Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1984, Síða 17
DV. FÖSTUDAGUR 29. JUNl 1984.
25
jró ttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
Dan Cornelíusson.
„Undir Stutt-
gart komið”
— Como vill fá Svíann
Dan Corneliusson
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, frétta-
manni DV í Svíþ jóð:
„Það er allt undir Stuttgart komið
hvort ég fer til Como. Ég á enn tals-
verðan tíma eftir af samningi minum við
þýska liðið. Hins vegar hef ég rætt við
forráðamenn Como, sem hafa hug á því
að fá mig. Como vann sæti í 1. deildinni
ítölsku í vör,” sagði sænski landsliðs-
miöhcrjinn Dan Corneliusson við
Expressen í gær.
Talsveröar likur eru á því að Corne-
liusson fari frá Stuttgart. Hann stóð sig
þar nokkuð vel framan af síðasta
keppnistímabili en síðan fór að halla
undan fæti. Þá hefur Stuttgart líka keypt
landsmiðherja Belgíu, Nico Claesen frá
Seraing.
Metþátttaka
íMinolta
golfmótinu
Fjölmennasta golfmót sumarsins til
þessa fór fram á Grafarholtsvellinum nú
í vikunni — Minolta Million golfmótið.
147 kylfingar mættu til leiks og var
keppnin með forgjöf.
Hafþór Olafsson úr GR varð sigurvegari —
lék á 60 höggum netto (84 — 24). Jón Öm
Sigurðsson, GR varð í öðru sæti á 65 höggum (76
—11), Bjöm Karlsson, GK varð þriðji á 66 högg-
um (83 — 17) og Árni Oskarsson, GOS varð
fjórði á 66 höggum (89 — 23).
Besta skori í mótinu náði Magnús Jonsson
GS sem lék 18 holumar á 72 höggum.
Teiturleikur
með Rudi Krol
Frá Kristjáni Bernburg — fréttamanni
DV íBelgíu:
— Hollenski knattspyrnukappinn,
Rudi Krol, sem er fyrrum fyrirliði holl-
enska liðsins og Ajax, og hefur leikið
með Napolí á ítalíu undanfarin ár, gekk í
gær til liðs við franska félagið Cannes,
en með því félagi leikur Teitur Þórðason.
-SOS
Stef án á
skotskónum
Keflvikingar unnu sigur 3—0 yfir
Fram á íslandsmóti eldri knattspyrnu-
manna í Keflavík í gærkvöldi. Rúnar
JúUusson skoraði fyrsta mark Keflvík-
inga, en hann skoraði sigurmark þeirra
1—0 gegn KR á dögunum — og siðan
skoraði Stefán Jónsson tvö mörk, með
vinstri- og hægrifótarskoti. Ástráður
Gunnarsson, bakvörðurinn knái, lék i
markf Keflavíkurliðsins og bjargaði
hann heimamönnum oft á undraverðan
hátt. -emm/-SOS
þróttir íþróttir íþróttir íþróttir
Sebastian Coe.
>kot frá Sverri Herbertssyni, af stuttu færi. GlæsUega gert.
DV-mynd: Brynjar Gauti Sveinsson.
Hver tryggir sér
ferð til Ipswich?
knattspyrnuskóli PGL og KR hefst á þriðjudaginn. Hver tryggir sér
ferð með Útsýn til Ipswich á PGL-skólann?
— Það er mikUl áhugi fyrir knatt-
spyrnuskólanum, sem hinir kunnu
ensku knattspyrnumenn PhU
Thompson frá Liverpool og Arsenal-
leikmaðurinn Brian Talbot munu
stjórna hér í næstu viku, sagði Stein-
þór Guðbjartsson, framkvæmda-
stjóri knattspyrnudeUdar KR, en
KR-ingar sjá um skólann I samvinnu
við hinn kunna enska knattspyrnu-
skólaPGL.
KnattspyrnuskóUnn er fyrir unga
knattspyrnumenn á aldrinum 6—16
ára, stúlkur og drengi. Þetta er ein-
stakt tækifæri tU aö læra knatt-
spyrnu af frægum leikmönnum og þá
verða einnig tvelr unglingaþjálfarar
1. deUdarUöa í Englandi kennarar
við skólann.
SkóUnn hefst á þriðjudaginn og
stendur hann tU 7. júlí. Kennt verður
alla daga frá kl. 10 tU 16.30.
Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt
í skólanum eru beðnir að tilkynna
þátttöku í síma 27181 i dag og einnig
verður tekið á móti þátttökutilkynn-
ingum á mánudaginn, eða svo
framarlega að ekki verði þá orðið
fuUsetið í skólanum. 100 börn og
ungUngar hafa möguleUca á að læra
galdra knattspymunnar — undir
stjóm Thompson og Talbot.
Ýmsar viðurkenningar verða
veittar i sambandi við skólann og fær
„besti nemandinn”, aö mati
kennara, ókeypis ferðir tU Englands
og þátttöku i PGL-skólanum þar.
