Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1984, Blaðsíða 1
DAGBLAÐID —VÍSIR 164. TBL. — 74. og 10. ÁRG. — MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 1984.
ígœrdag heimsóttu hjólreiðamennirnir norsku Vigdísi Finnbogadóttur á Bessastöðum.
Eins og kunnugt er hefur hópur hjólreiðamanna frá Noregi verið í löngu hjólreiðaferðalagi hér um landið.
Þeir hjóluðu frá Reykjavík til Egilsstaða, sem er um 700 km leið. fþessum hópi eru fatlaðir einstaklingar.
Þeir hjóla á tvímenningshjólum þar sem annar er ekki fatlaður og hjálpa hvor öðrum á þennan hátt við
hjólreiðarnar.
Ferðin hefur gengið vel og eiga norsku hjólreiðamennirnir ekki orð yfir þá gestrisni og þœr móttökur sem
þeir hafa fengið á leið sinni til Egilsstaða. Þeir senda þakkir til allra sem hafa greitt götu þeirra l ferð-
inni. APH/DV-mynd E. Ó.
Norðmenn svara mótmælum íslendinga:
ENGINN VEIÐI-
KVÓTITIL DANA
Norðmenn hafa fallið frá því að
veita Dönum loðnuveiðikvóta á Jan
Mayen-svæðinu og hafa fallist á að
hafa þar eftirlit, bæði úr sjó og lofti.
Þetta kemur fram í svari norskra
yfirvalda, sem barst í fyrradag, við
mótmælum Islendinga um sam-
komulag Norðmanna og Dana um
loðnuveiðar hinna siðarnefndu. í
svarinu er einnig lögð áhersla á
samráð Islendinga og Norðmanna,
eins og kveðið er á um í Jan Mayen-
samkomulaginu.
Geir Hallgrímsson utanríkisráð-
herra sagði í samtali við DV í
morgun að eftir sem áöur stæði sá
ágreiningur milli Dana og Norð-
manna að Danir halda fram 200
mílna efnahagslögsögu frá Græn-
landi en Norðmenn halda sig við svo-
nefnda miðlínu milli Jan Mayen og
Grænlands. „Við höfum tilkynnt
utanríkisráðherra Dana og forsætis-
ráðherranum, er hann kom hingað,
að við stöndum með Norðmönnum í
þeirri deilu.
Ég hygg að við verðum að fylgjast
mjög vel með framvindu málsins og
það er trúlegt, eins og við höfum
haldið fram sjálfir, að við verðum að
eiga hlut að máli í sambandi við
lausn á þessari deilu um efnahags-
lögsöguna. Við höfum líka lagt
áherslu á að hafa stjórn á veiðum í
loðnustofninum og til þess þurfum
við að ná meira en samningi milli
Norðmanna og okkar,” sagði Geir
Hallgrímsson. -pá.
Austfirðingar sigla í land 24. júlí:
Sé ekki hvaða hagsmunum
það þ jónar að stöðva nú
— segir sjávarútvegsráðherra
,,Ég skil ekki hvaða hagsmunum
það þjónar að stöðva veiðar nú, áður
en þær leiðir sem við viljum reyna til
að lagfæra stöðu sjávarútvegsins
hafa verið reyndar til þrautar,”
sagði Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra er DV innti hann álits
á þeirri ákvörðun útgerðarmanna á
Austfjörðum að hætta veiðum hinn
24. júlink.
Halldór sagði að ekki yrði gripið til
gengisfellingar til að bæta stöðu
sjávarútvegsins, en til að viöhalda
gengisstefnu ríkisstjómarinnar yrði
sjávarútvegurinn að njóta forgangs
við banka og peningastofnanir.
„Eg hef beint þvi tii banka og ann-
arra stofnana að þær aöstoöi við
endurskipulagningu mála sjávarút-
vegsins með tilliti til skuldbreytinga
og búið er að ákveða endurskoöun
afurðalána, en ég er satt að segja
mjög óánægður með hvað þessi mál
gangaseint.”
„Það er mjög varasamt að stöðva
veiðamar nú. Fólk missir atvinnuna
og erfitt getur reynst að koma
atvinnutækjunum í gang aftur. En
því miður hefur viöleitni okkar til
úrbóta gengið allt of seint,” sagði
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs-
ráðherra að lokum. -ÞJH
RMYNDAKEPPNIDY