Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1984, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1984, Síða 32
FRETTASKOTIÐ 6818*58 SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022. Hafir þú ábendingu aða vitneskju um frétt — hiingdu þá i síma 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notafl i DV, greið- ast 1.000 krönur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ1984. „Fór út um gluggann” — Jóhann Hjartarson með einn vinning og biðskák á skákmótinu íLeningrad „Ég hef unniö eina skák og er með aöra í biö. Sú fór út um gluggann eins og viö segjum, er gjörtöpuö eftir aö ég lék hroðalega af mér,” sagöi stór- meistarinn Jóhann Hjartarson er DV náöi tali af honum í Leningrad í gærkvöldi en þar tekur hann þátt i geysisterku skákmóti þessa dagana. Þrjár umferöir eru búnar á mótinu. I þeirri fyrstu átti Jóhann aö tefla viö sovéska stórmeistarann Taimanov. Þeirri skák var þó frestað þar sem Taimanov komst ekki í tæka tíð til leiks. Jóhann var með svart á móti sovéska alþjóðameistaranum Judasin í annarri umferö. Þaö er sú skák sem fór í biö. „Við vorum báöir í rosalegu timahraki. Fyrst lék hann af sér. Þá var ég meö gjörunniö, gat unníð bisk- up. Strax í næsta leik iék ég af mér og hann er með unniö.” Það var svo í gær sem Jóhann tefldi á móti Sovétmann- inum Vorodmikov og vann hann í 40 leikjum. Fjórtán þátttakendur eru á þessu móti og því 13 umferöir leiknar. Jóhann teflir í dag viö Taimanov. „Ég þori engu aö spá um þá viðureign. Maöur veit aldrei hvaö gerist.” Gott veöur er nú í Leningrad, þægilegur hiti, 20 gráöur á Celsius. Teflt er í Tikorin-skákklúbbnum og er fullt hús af áhorfendum þegar teflt er. Mótinu lýkur 14. júlL -JGH. Dansað íViðey? Hópur hljómlistarmanna hefur óskaö eftir því viö borgaryfirvöld að fá að halda tónleika eöa jafnvel dans- leik í Viðey um verslunarmanna- helgina. Málið hefur enn ekki verið rætt í borgarráði, en gert er ráö fyrir aö þaö verði tekið fyrir á fundi ráösins í dag. -EA. LOKI Svo það er erfitt að vera borðfáni. Hálf ur Stöðvarfjörður með niðurgang: Einsogaövera með fæðingarhríðir — segir héraðslæknirinn sem sjálf ur er á sjöunda degi Vandræöaástand hefur rikt á Stöðvarfiröi aö undanfömu. Hálfur bærinn hefur nú þegar legiö í ókenni- legri pest sem lýsir sér í niöurgangi, uppköstum og slappleika alls konar. „Þaö segja mér sumir að helst megi líkja verkjunum viö fæðingar- hríöir og dreg ég það ekki í efa því sjálfur er ég á sjöunda degi í þessari niðurgangspest,” sagöi Bjöm Logi Bjömsson, héraðslæknir á Fáskrúðs- firði, en hann þjónar einnig Stööv- firöingum. ,Jíg veit ekki enn hvaö veldur þessum ósköpum en ég hef látið taka sýni úr vatnsbólinu á Stöðvarfiröi, sent þau suöur til Reykjavíkur og bíö nú eftir svari,” sagöi héröaslæknirinn. Vatnsbólið á Stöðvarfirði er girt af en fyrir skömmu lét dýralæknirinn á Breiödalsvík þau boö út ganga aö því yrði ekki lengur unað aö aligæsir væm þar á vappi. Leikur grunur á aö þær hafi komist í vatnsbólið, sopið á og afleiöingamar oröiö þær sem aö framan greinir. Á annaö hundrað aligæsir munu vera á Stöðvarfirði og fara þær feröa sinna um bæinn líkt og mannfólkið. Þegar pestin náöi há- punkti munu gæsirnar á götum bæjarins hafa verið fleiri en fólkið aö sögn heimamanna og sjúklinga. EIR. Sumarið hefur verið óvenjugott það sem af er og fiestír hafa reynt að njóta sem mestrar útívistar. Þéssi mynd var tekin íhöfuðborginni. D V-mynd: Arinbjörn. Stórt gjaldþrotamál: Skuldirnar um 150 milljónir „Þaö er enn of margt óvíst í þessu máli til aö hægt sé aö fullyrða um af hvaöa stæröargráöu þetta gjaldþrot veröur. Eg get þó nefnt að bókfæröar eignir félagsins eru tíu sinnum meiri en I næststærsta gjaldþrotamáli á undan á síðustu fimm árum.” Þetta sagöi Ragnar H. Hall, skiptaráöandi í gjaldþrotamáli End- urtryggingafélags Samvinnutrygg- inga hf., en félagiö var tekið til gjald- þrotaskipta síðastliðinn föstudag. „Um síöustu áramót námu eignir félagsins um 120 milljónum króna en skuldir voru um 150 milljónir. Ég tel mjög líklegt að skuldatalan eigi eftir að hækka,” sagöi Ragnar. Aö sögn Ragnars sá skilastjómin, sem skipuö var að tillögu Trygginga- eftirlitsins, enga leið út úr þessu máli aðra en þá aö taka félagið til Gjald- þrotaskipta. -JGH. Súld í Reykjavík en sólá Akureyri Veðurstofan spáir hægri suðvest- an- og sunnanátt á landinu um helg- ina. Gert er ráö fyrir súld og rign- ingu suðvestanlands meö í mesta lagi tíu gráða hita. Noröaustanlands er spáö bjartviðri. Þar gæti hitinn fariö upp í fimmtán stig á stöku stað. -KMU. Óvænt sending til þeirra sem skiluðu ólöglegum myndböndum: Fá senda háa reikninga frá myndbandaleigunum Tvær myndbandaieigur borg- arinnar, Vídeóheimurinn og Vídeó- sýn, hafa lagt fram háa reikninga á hendur þeim aöilum sem skiluöu ólöglegum myndböndum til Samtaka rétthafa myndbanda í maímánuöi. Um er aö ræða fjárhæöir upp á tugi þúsunda, en myndböndin eru á annað hundraö talsins. Gunnar Guömundsson, lögmaöur Samtaka rétthafa myndbanda, sagöi í samtali við DV aö enginn fótur væri fyrir þessum kröfum og að samtökin myndu sækja leigurnar til saka. Annaöhvort væri aö fara í einkamál eða afhenda lögreglunni máliö. „Þeir hefðu getaö athugað hvort sáttamöguleiki væri fyrir hendi. Þaö virðist ekki hafa verið reynt til þrautar eöa vilji veriö fyrir því,” sagði Gunnar. Friöbert Pálsson, formaöur Samtaka rétthafa myndbanda, sagöi aö samtökin tækju á sig alla ábyrgö af þessum kröfum og aö einstaklingar ættu ekki að þurfa aö bera neinn skaða. „Þessir aöilar hafa tekiö á leigu myndirsem þeir skila ekki, heldur koma með þær til okkar. Leigan sjálf hefur því tvö- og þrefaldast á þessum tíma. En þessar myndbandaleigur eru vísvitandi að leigja úr myndir sem eru ólöglegar.” Eigandi Vídeóheimsins hefur ekki viljað tjá sig um máliö og ekki hefur náöst tÚ eiganda Vídeósýnar. -pá.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.