Það verður á tímabUinu 20.—27.
ágúst.
Knattspyrnuskóli
í Ipswich
PGL-skólinn í Ipswich er einn
kunnasti knattspymuskóli Evrópu.
Ferðaskrifstofan Utsýn hefur ákveö-
iö að gefa islenskum unglingum kost
á að sækja skólann í Ipswich — á
fyrrnefndum tima — en við skólann í
Ipswich kenna leikmenn eins og Paul
Mariner, Arsenal, Terry Butcher,
Ipswich, John Robertson, Brian
Talbot, Phil Thompson og Amold
Muhren.
Þclr sem hafa áhuga á að taka þátt i
skólanum I Ipswich geta fengið nánari upp-
iýsingar um skðlann hjó Útsýn i sima 26611.
Verð cr kr. 15.000 og InnifaUð er: flugfar-
gjald, gisting, beM, flutningur innan Brct-
lnnds, skoðunarferðir og þjáifun. islenskur
fararstjóri vcrður með í ferðlnni.
-SOS
ígt heimsmet
tristiansen
enna á Bjslett-leikunum í Osló í gærkvöldi
örugglega,” sagði hann eftir hlaupið.
James Robinson frá Bandaríkjunum
var annar á 1:45,12 min. og þriðji var
Rob Harrison frá Bretlandi á 1:45,39
mín.
• Ovett vann einnig öruggan sigur —
í 1500 m hlaupi. Kom í mark á 3:34,50
min. Spánverjinn Jose Gonzales varð
annará 3:34,61 mín.
• Bandaríkjamaöurinn Albert
Robinson varð sigurvegari í 100 og 200
m hlaupi á 10,64 og 20,82 sek.
• Breskar stúlkur röðuðu sér í þrjú
fyrstu sætin í 400 m hlaupi. Kathy Cook
varð sigurvegari á 51,48 sek. — hennar
bestitímiíár.
• Portúgalinn Fernando Mamede
varö sigurvegari í 5000 hlaupi karla —
13:12,83 mín. Finninn Martti Vabiio
varð annar og Portúgalinn Carlos
Lopezþriðji. -SOS
..Laudrup
tekur við
af Platini”
- segir Bobby Robson, landsliðseinvaldur Englands
— Frá Gunnlaugi A. Jónssyni —
fréttamanni DV í Svíþjóð:
— Bobby Robson, landsliðs-
einvaldur Englands, sem var í
Frakklandi á meðan EM stóð yfir,
sagðist hafa vonast eftir að sjá Dani
leika gegn Frökkum í úrslitaleiknum.
— Danir eru nú með eitt sterkasta
landslið Evrópu og með því leika
margir mjög snjallir leikmenn. Hinn
19 ára Michael Laudrup er frábær leik-
maður og ég er viss um að eftir tvö ár
verður hann orðinn besti sóknarleik-
maður Evrópu — verðugur arftaki
Michel Platini, sagði Robson.
— Robson sagöi aö knattspyrnan í
Evrópu væri í mikilli framför — væri
orðin betri en knattspyrnan í S.-
Ameríku. Portúgalar hefðu komiö
skemmtilega á óvart fyrir snjalla leiki
og væru þeir með marga frábæra leik-
menn, eins og Chalana, miðvallarspil-
arann snjalla. Þá eru Spánverjar með
gott lið. Vörn þeirra er sterk, en nú
þurfa þeir að leggja kapp á að gera
sóknarleikinn beittari, sagði Robson.
-GAJ/-SOS.
Michael Laudrup.
Bandaríska úrtökumótið ísundi:
Nýja stjaman
sigraði á ný
Nýja sundstjarnan i Bandaríkj-
uinum, Mike Heath, heldur áfram að
koma á óvart á úrtökumótinu í
Indianapolis. í gær sigraði hann í 100 m
skriðsundi á snjöilum tima, 49,87 sek.
og sigraði heimsmethafann Rowdy
Gaines.
Sá síðarnefndi komst þá í banda-
ríska ólympíuliðið. Varð annar á 49,96
sek. Chris Cavanaugh þriðji á 50,04
sek. en sá tími nægði ekki. Heath sigr-
aði einnig í 200 m skriðsundi á úrtöku-
mótinu.
Sundkonan fræga, Cynthia Wood-
head, komst ekki í 400 m skriðsundið á
ólympíuleikunum. Varð í þriðja sæti í
gær á 4:09,94 mín. Tiffany Cohen sigr-
aði á 4:08,73 mín. Hún er 18 ára.
Bandaríski methafinn Kim Linehan
varðönnur á4:09,57mín.
Rick Carey bætti heimsmet sitt í 200
m baksundi þrátt fyrir slæmt
viðbragð. Synti á 1:58,86 mín. eða 7/100
úr sekúndu betur en á bandaríska
meistaramótinu í Kaliforníu. Gamli
kappinn Jesse Vassallo komst einnig í
ólympíuliðið. Annar á 2:02,15 mín.
-hsím.