Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1984, Page 14
Spurningin
SP.U r iIAT;i ,k* .t:>rl/,/ n vv,t
DV. PÖSTtlDAtittR 29. JÚNt 1984.
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Býstu við miklu af íslensku
keppendunum á ólympíu-
leikunum á Los Angeles í
júlí?
Eiríkur Einarsson: Þaö er helst að viö
getum veriö framarlega í lyftingum og
kastgreinum. Ég býst einna helst við
aö Einar Vilhjálmsson spjótkastari
geti náð góöum árangri.
Halldór Einarsson offsetljósmyndari:
Ætli viö veröum ekki svipaöir og áöur.
Eg reikna þó meö aö Einar Vilhjálms-
son eigi góöa möguleika.
Slgríöur Sigurjónsdóttir neml: Eg er
ekki mikið inni í íþróttum en ætla þó að
fylgjast með ólympíuförunum. Eg
vona bara að þeim gangi vel.
Jóhanna Harðardóttir húsmóðir: Eg
held að þeir standi sig vel. Eg reikna
með að Oskar Jakohsson komist langt
og þá jafnvel á verðlaunapall.
Karen Maria Jónsdóttir: Þeim gengur
ábyggilega vel. Eg ætla að fylgjast
meö þeim þvi ég hef mikinn áhuga á
íþróttum og er sjálf i fimleikum i
Gerplu. Eg vona að ég eigi lika eftir að
keppa á ólympíuleikunum.
Gylfi Birgisson nemi: Eg reikna með
að Einar Vilhjálmsson komist á pall en
aðrir verða fremur neöarlega.
Vantrú Islend-
inga á eigin orku
Sigurður Ammundsson skrifar:
Getur það staöist að ein orku-
auðugasta þjóð í heimi, sem getur
talist eiga þau varanlegustu auöæfi í
heiminum í dag, falbjóði þessi verð-
mæti sin til handa auölindasöfnurum
og landvinningamönnum? Og ekki nóg
með það heldur kaupir þessi þjóð síðan
dýrari orku, svo sem olíu og gaS, og
brennir henni út i loftið: 70% sem
mengun. Og árangurinn er sá að
togararnir leggja upp laupana.
Jú, þetta ku vera tilfellið og þjóðin
erum við Islendingar.
Það er fleira orka en olía en að at-
huguðu máli má telja til efs að hægt sé
aö koma þjóðinni i skilning um það
eftir það sem á undan er gengið.
Islendingar þurfa ekki svo mikið
sem flytja inn bensin, orkan er til
staöar hér á landi en fólkið í iandinu
hefur svo mikla vantrú á henni að
tæpast er hægt að nefna tæknilegar að-
ferðir til úrlausnar, ekki einu sinni
ráðamenn trúa.
Þessi dæmalausa vantrú Islendinga
á sjáifa sig fær mann til að trúa að það
eina sem íslenskir hugvitsmenn geti
gert til að koma hugmyndum sínum á
framfæri sé að flytja úr landi.
Það er ekki góðs viti því án hugvits
og gáfna gæti mannfólkið alveg eins
verið á steinaldarstigi.
Brófritari segir ísiendinga þjást af vantrú á eigin orkuiindir. Hór er myndaf Ljósafossvirkjun.
Ótrúlegir danshæf ileikar
Hulda Guðrún Hallsdóttlr skrifar:
,,I apríl í vor varð „sprenging” í
Danskennarasambandi Islands og
nýtt félag var stofnaö, Félag íslenskra
danskennara. Stofnendur þess eru
kennarar frá níu dansskólum og þaö er
ekki í Danskennarasambandi Islands.
Danskennaranám tekur fjögur ár og
tvö próf eru tekin á tveggja ára fresti,
samanber frá sveinsprófi upp í
meistarapróf.
Laugardaginn 10. júni las ég viðtal i
NT við nýútskrifaðan danskennara frá
— eða auglýsingabragð?
Dansskóla Heiðars Astvaldssonar og
hafði hann tekið próf frá Danskennara-
sambandi Islands. Dansskóli Heiðars
er nú einn af örfáum samkvæmis-
dansaskólum í því sambandi. Það kom
fram í viðtalinu við hinn nýja dans-
kennara að hann fékk tíu í einkunn
fyrir svokallaða tækni sem er að hann
lýsir hverju spori fyrir sig frá grunni
og að s jálf sögðu dansar sporið um leið.
