræða. Viðmælendur mín-
ir hjá Callers Pegasus og OSL stað-
festa lúns vegar að verðið sé ekki sam-
kvæmt verðskrá, án þess að gefa upp
um hvers konar afslátt sé að ræða. Það
gefur augaleiö að slík afsláttargjöld
eru ekki samanburðarhæf við verð
skv. verðskrá. Islenskar ferðaskrif-
stofur hafa einnig auglýst sértilboð eða
veitt afslátt þó slxkt sé í lágmarki í ár.
Þjónusta
Hér að ofan hefur einungis verið
fjallað um verðsamanburð en ekki
gæði. Það verður hver að gera upp við
sig hvort hann vill stoppa i London til
lengri eða skemmri tíma með tilheyr-
andi kostnaði eða fljúga með íslenskri
vél á áfangastað. Sömuleiðis er erfitt
að meta til fjár það öryggi að geta
treyst á daglega aðstoð íslensks far-
arstjóra í stað vikulegrar heimsóknar
ensks fararstjóra. Ég læt aðra um að
dæma þaö.
Niðurstaða
Niðurstaðan er sú að hér hafi verið
ómaklega og aö lítt rannsökuöu máli
veist að íslenskum ferðaskrifstofum.
Staðreyndin er nefnilega sú að íslensk-
ar ferðaskrifstofur hafa í gegnum árin
sýnt ótrúlega útsjónarsemi, hug-
myndaflug og áræði í þeirri viðleitni
sinni að bjóða Islendingum upp á sem
hagkvæmasta og fjölbreyttasta ferða-
möguleika. M.a. ferðir til Mallorca um
London fyrir þá sem það hentar.
Þáttur sjónvarpsins
Þegar efni þessarar greinar var
kynnt 19. júní sl. fyrir fréttamanni
sjónvarps, Páli Magnússyni, virtist
hann skilja það sem hér er sett fram og
ekki vefengja að rétt væri með farið.
Tveimur tímum síðar eru samt í sjón-
varpi slitin úr samhengi mikilvæg at-
riði en öðrum sleppt þannig að útkom-
an verði sem neikvæðust fyrir íslensk-
ar ferðaskrifstofur.
Ekki veit ég hvort hér er þyrlað upp
ryki vegna þess að fréttamanninum er
um megn að viðurkenna að honum hafi
orðið á í tilbúningi „fréttarinnar” 6.
júní. Eða hvort fullyrðing eins kollega
míns sé rétt að sjónvarpiö fjalli helst
ekki um íslenskar ferðaskrifstofur
öðruvísi en neikvætt.
Hver svo sem skýringin er er ljóst
að sjónvarpið hefur illilega brugðist
frumskyldu sinni um hlutlausan frétta-
flutning. Þetta er þeim mun alvarlegra
að hér er um ríkisstofnun að ræöa sem
hefur einkaleyfi á beitingu þessa mátt-
ugasta fjölmiöils sem þekkist i dag.
Þannig er stjórnendum og starfsmönn-
um íslenska sjónvarpsins faliö í hend-
ur geysiöflugt tæki til mótunar al-
menningsálits í landinu til góðs eða ills
fyrir þá hagsmunaaðila sem hlut eiga
að máli hverju sinni.
Ekki er hægt að segja um á þessu
stigi máls hvort eða hve mikiö þessi
fréttatilbúningur hefur skaðað íslensk-
ar ferðaskrifstofur. Slíkt er erfitt að
meta en félag íslenskra ferðaskrifstofa
mun taka afstöðu til hvort frekari að-
gerða er þörf.
Karl Sigurhjartarson.
SAHANBURÐUR Á ÞRIGGJA VIKNA SÓLARLANDAFERÐ TIL MALLORCA, ÞAR SEM GIST ER
í ÍBÖÐ Á HÓTELINU ROYAL MAGALUF.
A. Hjón með ei.tt 9 ára barn.
Brottför í byrjun maí Brottför í byrjun júlí
1. I leiguflugi með Úrvaii Kr. 58.305 Kr. 63.710
2. í áætlun ti.l London, þaðan með enskri. ferðaskrifstofu Kr. 57.134 Kr. 74.858
\ Mismunur Kr. 1.171 Kr. 11.148
Sem er ódýrara um London Sem ei' ódýrara með Úrvali.
B. Hjón með tvö börn 9 ára og 13 ára.
’l. í lei.guflugi. með Úrváli Kr. 65.412 Kr72.036
2. í'áætlun til London, þaðan með enskri. ferðaskri.fstofu Kr. 73.253 Kr. 89.733
Mi.smunur Kr. 7.841 Kr. 17.697
Sem með er ódýrara Úrvali Sem er ódýrara með Örvali.
Forsendur:
1. Verð á leiguflugi. hjá Úrvali með 8% staðgreiðsluafslætti. samkv. verðskrá.
2. Innifalið: Fargjald Reykjavík-London-Reykjavík: Grænt apex. Verð London-Mallorca-London með gisti.ngu á Royal Magaluf samkv. verðskrá OSL. Dvalarkostn. London: Gisti.nótt £ 35.- fyri.r 2ja manna herberg.i Aukarúm £ 10.- Matarkostn £ 10.- pr. mann Akstur ca. £ 25.- ^