Brófritari vili fá aö vita hvernig hægt er aö fá tfu i einkunn fyrir að dansa.
Nú langar mig til að spyrja próf-
nefnd DSI hvemig nemandi getur
fengið tíu í einkunn fyrir þaö sem hann
er að gera meö líkamanum. Eg hélt að
enginn væri svo fullkominn, að
minnsta kosti hefur prófnefndin haldiö
því fram til þessa. Aldrei hefur ein-
kunnin tíu verið gefin á þessu sviði fyrr
hér á landi. Eða er það vegna
stofnunar hins nýja félags sem próf-
nefndin hefur talið að hún þyrfti að slá
i gegn með því að gefa næsta nema,
’sem tekur próf, tíu? Að sjálfsögðu er
það svo auglýst í blööunum. Er þama
um aö ræða ótrúlega danshæfileika
viökomandi danskennara eða aug-
lýsingabragð?
— Persónulega vorkenni ég aðeins
þessum danskennara að verða fyrir
þessu augljósa bragði.
Hvenær fór prófnefndin að gefa ein-
kunnir skiptar — það er sérstaklega
fyrir dansprógrammið og síðan
tæknina, því það kom fram í viðtalinu
að nýi danskennarinn fékk 9,8 fyrir
dansinn. Áður fyrr fengu nemendur
ekki að vita hvað þeir fengu í einkunn
nema samanlagt, ekki sérstaklega
fyrir tækni eða sérstaklega fyrir dans.
Hefur þessu verið breytt nú, það er
að nemendur fái einkunn fyrir hvern
einstakan dans? Ef svo er þá er það
vissulega tilbóta”.
Sjónvarpið á að
þóknast neytendum
8387—7553 skrifar:
Á lesendasíðu þessari hef ég oft
séö kvartanir um lélegt sjónvarpsefni.
Dæmi er þegar Dallas hætti að birtast
á skjánum um tíma. Þá sáust margar
kvartanir. Svo kom Dallas aftur en
hefur nú kvatt á nýjan leik og i staðinn
kom einhver þýskur framhaldsþáttur
sem mörgum finnst leiðinlegur, að þvi
erég bestveit.
Ef sjónvarpið hefur ekki efni á að
sýna fleiri Dallasþætti þá finnst mér að
það ætti að sýna eitthvaö sem fólk
hefur beðiö um.
Poppunnendur væru t.d. fegnir að
sjá Grammy-afhendinguna en þar
tóku þekktir tónlistarmenn við viður-
kenningum og skemmtu í leiðinni. Það
er líklega dýrt aö kaupa þáttinn en ef
viljinn er fyrir hendi er það sennilega
hægt.
Mig langar í lokin til að koma með
nokkrar uppástungur um efni í sjón-
varpið: Alheimskeppnin sem Unnur
Steinsson tók þátt i, Dynasty, Happy
Days (gamanþættir), General
Hospitalo.fl. o.fl.
Úr Generai Hospital, en hann er einn
þáttanna sem brófritari rnæiir með að
verði sýndur i sjónvarpinu hór.
Úrsólinni.
Myndirúrsólinni
Birna skrifar vegna greinar
Sólfara 20. júní 1984:
j Sólfari góöur. Undarlegum augum
þykir mér þú líta dagsins ljós. Gleður
það ekki auga þitt að sjá fólk ánægt
með lífið og tilveruna? Hví ekki að
koma með myndir í dagblöðum fré
sólardögum? Nóg er víst af drunga í
lofti og hinum sívinsælu rigningar- og
rokmyndum.
Mér persónulega finnst gaman að
sjá myndir frá þessum dögum. Litil
börn, léttklædd í sólinni, og yfirleitt
myndir af fólki á förnum vegi eiga
fullan rétt á sér. Þessar myndir lífga
upp á blöðin, fyrir utan það að fólki
finnst alltaf gaman að fá myndir af sér
i blöðin, ég tala ekki um litlu börnin.
Eg hrósa alltaf góðu veðri og vona
að það endist lengur en einn dag, ef
ekki þá getum viö engu um þaö ráðið.
Þú ert að tala um fólk með barnatrú á
gott sumar, er það ekki líka hálfgerö
barnatrú að halda aö við séum að
storka náttúrunni?
Njótum góðu daganna, þeir eru
ekki of margir. Ljósmyndarar, takið
sem flestar myndir af mannfólkinu í
góða veðrinu, þær eru einfaldlega
skemmtilegar.